Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!

Ellin færist yfir

Af hverju er það alltaf þegar að ég horfi á eftir því sem mér finnst vera geðveik gella, að hún er með barnavagn?




Það ótrúlega gerðist í gær. Ég fékk þjórfé frá Þjóðverjum - tvisvar !!!




Hvað feita fólkið vill?? - ég skal segja ykkur hvað ÉG vil !

Hérna er listi yfir hvað feitt fólk vill.
Ja, ég skal segja ykkur á móti hvað ÉG vil.

- Geta sleppt að sjá skattpeningana mína fara í að stjana undir rassinn á fólki sem getur ekki haft hemil á því hvað það étur

- Þurfa ekki að horfa á eftir skattpeningum í lækniskostnaðinn sem fer í að lækna hjartasjúkdóma hjá öllum þessum blobbum

- Ekki þurfa að horfa á feitt fólk í sundi eða öðrum stöðum þar sem fólk er fáklætt

- Geta verið laus við að hlusta á svona helvítis væl eins og á þessari síðu

- Hafa þau sjálfsögðu mannréttindi að mega hæðast að fólki sem er feitt, ekki síður en öðrum

Takk fyrir !




Hvern á ég að taka fyrir næst?

OK, nú er ég (ásamt lesendum síðunnar) búinn að dissa noboddíinn hann Zeranico talsvert, og það með fínum árangri, en hann á nú varla skilið að fá meiri athygli hérna úr þessu.

Það er hins vegar fullt af leiðinlegu fólki allsstaðar á netinu, sérstaklega í bloggheiminum, sem eiga ekkert betra skilið en að fá "load af lágmenningu" frá hinum eina sanna ómálefnalegasta manni Íslands (mér).

Úr því ég er nú kominn með þetta fína kommentakerfi hérna, bið ég ykkur lesendur um að velja næsta skotmark. Boltinn er hjá ykkur.....




Zeranico pissar í bussur yfir því að fá athygli frá mér

Já, Zeranico er búinn að viðurkenna að hafa pissað á sig af hrifningu yfir að hafa fengið athygli og meira að segja link af lágmenning.is

Það er gott að geta hjálpað svona afvegaleiddum manni í lífinu. Zeranico er nefnilega mjög veruleikafyrrtur einstaklingur, sem auk þess að halda að hann sé bloggkóngur landsins, heldur því fram að Noregur sé uppspretta alls ills í heiminum. Aldrei heyrt fáránlegri samsæriskenningu. Það er auðvitað Selfoss sem er hið sanna öxulveldi hins illa í veröldinni, ekki Noregur. Það vita allir heilvita menn!




Ef hann er bloggkóngur Íslands - þá er ég Birgitta Haukdal

Hvað er þessi Zeranico að væla? Reyna að segjast vera bloggkóngur Íslands bara til að væla út síma frá OgVodafone. Þú getur bara sjálfur keypt þér síma þarna Gyðingurinn þinn. Og til þess að vera bloggkóngur landsins þá þarf einhver að lesa bloggið þitt.




Ruski - Karamba !

Um helgina var Úkraínumaðurinn Vitali Klitschko næstum búinn að vinna heimsmeistaratitilinn í boxi í þungavikt. Því miður var bardaginn stoppaður vegna þess hvað hann var illa skorinn og blóðugur, en Vitali var búinn að vera að lumbra nokkuð laglega á Lennox Lewis áður. Þetta fannst mér svekkjandi. Það væri ógeðslega gott á Kanana að fá heimsmeistara frá fyrrum Sovétríkjunum. Rúskí - Karamba....




Ellibelgjadjamm í Þórsmörk

Það voru í mesta lagi 10 manns þarna á svæðinu eldri en 10 ára og yngri en fertugt. Ekkert nema fjölskyldufólk með börnin sín og hundana. Djöfull fannst mér ég vera gamall.

Það var best þegar einhver ellibelgur kom til okkar þriggja sem vorum þarna saman og fór að röfla "ellibelgjaspeki" yfir okkur (það er svona þegar fullir gamlingjar halda að þeir geti miðlað manni svo mikilli speki vegna aldurs síns og reynslu). Kallinn var sem sagt bullandi eitthvað sem átti að vera voðalega gáfulegt. "Það er enginn latur maður til - og ekki heldur duglegur. Menn eru bara. Ég er ekki latur, ég bara er ég....."

Síðan fór hann útí svona rugl, "Sko það segir í einu ljóði.....(eins og ég muni hvað það var núna)" Þá sagði ég náttúrulega bara við hann, "Sko það segir í einu ljóði: Það var í miðjum Þikkvabænum, sem ég var að nauðga nokkrum hænum"

"Já verðuru ekki að botna þetta, hvað kemur svo, á eftir?" - "Nei" sagði ég, þetta ljóð er nefnilega ekki langt og það er heldur ekki stutt - Það bara er"

Eftir að vera tekinn svona með sínu eigin bullshit druslaðist grey gamli fyllirafturinn síðan heim.




Fer í útilegu

Ég er að fara í Þórsmörk í útilegu núna. Ég hef á tilfinningunni að margir sem að verði þar líka eigi eftir að læra þónokkuð af dónatextum til að syngja. Síðast þegar ég fór í útilegu kenndi ég pilt nokkrum þetta lag, sem varð til þess að hann söng það nokkru síðar á ættarmóti hjá fjölskyldunni sinni. Já, ég dreifi lágmenningu hvert sem ég fer.




Þvílík sóun á snilldar nafni á léni




Hundaskítur

Í gær sýndi ég uppáhalds vinkonu minni hina margrómuðu kvikmyndasnilld Pink Flamingos, en eins og allir vel menntaðir menn vita, þá tyggur aðalleikari myndarinnar hundaskít í lokasenunni (hann gerði það í alverunni, ekkert fake í gangi).

Henni fannst þetta reyndar mjög góð mynd. Grey stúlkan var bara svo óheppin að labba fram hjá hundaskít á leiðinni í vinnuna í morgun. Henni var ekki sama.....




Hef enga afsökun

Ég nenni ekki að blogga í dag. Úr því ég er ekki kvenmaður get ég víst ekki sloppið með "Ég er með höfuðverk" afsökunina. Ég hef þess vegna enga afsökun, en ég lofa að segja eitthvað gáfulegt á morgun.




Það er ábyggilega satt að ég sé eskimói

Nú hefur komið fyrir að ég hafi verið spurður af túristunum sem ég fer með til Grænlands hvort ég sé eskimói. Þessi ungi maður gerði líka könnun þar sem þónokkrir einstaklingar vildu meina nákvæmlega það.

Kannski er það bara ég sem er búinn að vera svona vitlaus - ég er ábyggilega bara eskimói. Ég er nefnilega svo langt sem allir vita hreinræktaður Íslendingur, en samt er ég frekar dökkur og verð mjög auðveldlega sólbrúnn. Ég hélt alltaf að þetta hlyti að vera af því að einhver franskur sjóari hefði komist yfir einhverja af langalangömmum mínum einhverntíman, en nú það var örugglega bara vitleysa.

Það hefur auðvitað einhver Grænlendingur flotið til Íslands með hafís á síðustu öld og hoppað upp í bælið hjá einhverri langalangömmunni minni. Hvernig gat mér hafa yfirsést þetta - ég sem er meira að segja búinn að sjá myndina Ikingut. Nú er ég bara að spá í hvort ég eigi ekki að taka upp Grænlenskt nafn.




Missti af 17.júní

Gerðist eitthvað? Annað en að það rigndi geðveikt mikið? Er þetta eitthvað sem ég ætti að sjá eftir?




Íslendinga white trash!

Ég bara HATA suma íslendinga! Þið kannist örugglega við þetta fólk. Þetta er liðið sem segir „djöfull er mikið af útlendingum hérna. Þetta lið kemur bara hingað til þess að fara á sósíalinn, lifa á kerfinu. Það á bara að henda þessu úr landi". Nokkrum augnablikum seinna er þetta sama lið farið að monta sig yfir því hvað það er duglegt að fá hærri barnabætur með því að skrá sig úr sambúð (en er samt með 500 þús á mánuði) eða með því að leggja námslánin sín inn og safna vöxtum á það. Eða þá liðið sem kvartar og kveinar yfir útlendingunum sem koma hingað og þurfa að fara á bætur á meðan þeir hanga heima á netinu og safna atvinnuleysisbótunum sínum og vinna svart.

Það á ekki að henda tævönum sem vinna í fiski úr landi. Ekki heldur pólverjunum sem eru í fiski eða útlendingunum sem koma hingað í leit að betra lífi og virkilega reyna að fá sér vinnu en fá ekkert og þurfa að fara á bætur til að lifa. Það á að henda helvítis hvíta rusl pakkinu sem lifir á kerfinu bara af því að það getur það.

Ef við myndum henda því úr landi myndum við líka losa allan húsnæðisvanda landsins því Breiðholtið myndi næstum tæmast.




Væmna myndin af mér virkar greinilega

Smellið bara hérna ef þið trúið mér ekki. Já, ég þarf á þessu að halda, einhvernveginn verð ég nú að reyna að bæta sjálfsmyndina fyrir sjálfum mér, þar sem ég er nú eins og allir vita með lítið typpi.....




Jävla !

Það eru ýmsir þættir í Ríkissjónvarpinu sem horfandi er á. Þetta vita fáir, en það vill svo til að ég er með ömurlegt loftnet og næ ekki Skjá einum, og hef þar með öðlast þessa vitneskju.

Endilega horfið á sænska þáttinn "Glappet" eða "Á milli vita" sem er alltaf kl.8 á fimmtudögum. Ég vil nefnilega að einhverjir þjáist með mér. Ekki það að þetta sé lélegur þáttur - þvert á móti. Málið er bara að í þessum þætti eru tvær 18 ára vinkonur sem eru að láta heilla sig af ógeðslegum, ömurlegum, sleazy, miðaldra, giftum köllum með ódýru smjaðri og dýru umstangi. Önnur stelpan er þegar fallin fyrir þessu og er að sofa hjá öðrum vibbanum, hin er ekki jafn mikið airhead og vinkona hennar, en hún er aftur á móti klikkuð og því aldrei að vita nema hinn vibbinn komist yfir hana líka.

Helvítis ógeðslegi viðbjóður. Þessir menn þurfa að fara að drepast einhvernveginn í þessum þáttum. Leitt að stelpurnar eigi enga stóra bræður til að buffa þá. Alltaf er verið að láta mann skammast sín fyrir að vera karlmaður. Fyrst Lilya 4 ever myndin og nú þetta.




Ég játa !

Ég játa, ég gerði bara typpastærðarkönnunina og lækkaði alla niður um marga sentimetra af því ég er sjálfur með lítið typpi.

Krump......

Vææææl....

buhuhuuuuuu......




Fyrstur til að kvarta

Já, það var fyrst núna sem einhver kvartaði yfir því að vera lækkaður niður í könnuninni um typpastærð hér fyrir neðan. Það að næstum þúsund manns voru búnir að kjósa áður en fyrsta kvörtun kom sýnir bara að menn vita upp á sig skömmina (að bæta alltaf nokkrum sentimetrum við þegar þeir gefa upp stærðina).




Þoli ekki þegar mann fer að dreyma vinnuna sína

Í gær þegar ég var rétt að sofna dreymdi mig að ég var enn eina ferðina að fara með túrista til Kulusuk. Ég var með einhverja ógeðslega erfiða og leiðinlega Þjóðverja sem voru með ótrúlegasta vesen við mig. Þá fattaði ég að ég var ekki í vinnunni og þetta var bara draumur þannig að ég sagði bara "Essen Sie Scheisse" við Þjóðverjana, sem glaðlega svöruðu mér "Danke schön." Þá hætti draumurinn og ég gat sofnað almennilega.

Ég var síðan auðvitað með Þjóðverja með mér í dag. Sem betur fer rættist þessi draumur samt ekki frekar en það.




Hlýt að vera farinn yfirum

Í gær dreymdi mig að ég gekk með naggrísinn minn í bolla sem var næstum fullur af mjólk, þannig að naggrísinn gægðist upp úr bollanum með því að hafa framlappirnar á brúninni á honum. Ég hlýt að vera farinn yfirum. Kannski er ekki hollt að fara ellefu ferðir til Grænlands og gista þar þrjár nætur á bara rúmum 2 vikum. Eða kannski er ég bara hræðilega mikill pervert og þessi draumur hafði einhverja dulda Freudíska merkingu............




Hvað ertu með stórt typpi ?

Hérna er ég með skoðanakönnun sem mun leiða í ljós typpastærð þeirra sem taka þátt í henni. Ég hef reyndar heyrt því fleygt að það þýði ekki að gera svona skoðanakönnun, því karlmenn eigi það svo mikið til að ljúga og bæta við. Iss, ég tek nú ekki mark á því. Ég þvert á móti lofa að þessi skoðanakönnun er marktæk.





Typpastærð

Hvað ertu með stórt typpi?


[1] Minna en 10 cm

[2] 10-12 cm

[3] 13-14 cm

[4] 15 cm

[5] 16-17 cm

[6] 18-20 cm

[7] 21-22 cm

[8] 23 cm eða meira



Current Results







Matrix

Ég fór á Matrix um daginn og ég var að pæla: Nú lítur út fyrir að það hafi verið önnur Matrixa utan um Matrixuna sem Neo og co. voru alltaf að logga sig inn í. Þó að það líti sem sagt út fyrir að þeir séu núna í "alveru" heiminum, þá sé þeir í rauninni bara komnir út úr innri Matrixunni og í þá ytri.

Ef þetta er svona, og Matrixan er hvort eð er bara skynvilla, getur þá ekki verið að Neo, Morpheus, Trinity og þau líti í rauninn allt öðru vísi út í alverunni en í Matrixunni. Hvað ef Neo er í rauninni feit miðaldra kelling, Trinity er lítill pigmy dvergur og Morpheus er þrettán ára hvítur gelgjustrákur. Bara að pæla. Kannski er ekkert point í því fyrir þau að sleppa úr Matrixuni eftir allt.




Sögur af Jóa á hjólinu

Nei einhverjir krakkar eru að segja sögur af honum Jóa á hjólinu, opinberu þorpsfífli Kópavogs til langs tíma.




Hitt og þetta

- Einhver spurði hvenær næsta blaðsíða af XXX-men kæmi upp. Ég get sagt það að höfundurinn, hann Jónsi sem teiknar XXX-men, er búinn með 5.bls, en hann er í Noregi, þannig að ég fæ hana ekki til að skanna inn fyrr en hann kemur til baka.

- Við byrjuðum aftur að æfa wrestling í dag eftir langt hlé.

- Jóhann P. Malmquist, prófessor við Tölvunarfræðiskor HÍ, er í litlu aukahlutverki sem tollvörður í myndinni Fíaskó. Frekar furðulegt.

- Mér finnst fyndið að gera grín að feitu fólki. Ef ég væri feitur þá myndi ég alltaf vera að gera grín að sjálfum mér.




Þvílík ósvífni !

Uss, hann Hörður Mar er búinn að setja upp mjög svo ósvífna könnun á síðunni sinni varðandi aðal manninn. Ef þið viljið sem sagt tjá álit ykkar á því hvort ég sé hommi eða eskimói, þá getið þið kosið hérna.




Skjár einn á Grænlandi

Viti menn, Skjár einn kom bara með mér til Grænlands í gær. Þetta var liðið úr þættinum Hjartslætti, Þóra og Markó (í fáránlegum búningum sem tilheyra þættinum) og snillingurinn hann Gussi (Gunnar Jónsson, stóri, feiti gaurinn úr fóstbræðrum) ásamt pródúser og kvikmyndatökumanni.

Þetta var nú meiri ferðin. Fyrst þurfti ég að fara með þau og túristana mína yfir snjóinn til að komast í Kulusuk þorpið. Því miður var á í miðjum snjónum, með þunnri snjóbrú yfir. Eftir að ég lét túristana labba yfir einn í einu, brotnaði snjórinn undan sjálfum pródúsernum og hann pomsaði niður að mitti gegnum snjóinn.

Eftir að við toguðum hann upp úr stóð Gussi greyið einn hinum megin við ískalda leysingavatnsá og furðaði sig á því hvernig hann ætti að komast yfir litla snjóbrú með stóru gati í. "Gussi, Gussi, stopp við verðum að taka þetta upp." Það var náttúrulega aðal málið að ná því á filmu ef aumingja Gussi væri að fara að lenda í einhverjum tilþrifaríkum óförum. Einhvernveginn náði hann samt að hoppa yfir þetta án nokkurra stærri óhappa.

Þegar við komum í þorpið voru Þóra og Marikó síðan umsvifalaust svarmaðar af um það bil öllum krökkunum í Kulusuk, og ekki furða miðað hversu fáránlegum búningum þær voru í. Það sem eftir var voru krakkar að leiða þær, hoppa í fangið á þeim, fikta í hárinu á þeim og ég veit ekki hvað. Frekar fyndin sjón allavegana.

Jæja, þátturinn verður allavegana sýndur 12. þessa mánaðar, þannig að ef það sést þarna glitta í einhvern lúða merktan Flugfélagi Íslands, þá er það sennilega ég.




Húrra!

Jibbí, ég var ekki með neinar sjötugar, 150 cm litlar kellingar á háhæluðum skóm og með 20 kg af myndavélum með mér á Grænlandi í dag. Sem sagt: auðveldur og þægilegur dagur í vinnunni.

Ég er heldur ekki ennþá búinn að fá neitt margar heimskar spurningar í ár eins og ég fékk í fyrra, eins og hvort ég sé eskimói, hvort það séu mörgæsir á Grænlandi, hvort við getum skoðað ísbirnina sem Grænlendingarnir veiða í búrum og hvort Grænlendingar hafi verið kristnir áður en Evrópubúar komu þangað fyrst. Já, það er meira að segja hlýrra og betra veður á Grænlandi en heima.......




Var fastur á Grænlandi

Ég er ekki búinn að blogga síðustu daga því að ég hef verið á Grænlandi síðan á föstudaginn, var bara að koma heim í kvöld. Ég vinn nefnilega sem fararstjóri í einsdagsferðir til Kulusuk, ákvað að gista eina nótt, ófært á laugardegi, ég fastur þangað til í dag.

Þetta var nú meira. Ég fór fyrst að snjóbrettast þarna einn í hlíðunum eins og lúði þangað til ég gat ekki meira. Eftir það hafði ég ekki mikið þrek til að gera neitt af viti, því það að labba svona fram og aftur, upp og niður í snjó er ótrúlegt púl (sérstaklega þegar maður er með hóp af túristum og þarf að bera allan farangurinn fyrir sjötuga tælenska kellingu og beinlínis draga hana á eftir sér gegnum snjóinn).

Það fyndnasta í þessari ferð var samt þegar Eiríkur (íslenski fararstjórinn sem býr í Kulusuk á sumrin) var að reyna að koma mér saman við einhverja grænlenska stelpu. Hugulsamt af honum, en hey hvað get ég gert, mamma er svo aldeilis búin að banna mér að leggja lag mitt við grænlenskar stelpur.





Eldri blogg

-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)