Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!

Sengekanten

Eins og þið sjáið hér fyrir neðan er hann Gaui að kvarta yfir slæmum gæðum ljósblárra mynda á Sýn. Það kemur mér ekki á óvart. Það var einu sinni stelpa sem skvetti yfir mig fullu glasi af gosi af því að ég sagði að svona ljósblá mynd væri áhugaverðari en hún. Þið eigið auðvitað bara að skreppa upp á Laugarásvideo og leigja GÓÐA bláa mynd eins og t.d. Sømænd på sengekanten, Tandlæge på sengekanten, I skorpionens tegn......




jæja þá er ég komin aftur, ég er búin að vera að vinna aðeins útá landi þar sem ég er fastur, sem er ekki frásögu færandi nema þar var sýn og í gærkveldi vildi svo til að það var stillt á ljósbláu myndina.
Við hættum að horfa þegar við tókum eftir því að þetta voru alltaf sömu atriðin í senunni endurtekin ég meina hvað er málið.
Ég vill að ef það á að sýna þessar myndir að velja allavegna einhverjar sæmilegar myndir.




Ónýtur

Ég er ónýtur eftir að horfa á myndina Lilya 4-ever. Eftir að horfa á þessa mynd þá langar mann eiginlega bara að skera af sér typpið og leyfa femínistum að ráða heiminum.....




Varði goes Europe

Ég var að horfa á heimildarmyndina Varði goes Europe í gær. Þetta er alger snilld. Grímur Hákonarson kvikmyndagerðamaður eltir Varða tónlistarmann til meginlandsins og festir ferð hans á filmu, þar sem Varði reynir að lifa af því að stunda götuspil.

Þetta er alger snilld, sérstaklega af því að þeir rekast á einhverja steiktustu furðufugla þessarar heimsálfu og þó víðar væri leitað. Þar má meðal annars telja geðbilaðan skoskan nýnasista, tónlistarlega hæfileikasnauðann (en samt snillings) heavy metal trúbador frá Lagos og þýskan klikking sem býður Varða að koma og spila fyrir ósýnilegu álfana í garðinum sínum.

Þetta er bara snilld, alls ekki síðri heimildarmynd en t.d. Hlemmur og Lalli Johns.




Eurovision

Þessi lög eru öll eins, nema þegar einhver reynir að gera lítið úr þessari keppni eins og Austurríki núna. Þess vegna hélt ég með Austurríki. Austurríski söngvarinn var búinn að segja að ef að Evrópa væri að leggjast svona lágt að vera með þessa ömurlegu Eurovision keppni þá ættu Evrópubúar ekki betra skilið en að hann ynni keppnina. Síðan var hann með ömurlega fáránlegt lag og með mömmu sína sem falska bakrödd. Þessi maður er hetja, og mamma hans líka.

Síðan unnu Tyrkir (af því það eru svo margir Tyrkneskir innflytjendur út um allt í Evrópu sem kjósa alltaf heimalandið) og venjulegu klíkurnar gáfu hvorum öðrum stig (Norðurlöndin, Grikkland-Kýpur, England-Írland (nei, hey eru þeir ekki óvinir, bara að sleikja úr hvorum öðrum)).

Birgitta söng allavegna illa. Norðurlandaklíkan sá samt til þess að við vorum örugg um að fá að vera með næst. Eini kosturinn sem ég sé við það er að þá verður Grísli Marteinn aftur sendur úr landi í nokkra daga.




Hallærisheitin í kvöld

Jæja, þá byrjar hallærið í kvöld, eða Eurovision eða hvað sem það heitir. Djöfull er ég feginn að maður þarf bara að hlusta á raddirnar í íslensku kynnunum en ekki horfa á þá. Búinn að fá alveg nóg af að sjá Grísla Martein og Loga káfa á hvorum öðrum. Ég þori annars að veðja að Grísli Marteinn hugsar um Davíð þegar hann káfa á lærunum á Loga.....




Nýir dómar

Ég var að henda inn nokkrum nýjum dómum áðan. Aðallega um eitthvað sem tengist klámi á einn eða annan hátt.




Pína lágmenningu upp á aðra

Ég bauð tölvunördavinum mínum í videokvöld í gær. Það var auðvitað bara tóm lágmenning í boði þar. Sýndi þeim Meet the Feebles sem féll nú ágætlega í kramið. Þeir flúðu hins vegar allir þegar ég reyndi að sýna þeim wrestling myndina Ready to Rumble.




Að finna Jesú Krist

Halelújapakk talar oft um hversu yndislegt það sé að finna Jesú Krist. Margir sem hafa verið í sukki og lágmenningu hafa fundið Jesú og sagt að það hafi bjargað sér.

Nú getið þið líka prófað! Þið getið bæði fundið Jesú í dópi, sukki og svínaríi og í ofbeldi og lágmenningu. Já, nú skil ég betur hvað þetta halelújapakk var að tala um.....




Fékk glaðning sendann

Jæja, nú fékk ég svona líka skemmtilegan glaðning sendann til að ná mér upp úr sjálfsvorkunninni.




Sjálfsvorkunn

Nú er ég búinn að vera ógeðslega lengi í ógeðslega mörgum prófum og er bara rétt að jafna mig. Mér finnst bara sanngjarnt að þið getið verið skemmtileg við mig í smá stund í staðinn fyrir að ég sé skemmtilegur fyrir ykkur eins og alltaf. Vinsamlegast sendið mér fan-mail, hate-mail, athugasemdir, bull eftir sjálf ykkur eða annað viðeigandi eða skrifið í gestabókina eða umræðuhornið. Takk fyrir.




Vorum að fá hótunarbréf

Við fengum eftirfarandi hótunarbréf í tölvupósti:

"ég meina fuvak mér á ég að droepa þig ég ´læt ekki jkraajkka fucja mér ég drep ykkur"

Fyrst datt mér nú í hug að þetta væru viðbrögð við greininni hans Jóns um Fellaslömmið, og þar væri á ferðinni einhver illa menntaður, og vart skrifandi gangsta´ úr Breiðholtinu sem vildi okkur illt, kannski meira að segja einhver ólöglegur innflytjandi í einhverri mafíu þar. Við nánari athugun kom hins vegar í ljós að svo alvarlegt er málið nú ekki.

Þetta er nefnilega bara sami náunginn og sendi mér bréf um að ég ætti að "ýminda" mér hvernig væri að vera "steypaður" í bala og sökkt á hafsbotn um árið. Þá var hann víst eitthvað fúll yfir að ég væri að dissa Selfoss. Hverju hann er fúll yfir núna er ómögulegt að segja. En ég er viss um að hér er engin hætta á ferðum, mamma hans bannar honum örugglega að reyna að drepa okkur.




Sorglegt - eða kannski bara gott á hann?

Ég drullaðist loksins til að horfa á myndina Porn Star um Ron Jeremy. Voðalega var þetta sorglegt hvernig hann hamast við að reyna að komast í mainstream myndir, verða tekinn alvarlega og verða frægur fyrir eitthvað sem skiptir einhverju máli. Trúir hann því virkilega að það geti nokkurn tíman tekist? Minnir kannski á Lenoncie, he, he.....




Fellamellur, Fellamömmur og fleira pakk

Eins og flestir vita var Breiðholtið valið næst mesta skítapelisið á Íslandi (næst á eftir Selfossi auðvitað) í könnun sem gerð var hér á síðunni fyrir ekki svo löngu síðan. Það voru ekki allir jafn sáttir við það og hafa neitað að horfast í augu við sannleikann. Það hefur jafnvel komið til okkar hótunarbréf þar sem við erum vændir um lygar og að útbreiða óhróður um Breiðholtsbúa. En ég get nú sagt að við erum ekki að ljúga og þurfum ekkert að breiða út neinn óhróður um þetta fólk því orðsporið sem af þeim fer er alveg nægilega slæmt án okkar afskipta. En fyrst að fólk er að segja að ég sé að skrifa ljótt um Breiðholtspakkið þá ætla ég bara að gera það (ég er svo áhrifagjarn).

Hvað ætli sé svona vont við Breiðholtið? Til að byrja með er það fólkið. Þetta svæði er uppfullt af Fellamellum og öðru undirmálspakki. Fellamellurnar eru alveg sér þjóðflokkur. Þetta eru kvenkyns verur sem hafa komið undan undirmálskörlum og Fellamömmum. Fellamellurnar byrja strax í 8. bekk að sýna ótæpilega kynlífshegðun (sumar eru bráðþroska og byrja fyrr). Þær slefa ofan í alla stráka sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
1. eru karlkyns og
2. vilja slefa ofan í þær
Þær eru týpurnar sem eru að koma með menntaskóla dropout á grunnskólaböllin, máli sig eins og Devine á vondu trippi og hafa smakkað 10 mismunandi sæðistegundir fyrir fyrsta jólaprófið í gaggó. Þær verða óléttar 14 eða 15 ára, karlarnir nenna ekki að púkka upp á þær þegar þær byrja að blása út og fara frá þeim. Þær fara þá kasóléttar á djammið, reykja og drekka og reyna að hözla eitthvað grey sem er svo desperat að vilja stinga í ólétta ógeðslega konu sem hann hefur aldrei séð áður. Þetta er svo pakkið sem hangir á bótum allt sitt líf, sefur fram að hádegi og lætur krakkana ganga sjálfala þangað til þær nenna að drattast á fætur. Þá er gargað á börnin, kveikt í sígarettu og farið og niðrá féló að ná sér í meiri bætur. Þær hanga á Endurvinnslunni (Kaffi Reykjavík) allar helgar og hafa séð fleiri typpi en Jenna Jameson.
Finnst ykkur svo skrítið að þetta sé næst mesta skítapleis á Íslandi?!

Það sem mér finnst samt mest scary er að þetta fólk fær að kjósa! Ég er viss um að þær hafa allar kosið Sigurð Kára




Mér er ennþá illt í eyrunum

Jæja, tónleikarnir á Grand Rokk voru mikil upplifun, en það kostaði sitt því nú verða eyrun mín held ég bara að vera til skrauts í framtíðinni eftir allan þennan hávaða.

Fyrst voru brjáluðu djöflarokkararnir í Myrk. Ef einhverjir eru hardcore í þessu hér á landi þá eru það þeir. Mér tókst samt merkilega að heyra lag út úr svona dauðarokki í fyrsta sinn (það er ef maður reynir að blokka út sönginn (gargið) og látlausa trommubarsmíðina, þá er hægt að heyra að það er raunverulega verið að spila laglínu á rafmagnsgítarinn). Alla vegana þá fannst mér dauðarokkið bara mellow fín tónlist til að tjilla við, svona þegar maður er ekki enn búinn að ná sér eftir prófastressið.

Það var nú líka gaman að fylgjast með fólkinu þarna, þessari venjulegu rónaflóru sem fær póstinn sinn sendan á Grand Rokk. Það var líka mjög fyndið að sjá eina stelpu þarna sem gat ekki falið hversu lítið gaman hún hafði af dauðarokkinu, sat þarna með vinkonu sinni og var að drepast úr leiðindum. Það var nokkuð augljóst að vinkona hennar átti kærasta í Myrk og hafði dregið hana með. Síðan kom einhver amman og byrjaði að reyna við mig. Hafði þá fullgildu afsökun að ég heyrði ekki neitt í henni og slapp því billega.

Hlustaði líka aðeins á Innvortis sem virtust bara mjög léttir miðað við Myrk. Aðal band kvöldsins var síðan auðvitað Core blooming, sem fyrir sína parta stóðu sig mjög vel. Það var bara því miður ekki nógu vel stillt hjá þeim þannig að stundum t.d. heyrðist söngurinn ekki en ég held að það hafi nú ekki háð þeim það mikið að áhorfendur hafi ekki fattað hverjir voru besta bandið.




Tónleikar á Grand Rokk í kvöld

Í kvöld mun rokk.is standa fyrir heljarmiklum rokktónleikum á Grand Rokk. Þeir standa frá klukkan tíu til eitt og fram munu koma Solid I.V., Myrk, Innvortis, Whool og síðast en ekki síst Core blooming sem lengi hafa verið í samstarfi við okkur á lágmenningu.




Prófin búin

Nú eru prófin loksins búin hjá okkur og strax farið að planleggja stórverk í lágmenningu hverskonar. Fljótt munu nú taka við strangar æfingar hjá wrestling hópnum jafnframt því sem við munum leggja fram á borðið allar helstu sorahugmyndir sem við höfum fengið meðan við þurftum að vera að læra.




Fékk klámvísu senda

Jæja, það er oft sem fólk sendir mér klámvísur til að setja upp á síðunni. Það hefur hins vegar ekki verið lengi að einhver hafi sent mér klámvísu sem ekki var herfilegt drasl. Þessi kemst hins vegar inn og þið getið smellt hér til að skoða hana.




Það eru víst til fyndnir sjálfstæðismenn...

...það er allavega mjög fyndið að sjá Hannes Hólmstein reyna að sannfæra greint fólk um að kvótakerfið og frjálshyggjan séu sniðug fyrirbæri, það er GEÐVEIKT fyndið að sjá Davíð Oddsson fúlann yfir kosningaúrslitum og snilld að sjá fúlu sjálfstæðisslæðukerlingarnar reyna að halda fram að sjálfstæðisflokkurinn sé ekki að breytast í enn meiri stuttbuxnadrengjaflokk þegar Sigurður Kári og co eru að ryðjast yfir allt.




Hvernig er það annars?

Eiga sjálfstæðismenn enga skemmtilega vini eða eru þeir bara viljandi að troða öllum leiðinlegustu vinum sínum að hjá RÚV til þess að grafa undan ríkisfjölmiðlum í þágu frjálsrar fjölmiðlunar og einkavæðingar?




Nokkrar skemmtilega tilviljanir

Elín Hirst og Bogi sem stýrðu kosningasjónvarpinu eru sjálfstæðismenn (one time), þarna kom líka Hannes Hólmsteinn í viðtal til þeirra (two time). Markús Örn útvarpsstjóri er sjálfstæðismaður (three time). Gísli Marteinn sem sér um þið vitið hvað er sjálfstæðismaður (four time). Fólkið í kastljósi.... æ ég nenni þessu ekki lengur, what´s the point?




Var þetta leiðinlegasti þátturinn með Gísla Marteini nokkru sinni?

Ég veit það ekki, það er svo erfitt að segja.....





Hvernig er hægt að fíla Gísla Martein?

Af hverju er til fólk sem fílar Gísla Martein? Hvernig gat þessi hæfileikalausi, tilgerðarlegi, smjörsleikti uppi verið kosinn vinsælasti sjónvarpsmaður landsins? Hálfníræð amma mín var miður sín yfir þessari kosningu, hverslags hnignun hefði átt sér stað á smekk þjóðarinnar síðan hún var yngri.

Ég ætla að kjósa stjórnarandstöðuna, svo mikið er víst, því að alveg sama þó þeir yrðu alveg jafn spillitir og Davíð og co. ef þeir kæmust til valda, þá hljóta þeir þó allavegana að eiga skemmtilegri vini til að troða að en Gísla Martein og Hrafn Gunnlaugsson.




Gagnlegar upplýsingar

Bara fyrir þá sem vita það ekki þá eru fá fyrirbæri til í heiminum sem eru jafn alhliða óspennandi eins og yfirsetukellingarnar í HÍ




Gleðifréttir fyrir alla sanna nörda

Núna er eve tölvuleikurinn loksins kominn út frá ccp




Á að dissa þessa?

Fólk er að skrifa í gestabókina og biðja mig um að dissa vissa einstaklinga. Einn skrifaði þetta:

"Erpur þú er ömurlegur og hann ætti að hætta að rappa það færir honum ekki hann ætti að fara aftur í skóla kanski er enn mögurleiki fyrir hann að gera eitthvað úr sér........"

Svar: Mér finnst vissulega allt rapp leiðinlegt, hvort sem það kemur frá Erpi eða öðrum. En það að sletta blóði á Bandaríska sendiráðið finnst mér bæta upp allt hans rapp fyrr og síðar

Síðan fékk ég þetta:

"Hvað er málið með hann Heiðar Austman ekki heldur hann að hann sé fyndin, ég held að það sé komin tíni á að einhver segði honum það."

Svar: Því miður veit ég ekki hver þessi herra Austman er. Það fer nú svo margt fram hjá manni þegar maður býr á skítapleisi við hliðina á gömlum bóndabæ, Kópavogsmengin í Fossvogsdalnum og nær ekki einu sinni Skjá einum. Hins vegar er það rétt að það eru margir menn í þessu þjóðfélagi sem þurfa að heyra nokkur orð um hversu virkilega ófyndnir þeir eru. Þar vil ég helst telja upp Gísla Martein, Gísla Martein, Gísla Martein og svo Gísla Matein aftur.....





Bönnum offitum með lögum !

Allir vita hversu stórt vandamál offita er og hversu alvarlega fylgikvilla hún leiðir af sér, svo sem heilsubrest og almenna sjónmengun. Við Íslendingar erum því miður að verða feitari og feitari og nálgumst það æ meir að verða jafn feit og Ameríkanar. Þess vegna segi ég að við látum offitu verða ólöglega. Það verður sem sagt glæpur að vera of feitur.

Þetta verður framkvæmt þannig að allir Íslendingar verða skyldugir til að mæta í fitumælingu einu sinni á ári. Ef maður mælist ofan offitumarka er maður handtekinn og færður í sérstakt "fat-camp" fangelsi. Í fat camp fangelsunum eru fangarnir á afar orkusnauðu fæði og þurfa að púla eins og vitleysingar líkamlega.

Síðan verður fólkið líka látið vinna nauðungarvinnu í alls kyns störfum sem engir venjulegir Íslendingar vilja vinna, eins og til dæmis í fiski (en það hefur lengi verið kaldhæðin staðreynd að þrátt fyrir það að öllum Íslendingum finnist þeir of merkilegir til að vinna í fiski, þá vill einmitt svo til að sjávarútvegur er mikilvægasta tekjulind landsins). Þetta myndi þá jafnframt leysa innflytjendavandamál á Íslandi, því þá þyrftum við ekki að flytja inn útlendinga til að vinna skítverkin fyrir okkur.

Fólk væri síðan fyrst búið að afplána fangavistina þegar það mældist aftur undir offitumörkum (og ríflega það til að það kæmi nú ekki strax aftur). Það yrði líka enginn lágmarks sakhæfingaraldur fyrir offituglæpinn. Krakkar myndu bara fara í sérstakt barna fat-camp fangelsi, þar sem þau væru síðan látin vinna nauðungarvinnu í einhverskonar verksmiðjum. Þetta myndi þá líka valda því að við hefðum ódýrt verksmiðjuvinnuafl og gætum jafnvel farið í samkeppni við lönd eins og Indland, Tæland og Taiwan með slíkt. Það gæti jafnvel endað á því að það stæði "made in Iceland" á ýmsum skófatnaði í framtíðinni. Jibbíííííí.....




BARA MYND AF KALLINUM !




Komnir yfir 100.000 heimsóknir og 2.000.000 flettingar

Farið á stat serverinn okkar og sláið inn www.lagmenning.is í Server ID. Stat serverinn okkar er búinn að telja rúmlega 100 þúsund heimsóknir og 2 milljón flettingar síðan í júlí 2001. Alls ekki slæmt ef þið lítið á það að katrin.is er t.d. með 2,26 milljón flettingar á sinni síðu frá upphafi og betarokk með aðeins 0,48 milljón flettingar. Það sem meira er, þá höfum við fengið rúmlega 600 þúsund flettingar á síðustu þremur mánuðum, þannig að við getum nánast bókað að fara fram úr katrínu.is hvað varðar flettingar innan nokkurra mánaða.

Þakkir til allra þeirra sem lesa lágmenningu. Haldið bara áfram að skoða síðuna og við höldum áfram að ausa úr okkur soranum!




Útlenskar kellingar verða Íslandsmeistarar í handbolta

Í gær vann ÍBV Íslandsmeistaratitilinn í kvennahandbolta. Um það bil helmingurinn af liði ÍBV eru aðfluttir útlendingar, hinn helmingurinn Vestmannaeyingar og þeir eru auðvitað útlendingar líka. Mér finnst þetta nú reyndar bara sætt og líbó að leyfa útlendingum að vera Íslandsmeistarar. Eina sem er að er að Færeyingum er hér gróflega mismunað. Af hverju fá þeir ekki að vera með, fyrst önnur útsker sem tala bjagaða íslensku fá það líka? Fékk ekki Eivör að vera í Eurovision hjá okkur?




Leysigeislasýning!!

Ég hata leysigeislasýningar!! Ég hata þær meira en orð fá lýst. Að þurfa að horfa á svoleiðis viðbjóð í 3-5 mínútur er nóg til að gera mig brjálaðann. Samt gleymi ég alltaf að það er leysigeislashow í sal 1 í Smárabíó. Ég fór þangað í gærkvöldi að sjá X2 (sem er frábær mynd), var búinn að koma mér fyrir í táfýluangandi salnum með chokkóa fyrir framan mig og aftan og X-men nörd við hliðina á mér sem sífellt hrópaði og klappaði þegar X-menirnir geru eitthvað sem nálgaðist að vera flott.
Allavega. Áður en sýningin byrjaði slokkna ljósin og fávitarödd tilkynnir að nú sé að byrja leysigeislasýning. „HELVÍTIS!!" hugsa ég og heyri að allstaðar úr salnum heyrast stunur og pirringshljóð. Svo byrja herlegheitin. Nákvæmlega sama helvítis lagið og hefur verið frá byrjun, sömu myndirnar í byrjun allt nákvæmlega eins. Ef þú á annað borð ert að bögga fólk með því að hafa leysershow af hverju ekki að skipta um lag?! eða myndir? Nei...ekki í Smárabíó. Einhverfi savantinn sem bjó til þetta geislashow er örugglega kominn á lokaða deild á Kleppi þannig að ekki er hægt að nota hann.

Næst þegar helvítis sýningin byrjar ættu allir að búa og púa eins hátt og þeir geta! Ég mana ykkur til þess! Það vill enginn sjá þetta helvítis drasl aftur og aftur. Ef sýningin hættir ekki þegar þið búið og gargið farið þá að henda drasli í helvítis leyserdraslið sem er við hliðina á tjaldinu.
Þá kannski fatta þessir fávitar AÐ VIÐ VILJUM EKKI LEYSERSHOW!!!!!!!!!





Eldri blogg

-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)