Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!
Fallegt fólk og kosningarStjórnmálamenn á Íslandi eru sjaldan mjög fallegt fólk. Fallegt fólk sem fer út í stjórnmál hefur þá strax hagstæðan samanburð, sem það getur reynt að nota sér til að ná kjöri. Tvö dæmi um einstaklinga sem reyndu að ná kjöri aðallega út á það að vera fallegri en andstæðingar sínir voru Árni Sigfússon og Siv Friðleifsdóttir. Við vitum öll hvernig fór fyrir Árna greyinu. Kannski er ekki góð strategía að nota "ég er sætur, kjósið mig" angle ef þú ert karlmaður, eða kannski er bara ekki gáfulegt að stilla sér upp fyrir framan hakkavélina hana Ingu Sollu. Hann er allavegana í útlegð í skítapleisinu Keflavík núna, grey kallinn. Siv gekk þetta miklu betur, kannski af því hún er kvenkyns (so sue me rauðsokkur og feministar fyrir að segja þetta). "Ég er sæt, kjósið mig" strategían hennar hefur virkað fjandi vel, en hún er allavegana ennþá að beita henni. Ég skildi reyndar aldrei af hverju hún virkaði svona vel, fannst þetta alltaf bara vera gömul kelling að reyna að vera gella (myndi t.d. skammast mín ef mamma mín hefði verið svona á hennar aldri) en þá mundi ég að stórt hlutfall kjósenda er náttúrulega karlmenn yfir sextugt. Nú er hins vegar sá merkilegi atburður búinn að gerast að alveru falleg kona (ekki bara ef þú ert sextugur kall) er búin að bjóða sig fram. Þetta er auðvitað Þórey Edda Elísdóttir hjá Vinstri Grænum. Merkilegt nokk þá held ég líka bara að hún sé nokkuð klár líka (hún er að læra verkfræði). Það er sem sagt jafnvel hægt að kjósa hana út á málefni, og svo er hún líka sæt, bara svona í bónus. Mér finnst nú líka bara viðeigandi að umhverfissinaður flokkur vilji minnka svoldið sjónmengunina á Alþingi með því að koma fallegu fólki að.
posted by Rökkvi on 4/30/2003 05:58:02 PM
Helvítis prófalesturÞegar maður er í prófum þá undantekningalaust dauðleiðist manni þannig að maður hugsar upp milljón hluti sem maður ætlar að gera þegar maður loksins kemst í frí. Þegar maður svo kemst í frí á maður það síðan til að gleyma öllum þessum hlutum starx og fara bara að slappa af og slugsa, alsæll með að þurfa ekki að vera að læra lengur. Núna er ég til dæmis búinn að hugsa upp óteljandi marga heimskulega hluti til að gera í sumar. Ég er kominn með handrit að a.m.k. einni B-mynd og að nokkrum leiknum sketsjum og ég veit ekki hvað. Það sem mikilvægara er, hef ég hugsað upp ýmsar leiðir til að móðga hina ýmsu einstaklinga á netinu, sem ég ætla að spara þangað til eftir próf. Hvað mun ég standa við margt af þessu? Veit nú ekki með B-myndirnar, en þetta með dissið og móðganirnar..... þið þekkið mig nú og meðan svona fólk er ennþá til á netinu...... já bíðiði bara.......
posted by Rökkvi on 4/29/2003 02:27:24 PM
Meira miscastingJá og meðan ég man. Versta dæmi um miscasting nokkru sinni var þegar Denise Richards var látin leika kjarneðlisfræðing í "The world is not enough." Hver í fjandanum gæti trúað því að þetta airhead gæti menntað sig í einhverju - hvað þá kjarneðlisfræði. Það miscasting var verra en nokkur feitur, ógeðslegur sóðakall að leika á móti ofurmódeli. Meira segja verra og meira ósannfærandi miscast heldur en Siv Friðleifsdóttir að leika umhverfisráðherra!
posted by Rökkvi on 4/28/2003 02:56:32 PM
MiscastingÉg þoli ekki það sem kallast miscasting í kvikmyndum og sjónvarpsefni. Það er þegar leikarinn er ósannfærandi fyrir það hlutverk sem hann á að leika. Sérstaklega finnst mér óþolandi þegar geðveikt flottar gellur eru látnar vilja vera með hundljótum köllum, sem eru ekki einu sinni ríkir eða skemmtilegir til að bæta það upp. Svona eins og ef Sigurjón Kjartansson væri látinn leika þunglyndann ruslakall sem ætti kærustu leikna af Elvu Dögg Melsteð. Ja Magnús Ólafsson var nú einu sinni látinn leika á móti Eddu Heiðrúnu Bachman, þannig að maður myndi nú kannski ekkert láta sér bregða við svoleiðis. Núna eru allavegana í gangi tvær þáttarðir á RÚV sem virkilega gerast sekar um svona lagað. Önnur heitir "White teeth" eða Hvítar tennur, þar sem viðbjóðslega ljótur, feitur og leiðinlegur Pakistani var að halda við unga ljósku af flottara tagi. Hinir þættirnir eru danskir og heita Nikolaj og Julie. Þar er frekar ljótur, vemmilegur og ógeðslega leiðinlegur gaur sem reyndi með perralegum og misheppnuðum tilþrifum við sæta ljósku, sem allt í einu ákvað að hætta að berja hann frá sér og hoppa upp í fangið á honum. (Þetta er ábyggilega bara af því leikarinn er Serbi og Danir að reyna að sýna að þeir séu politically correct). Allavegna þá finnst mér þetta gott framlag, eða þannig, láta menn trúa að þó þeir séu ljótir og leiðinlegir lúðar, þá geti þeir fengið flottustu gelluna bara með því að reyna nógu mikið og lengi að káfa á henni og stalka hana, alveg sama hvað hún bregðist neikvætt við. Mér finnst vert að taka það fram að það var maður nokkur sem skrifaði langar leiðbeiningar um hvernig maður ætti ekki að gera stuttmyndir og þar tók hann meðal annars miscasting fyrir. Þar kom fram allt það sem ég er að pirrast á, auk þessarar fleygu setningar: "People can tell when you cast your insignificant other as the object of everyone´s desires." Mér finnst nú lágmark að fólk sem er að framleiða milljóna króna sjónvarpsefni geti farið eftir svona einföldum reglum.
posted by Rökkvi on 4/28/2003 02:53:04 PM
Já, niður með kirkjunaÞetta fjandans halelújapakk getur sjálft borgað fyrir eigin helgislepju. Það getur sjálft borgað prestum laun til að bulla yfir sér. Fyrir utan það þá getur það líka sjálft borgað fyrir að "mennta" prestana sína því það er engin ástæða fyrir Háskóla Íslands að halda uppi sérhæfðum lúterskum prestaskóla (undir nafninu guðfræðideild HÍ).
posted by Rökkvi on 4/27/2003 06:31:42 PM
KirkjanÉg skil ekki Ísland. Hérna er svokallað trúfrelsi en samt sem áður er hérna ríkiskirkja sem ríkið (með Sjálfstæðisflokkinn fremstann í flokki) dælir peningum endalaust í. Í Fréttablaðinu í dag er áhugaverð grein um þetta þar sem farið er yfir afstöðu stærstu flokkana til þessa máls (því miður var ekki talað við Nýtt afl en þeir eru meðal annars á móti því að grafa göng út um allt handa sveitaplebbunum). Í blaðinu kom fram að sjálfstæðisflokkurinn vildi viðhalda kristilegu siðgæði á komandi öld. Kristilegu siðgæði!? Hvað er nú það? Jújú, það til dæmis að hefna sín margfalt á þjóðum sem gerðu þinni þjóð ekki neitt, sýna fautaskap og ruddalega yfirgöngu í alþjóðamálum, drepa fólk án almennilegra réttarhalda og þar fram eftir götunum. Þetta er það sem kristilega ríkisstjórnin í USA er að gera og sér ekkert að því. Troða sínum skoðunum upp á fólk sem vill ekket með það hafa. Og þetta er þá kannski það sem sjálfstæðisflokkurinn vill gera? Hann hefur allavega ekki sýnt annað undanfarin ár en að allt sem gert sé í „ammríku" sé bara voða fínt og flott. Trúfrelsið hér er ekki nema að nafninu til. Eitt trúfélag fær margmilljón krónum meira til sín en nokkur trúfélög. Þá er ég ekki að tala um bara vegna þess að ríkiskirkjan er stærri, heldur er hlutfallslegt fjárframlag ríkisins þangað mun meira en til nokkurs annars trúfélags. Ekki fær allsherjargoði borguð laun úr ríkissjóði en hins vegar erum við að borga prestum laun. Ég vill ekki að mínir skattar fari í laun handa prestum! Ekki séns! En ég fæ engu um það ráðið. Í Fréttablaðinu kom einnig fram að það er bara einn flokkur sem þorir að hafa það á sinni stefnuskrá að aðskilja eigi ríki og kirkju og það er Frjálslyndi flokkurinn. Sami flokkur og er á móti kvótakerfinu (ég þoli það ekki heldur) og er á móti utanríkisstefnu Íslands (og þar með USA). Samfylkingin segir að það þeir séu svo heppnir að hafa presta í sínum röðum. Minnast ekkert á hvað væri gott að hafa skoðanir annara hópa. Framsókn segir bara að í lögunum standi að það eigi að passa evangelísk lútersku kirkjuna. Svo það má bara ekki ræða það að breyta því. FÍNT. Vinstri grænir hafa bara komist að þeirri niðurstöðu að vera sammála um að vera ósammála um kirkjuna. Vá...en heiðursmannlegt og frábært hjá róttæka flokknum. Það er gott að hafa flokka hérna sem vilja virkilega taka ákvarðanir sem eru þjóðinni fyrir góða.
posted by Jón Grétar on 4/26/2003 01:12:14 PM
Fórnin í því að eiga gæludýrFólk starir alltaf á mig, klikkinginn sem er alltaf úti í garði að reita gras. Ég gæti reynt að segja þeim að ég eigi naggrís sem að ég gefi grasið til að éta, en ég held ég reyni ekkert að gera þetta fólk eitthvað hræddara við mig en það er, með því að fara að yrða á það.
posted by Rökkvi on 4/25/2003 12:51:18 PM
KosningarOfboðslega er gaman að það séu að koma kosningar. Við fáum að sjá allar þessar skemmtilegu auglýsingar þar sem flokkarnir lofa því að ef við kjósum þá, þá verði landið það besta í heimi. Svo fáum við líka að sjá flokksmenn allra flokka gera sig að fífli í sjónvarpinu, bara svona til að minna okkur á að þeir gera hvað sem er fyrir völdin, er skítsama hvað þeir þurfa að gera til að ná í þau; drekka ógeð? fínt; söngla laglaus í sjónvarpinu? fínt. Bara hvað sem er sem gæti bjargað rassgatinu á þeim svo þeir fái að sitja lengur á Alþingi og ausa peningum í jarðgöng handa örfáum lúsablesum úti á skítapleisunum úti á landi.
posted by Jón Grétar on 4/24/2003 08:57:43 PM
PrófinNú eru prófin að koma og getiði hver nennir ekki að lesa undir þau. Ég vildi óska að sumarið væri komið og ég byrjaður aftur að fara með heimskar, feitar, amerískar kellingar til Kulusuk á Grænlandi. Skítt með það þó þær spyrji mig hvort þær fái að sjá isbirni í búrum, eða mörgæsir og skítt með það þó þær fari að grenja þegar þær blotna í fæturna af því að stíga í snjó. Nei, menntun er ekki tekin út kvalalaust.
posted by Rökkvi on 4/23/2003 05:40:49 PM
HúkkulaðiátÉg gerði mitt besta um páskana til að gá hvort það væri hægt að éta svo mikið húkkulaði að blóðið myndi yfirmettast af sykri og hann byrja að falla út og kristallast. Það er sennilega ekki hægt. Ég er samt að spá í að spyrja Ragnheiði Erlu Bjarnadóttur að því til að vera alveg viss....
posted by Rökkvi on 4/22/2003 01:37:08 PM
Hörður Mar er rosalega desparate fyrir athygli og býður upp á nektarmynd af sjálfum sér.
posted by Rökkvi on 4/22/2003 01:32:12 PM
ALVERU lágmenningEinhver var að skrifa þetta kjaftæði í umræðuhornið: "Getur þessi síða staðið í samkeppni við aðra lágmenningu á íslandi? Eigið þið nokkra möguleika, piltar mínir? Það hafa nær allir aðrir miðlar slegið ykkur við - fréttastofa Ríkissjónvarpsins með fréttum af því að Ron Jeremy kom til landsins; einhverjir plebbar úr Jackass fengu að æla á sviðakjamma í beinni útsendingu og nú er farið að auglýsa piss-í-buxur (e. bladderbuster) keppni á Astro. Hvernig er hægt að toppa þá ofur-lágmenningu sem felst í því að pissa í buxurnar á Astro vegna þess að maður tímir ekki að kaupa sér bjór? Ég held að það sé kominn tími á það að þið bara játið ykkur sigraða og lokið þessari síðu." Og hvað með það þótt einhver fífl séu ælandi pissandi og kúkandi á sig í beinni eða á Astró? Það slær okkur engan veginn við. Ef fólki finnst svoleiðis svo æðislega kúl, getur það bara fengið sér vinnu á elliheimili eða Kópavogshæli, og ég skal lofa ykkur að þið fáið að sjá nóg af ámigum, áskitum og ælum. Við hjá lágmenningu.is langar lítið að fara út í slíkt, höfum það frekar til góða þegar við verðum orðnir áttræðir. Það getur hver sem er skitið á sig eða drukkið sig blindafullann og pissað í bussur, og sumum tekst líka að verða frægir fyrir að hanga með Ron Jeremy, totta Bill Clinton eða eitthvað álíka aumkunarvert, en það getur ekki hver sem er gert þetta, búið til svona fallegt listaverk, samið þetta eða afhjúpað sannleikann á svona málefnalegann og rökfastann hátt. Lágmenning.is er best því að við þurfum ekki að spýja neinum líkamsvessum í sjónvarpi, eða sleikja okkur upp við lúsablesa eins og Ron Jeremy til að fá athygli, og við erum samt lang, lang öflugasta lágmenningin á landinu.
posted by Rökkvi on 4/21/2003 03:31:47 PM
Jæja þá er komið að því, tími fegurðardrottninga og söngvakeppna og svo auðvitað einhverra kosningaplebba sem lofa öllum andskotanum bara svo að þeir geti haft það betra en við í 4 ár í viðbót. En allavega þá er þetta með allar þessar fegurðarkeppnir, hvað er málið, það eru margar fallegar stelpur til en hvernig er hægt að dæma um hvað hverjum og einum finnst fallegt þetta er asnalegt... og viti menn núna eru útlendingar líka farnir að taka þátt í ungfrú Ísland, þetta eru skemmtilegir tímar framundan sérstaklega þegar við höfum erlenda fegurðardrottningu Íslands hehe allt er nú til á Íslandi sko!!!! Af hverju er ekki til hérna eins og annas staðar fegurðarsamkeppni feitra ég bara spyr? Allavegna ég ætla að halda áfram að gera ekkert. annars endilega kíkið á þetta alveg snilld
posted by Guðjón Einar on 4/19/2003 05:28:46 PM
PáskarÉg hata páskana! Mér finnst þetta aumingjalegasta afsökun fyrir fríi sem til er. Það er ekkert hægt að gera vegna þess að það eiga allir að vera heima og skammast sín fyrir það að Rómverjar hengdu frekan og leiðinlegan gyðingastrák á spýtukross fyrir tæpum 2000 árum. Svo er þetta örugglega ömurlegasti tími í heimi fyrir alla sem eru í skóla. Ég hata þetta frí allavega. Jólin eru skemmtileg, þá er maður að fagna því að vera búinn í prófum þegar fríið byrjar. Maður getur slappað af eftir próf. En páskarnir? Neinei, maður þarf að vera heima alla daga og lesa fyrir próf. Á föstudaginn langa er síðan ekki einu sinni hægt að fara út í bíó eftir að hafa ælt af leiðindum yfir bækurnar allan daginn vegna þess að ríkið bannar öllum að hafa opið! (Nema Laugarásvídeó sem eru opnir...þeir rokka!!). Það eina góða við páskana er að maður fær páskaegg og er boðinn í góðann mat heim til familíunnar. VEI!!! Ég verð feitari og get gengið í Félag feitra!! Ég er svo húkkulaði mongó glaður!! Djöfull vona ég að trúarbrögð verði bönnuð.
posted by Jón Grétar on 4/19/2003 01:00:22 PM
Come get some !Voðalegir aumingjar er þetta fólk. Ég er að guðlasta, rífja kjaft og dissa fólk út um allt hérna og ekki heyrist píp frá neinum. Ekkert hatemail, ekkert væl og engar kærur. Eruð þið svona hrædd við mig lúsablesarnir ykkar! Hvar er allt halelújapakkið með sitt væl? Of upptekin við að iðrast kannski? Ætlaði Leoncie ekki að kæra Sigurjón Kjartansson upp á fleiri milljónir fyrir ekki neitt? Síðan geri ég þetta og ekkert heyrist frá henni. Hvað er þetta síðan með Beturokk? Jón Grétar var að skrifa þetta fína innlegg "frægðarhórur" (sjá hérna neðar í blogginu) og engin viðbrögð frá Betunni. Hvað á þetta eiginlega að þýða?????
posted by Rökkvi on 4/18/2003 10:43:58 PM
Guðlast eins og vanalegaÚr því að það eru komnir páskar er tímabært að byrja að guðlasta. Ég vil bara minna ykkur á að páskarnir snúast um að borða húkkulaði, og það helst í miklu óhófi. Fyrir trúað fólk þá vil ég bara minna ykkur á að iðrast fyrir hvert skipti sem þið hafið fróað ykkur, sérstaklega ef þið voruð ekki að iðrast á meðan þið gerðuð það. Þið megið heldur ekki borða páskaegg, því þið eigið að minnast þjáningar þessa þarna gyðingagaurs með mikilmennskubrjálæðið sem var krossfestur í Palestínu einhventíman. Svo verðið þið líka að iðrast ef það verður ekki virkilega leiðinlegt hjá ykkur á föstudaginn langa. Þá ætla ég hins vegar að pratýja feitt.
posted by Rökkvi on 4/17/2003 10:35:12 PM
Hórdómurinn í JennýjuJá, hún getur ekki hætt kellingin. Núna er hún að segja að ég hafi boðist til að vera elskhuginn hennar. Svoleiðis heitir ókshyggja og kannski ímyndunarveiki líka. Ég hef heldur aldrei sagt að hún sé með flott brjóst, bara bent á þrotlausa viðleitni hennar til að sýna þau og reyna að koma þeim í tal. Jæja, kannski verð ég þá bara að bíta á jaxlinn, taka einn fyrir föðurlandið og smella í kellinguna. Hún virðist hvort eð er aldrei ætla að hætta þessu nema hún fái sýnu fram, og hún gæti nú bara verið umhverfi sínu hættuleg svona frústreruð á að fá ekki það sem hún vill. Ég legg hér málið undir lesendur síðunnar:
posted by Rökkvi on 4/16/2003 07:37:03 PM
FrægðarhórurDjöfull er ameríka óendanlega ömurlegt land. Núna er kona að fá djobb í sjónvarpi vegna þess að hún tottaði forsetann og fékk vindil upp í píkuna á sér...rosalega miklir hæfileikar. Þetta er að verða svona hérna líka reyndar. Af hverju vill ég kaupa mat sem Betarokk aulýsir? Hvaða andskotans máli skiptir það mig hvaða mat hún vill éta? Af hverju Betarokk? Hvað gerði hún svona merkilegt? Djammaði í Brussel, var grúppía og skrifaði leiðinlegt blogg, vei! Pakk
posted by Jón Grétar on 4/15/2003 01:52:38 PM
GreddukvendiÞað er augljóst að Jenný hans Harðar er vitlaus í mig, og hún kann ekkert að fela það. Hún mætti í ógeðslega fleygnum bol á Ölver og var að pissa á sig af hrifningu yfir mér þegar ég var að syngja Livin´on a prayer í kareoke. Síðan óð hún upp að mér "Hæ, Rökkvi, ég heiti Jenný..." Það var greinilegt að allt þetta diss í henni var bara til að fá athygli frá mér. Það hafa nú líka margir sagt að ég og Hörður séum líkir, þannig að kannski er hún bara með honum af því hann sé svona second best. Halló, manneskjan er að röfla eitthvað um að ég hafi glápt á brjóstin á sér þarna - já reyndu að draga meiri athygli að brjóstunum á þér, úr því þér tókst það ekki með fleygna bolnum. Síðan er hún greinilega með einhverjar voða áhyggjur af því hvað ég haldi að hún sé þung. Sorrý Jenný, en það eru mjög margir hlutir sem ég hugsa meira um en brjóstin á þér, eða líkamsþyngd þína. Og Hörður þú verður nú að fara að fá þér alveru kærustu, en ekki lifa á því að vera Rökkva-lúkkalæk, sem hirðir wannabe grúppíur frá mér.
posted by Rökkvi on 4/14/2003 06:22:12 PM
Bíð eftir að vera kærðurÉg er ennþá að bíða eftir að ónefnd manneskja kæri mig fyrir þetta
posted by Rökkvi on 4/14/2003 06:11:46 PM
Kareoke og annar ósómiEins og alltaf eftir vísindaferðir heimtaði ég að allir nördarnir kæmu í kareoke. Í þetta skipti fékk ég mínu fram og var stefnan starx tekin á Ölver þar sem við pöntuðum tafarlaust upp næstu tvo tíma af lögum (milli þess sam barþjónninn þar fór upp á svið til að syngja). Barþjónninn á Ölveri er nefnilega alltaf að taka lagið. Hann er örugglega svona gaur sem tókst ekki að meika það sem söngvari og poppstjarna og lifir enn í brostnu draumunum, he, he. Ég er allavega miklu betri að syngja en hann, og hann var ýkt öfundsjúkur. Eða kannski vildi hann bara ekkert að ég væri að syngja þarna aftur eftir síðasta skiptið sem ég var þarna (hva, eina sem ég gerði var að syngja Total Eclipse of the heart og segjast vilja tileinka það öllum strákum sem ég hefði þjappað í kakóið gegnum árin). Eftir marga góða performansa fór ég í nördapartý, þar sem ein kelling - æ, ég meina stelpa, sem er í tölvunarfræði fór tafarlaust að tjá mér hvað hana hefði oft langað til að gefa mér á kjaftinn fyrir hluti sem hún hefur heyrt mig segja (hún minntist á einhverja athugasemdir um kínverskar kellingar í því samhengi). Hún gaf mér nú samt ekki á kjaftinn í þetta skiptið, þó Katrín.is hefði verið í bakgrunninum öskrandi "slagur, slagur" allan tíman sem hún var að tala við mig. Sindri nörd vildi hinsvegar endilega koma í wrestling við mig. Hverjum dettur svoleiðis í hug - wrestling við mig, aðal frægasta sjónvarpsstjörnu wrestlerinn á landinu. Ég auðvitað wrestlaði hann í hnút á nokkrum sekúndum, og tókst meira að segja að gera það án þess að brjóta nein húsgögn heima hjá honum. Eftir að vaða síðan gegnum allar epillugelgjurnar sem nýkomnar voru af Scooter, rakst ég á gamla grunnskólafélaga á Celtic Cross. Þar var mikið rætt um hver hefði lagt hvern í einelti í Snælandsskóla í gamladaga og hverjir af gömlu skólafélugunum væru búnir að fitna mest, fá mestan skalla og verða mestu píkuþrælarnir. Það var samt best þegar einn gaur játaði fyrir einni stelpu að hann hefði séð brjóstin á henni í 10.bekk: "Manstu ekki eftir gatinu sem var hægt að kíkja í gengum......" He, he, kannski ekki svo hræðilegt, nema hann þurfti endilega að segja þetta: "Þau voru nú stærri í gamla daga".....
posted by Rökkvi on 4/13/2003 06:13:36 PM
Nýir sketsjarNú eru komnir 6 sketsjar í viðbót á síðuna. Smellið hérna til að fara á sketsja síðuna.
posted by Rökkvi on 4/13/2003 03:49:19 PM
Kareoke dauðans - afturNú var aftur kareoke hjá mér og nördunum. Ég er bara svo ónýtur í dag að ég meika ekki að segja frá því fyrr en á morgun. Get ekki hugsað meira en eina setningu í einu (mjög takmarkandi þegar maður ætlar að gefa af sér einhverja ritsnilld). Hitti annars loksins hana Jennýju hans Harðar. En það er einmitt hún sem hefur verið að rífa sig hvað mest við mig upp á síðkastið. Ég veit nú ekki hvort ég er til í að trúa því að hún sé bara 67 kg eins og hún segir (he, he) en þau virðast henta hvoru öðru. Það er líka eins og sagt er: "there´s someone for everyone."
posted by Rökkvi on 4/12/2003 07:53:53 PM
Smá breytingar á síðunniEins og þið sjáið kannski hafa orðið smá breytingar á lágmenningu.is. Ég breytti letrinu á dálkunum (undirsíðuflokkunum) hérna til vinstri. Þetta er reyndar allt of lítið letur, en ég mun breyta því fljótlega og stækka þetta. Þarna er líka kominn inn nýr dálkur "Sketsjar" sem inniheldur sketsjana sem við erum búnir að taka upp. Ég er mun bráðum setja þangað inn 6 sketsja til viðbótar, sem ég tók upp nýlega. Dálkurinn "Skandall" er hins vegar horfinn, en ég er búinn að segja upp síðunni skandall.is sem ég átti og hún því horfin af netinu. Það þarf enginn að sakna hennar, því ég get alveg eins sett öll þau svífyrðilegheit sem mér detta í hug inn á lágmenningu, þarf ekki neina aðra síðu.
posted by Rökkvi on 4/11/2003 02:16:59 PM
Mig langar í svona tvífara eins og Saddam er meðDjöfullinn hvað ég myndi alltaf hafa þá með á djammið. Svo þegar leiðinlegt fólk kemur til að röfla í mér eða ljótt kvenfólk að reyna við mig þá gæti ég alltaf notað þá sem "human shield."
posted by Rökkvi on 4/10/2003 03:16:49 PM
Jenný verður sér úti um athygliHvað, Jenný bara búin að koma blogginu sínu á tilveruna. Mikið er hún desparate fyrir athygli greyið. Hörður kærastinn hennar hefur örugglega bara misst áhugann á henni, og hætt að sinna henni, eftir ég lét hann skoða tubgirl.com (varúð, ekki smella á þennan link nema þið séuð alveg viss um að þola það).
posted by Rökkvi on 4/10/2003 12:57:59 PM
Ég sökkeraði hannÞað er skemmtilegt að í sumum kommentakerfum, eins og Haloscan, getur maður skrifað inn url-ið af heimasíðunni sinni, en það sést hvergi, bara linkur sem heitir "my webpage" eða eitthvað álíka. Þetta notaði ég til að gera honum Herði illt. Ég sendi honum fake fan mail, sem hann féll náttúrulega fyrir: "Hæ, ég heiti Steinar, ég fýla síðuna þína ýkt...bla...bla.... endilega tékkaðu á heimasíðunni minni" Heimasíðan sem lág þar á bak við var hins vegar www.tubgirl.com, sem er eitthvað sem gæti spillt geðheilsu hvers sem er (ekki skoða hana). Aumingja Hörður, ég sá að hann var búinn að fjarlægja þennan komment út af síðunni sinni mjög fljótt eftir að ég setti hann inn. Sökker, ha, ha, ha....
posted by Rökkvi on 4/09/2003 12:56:42 PM
Inga Gerða Pétursdóttir...er snillingur og kvenskörungur hin mesta sem og fegurðardís. Ekki er nóg með að hún hafi unnið fegurðarsamkeppni norðurlands á föstudaginn og er því Ungfrú Norðurland heldur vann hún í Sveitaglímu Íslands sem fór fram á laugardag! Svona á kvenfólk að vera!! Enginn dreyfari heldur alvöru sveitakona! Inga Gerða! Ef þú vilt koma á wresling æfingu hjá okkur og kynna þér önnur afbrigði glímu, þá ertu velkomin!
posted by Jón Grétar on 4/07/2003 09:29:27 PM
Enn koma svífyrðingarnar frá JennýjuJú, Jenný mín það eru til kvenmenn sem hafa sagst vilja sofa hjá mér. Ég get bara ekki farið að telja þær upp hérna, hún mamma þín yrði svo sár - nei annars, sagðir þú ekki að grænlenskar vændiskonur væru ólæsar á íslensku? Hvað er þetta svo með myndina af þér sem ég spurði hvort þú vildir ekki setja upp á síðunni þinni - ég sé enga þarna (ég veit, það er dýrt að láta taka loftmynd). Ég veit ekki hvað ímynduðu KSS stelpur þú ert að tala um, en það kemur mér ekkert að óvart að Hörður skuli biðja þig um að spyrja mig að þessu, hann er alltaf að fantasera um KSS stelpur. Í MH var hann alltaf að tala um hvað hann langaði að plögga í þær, sérstaklega eina sem var kölluð Tóta tívolílurkur. KSS stelpurnar vildu bara ekki sjá Hörð, því að hann er í Fríkirkjunni, en ekki Þjóðkirkjunni eins og þær. Hörður hefur aldrei komist yfir þetta og er síröflandi um KSS kellingar, oftast í klúru samhengi. Það var farið að vera svo truflandi að ég fór að reyna að láta Hörð fá áhuga á einhverjum öðrum viðbjóði (náttúrulega ómögulegt að láta hann fá áhuga á einhverju eðlilegu) og byrjaði að koma þeim hugmyndum að hjá honum að feitar konur væru málið. Þetta virkaði greinilega eitthvað, úr því hann fann þig, en það er þó greinilegt að KSS stelpurnar eiga hug hans samt ennþá.
posted by Rökkvi on 4/07/2003 08:57:13 PM
OK, ég skal sýna þér smá meiri athygli JennýAllt í lagi þá, ég skal sýna þér smá athygli meðan hann Hörður þinn er að fitna. Ég skal meira að segja hafa fyrir því að svara kommentunum þínum. Það er afskaplega íronískt að það hefur einmitt fullt af fólki sagt hvað ég og Hörður kærastinn þinn séum líkir. Það kom meira að segja einu sinni einhver stelpa og reyndi við Hörð, og sagði við hann: "Rökkvi þú ert svo skemmtilegur" (spurðu Hörð ef þú trúir mér ekki). Varðandi það að þig langi að vera jafn kvenleg og ég: oj bjakk, ekki myndi ég sofa hjá kvenmanni sem liti nákvæmlega út eins og ég. Það er þá kannski ekki furða að þú skulir ekki hafa mynd af þér á blogginu. Vil líka benda þér á að ég á myndband af Herði þar sem hann er búinn að klæða sig upp sem bændakellingu. Ég hef sem sagt eflaust misskilið þetta með að þú sért biddsjið hans Harðar, hann er greinilega biddsjið þitt og keeellingin í ykkar sambandi. Þess vegna segist Hörður ekki vera biddsjið mitt lengur, hann getur ekki verið biddsjið hjá mörgum í einu. Hörður var nú samt biddsjið mitt gegnum menntaskólann (sannast m.a. á því að ég hafi fengið hann til að klæða sig eins og kellingu og tekið video af því).
posted by Rökkvi on 4/07/2003 12:52:03 PM
Hún þarf smá athygliHún Jenný þarf smá athygli greyið. Hörður Mar, þú verður að sinna henni betur greinilega, hún er farin út í að tala um að sofa hjá öðrum stelpum og hvaðeina. Ég hef nú allavegana lagt mitt af mörkum til að seðja athyglissvelti stelpunnar með að linka á hana, en ábyrgðin á þessu hlýtur að liggja á þér Hörður, hún er nú þegar allt kemur til alls bitsjið þitt, og bara þótt þú sért líka bitsjið mitt þýðir ekki að hún sé mitt vandamál. Þú gætir t.d. reynt að fitna eins mikið eins og þú getur, eins og henni Jennýju finnst feitt fólk æðislegt. Þá myndi hún Jenný líka verða öruggari með sambandið ykkar, því þá myndir þú náttúrulega eiga miklu minni séns í aðrar stelpur (og náttúrulega líka erfiðar með að hlaupa þær uppi). Ég veit að þetta er mikil ábyrgð Hörður, en ég hef fulla trúa á þér......
posted by Rökkvi on 4/06/2003 02:07:24 PM
XXX-men framhald komiðNú er bls.4 í XXX-men teiknimyndasögunni komin á síðuna. XXX-men er dónaleg íslensk teiknimyndasaga sem er teiknuð fyrir lágmenning.is af ungum manni að nafni Jón Grétar Gissurarson (sami og gerði stuttmyndina Grátandi api, ballett í leynum. Ekki rugla honum saman við Jón Grétar Sigurjónsson sem skrifar á lágmenningu) Smellið hér til að lesa söguna frá byrjun, eða hér til að sjá nýjustu blaðsíðuna
posted by Rökkvi on 4/06/2003 01:16:27 PM
Fallbyssufóðrið stillir sér upp....Jæja, fyrsti nóboddíinn notar sér áskorunina mína til að ná sér í athygli. Það er ung stúlka sem heitir Jenný (smella til að sjá síðuna hennar). Henni finnst ljótt að gera grín að feitu fólki greyinu, en greinilega hefur hún samt ekkert á móti því að gera grín að þroskaheftum, því þeir eru væntanlega ekki jafn "yndislegar manneskjur sem eiga það skilið að allir séu góðir við þær" eins hún segir feitt fólk vera. Ég vil sérstaklega þakka Jennýu fyrir þann áhuga sem hún hefur sýnt mínu kynlífi og mér finnst hugulsamt af henni að hafa svona miklar áhyggjur af því. Ég get samt fullvissað þig elskan mín að ég hef einmitt bara sofið hjá feitu fólki, en aldrei neinum þroskaheftum. Hlýtur það ekki að þýða að ég sé alveg jafn mikið fyrir að mismuna þroskaheftum gagnvart feitum eins og þú? Kannski eigum við þá meira sameigninlegt en þú heldur....
posted by Rökkvi on 4/05/2003 06:24:10 PM
OK, hver þorir í bloggstríð við mig???
posted by Rökkvi on 4/04/2003 02:42:47 PM
Core blooming komnir með nýtt lagSmellið bara hérna til að ná í það
posted by Rökkvi on 4/04/2003 02:41:21 PM
Ég er ekki í góðu skapi í dag, en svona getur oftast hresst mig við
posted by Rökkvi on 4/03/2003 04:24:30 PM
Nýir dómarNú fara að bætast inn nýjir dómar hér á netið, ég var að enda við að horfa á fyrstu seríuna af snilldarþáttunum af Dark Angel sem James Cameron framleiddi fyrir nokkru. Síðan hef ég líka verið að horfa á Buffy the Vampire Slayer (alveg frá fyrstu seríu) og þættina V sem margir kannast við af Stöð 2 síðan í gamla daga. Þetta snilldarsjónvarpsefni fæst náttúrulega allt í Laugarásvídeó
posted by Jón Grétar on 4/02/2003 06:06:48 PM
Hey Beta!Ekki samt hætta að dissast. You know I love it when you talk dirty to me baby!!!
posted by Rökkvi on 4/02/2003 12:27:00 PM
NördaskapurÉg leigði slagsmálaleikinn Dead or Alive 2 á Laugarásvideo í gær til að leyfa tölvunördunum vinum mínum að spila soldið. Ég eyðilaggði þar með hópverkefnið fyrir þeim Einari og Tryggva, þar sem Tryggvi neitar að hætta að spila og byrja að forrita. Ég veit ekki hvað það er sem gerir hann svona háðann leiknum, góð grafík, gott animation eða það að það sést alltaf í nærbuxurnar á kellingunum þegar þær gera háu spörkin.
posted by Rökkvi on 4/02/2003 12:25:11 PM
MisskilningurJæja, eins og svo oft áður fær Rökkvi kredit fyrir mitt skítkast. Ekki vera vond við Rökkva eingöngu, við hinir sem eigum þessa síðu megum nú líka fá smá skít ;þ En ætli ég verði nú samt ekki að biðja hana Betu greyið afsökunar ef henni fannst ég vera vondur við hana. Hún átti það víst ekkert skilið, hallærishrollurinn var víst vel meintur. Þá biðst ég bara afsökunar á þessu öllu saman, hún er víst bara ágæt inn við beinið ;)
posted by Jón Grétar on 4/01/2003 08:21:01 PM
Hérna kemur minn með málefnalegt innlegg
posted by Rökkvi on 4/01/2003 01:47:53 PM
Ég veit af hverju íslenski hænsnastofninn er í útrýmingarhættuÞað er þessum dauðarokkurum að kenna, sem eru alltaf að drepa hænur uppi á sviði.
posted by Rökkvi on 4/01/2003 01:20:09 PM
Eldri blogg
-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)
|