Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!
ÉG er alveg til í að verða frægur fyrir að vera hallærislegur......enda tel ég mig hafa mjög mikla reynslu og hæfileika á því sviði
posted by Rökkvi on 3/31/2003 05:07:30 PM
WreslingÞað er alveg hreint ótrúlegt hvað fólk er að taka sig alvarlega hérna! Ef það er rétt sem Rökkvi segir að Betarokk hafi fengið hallærishroll þegar hún sá okkur í sjónvarpinu þá veit ég eiginlega ekki hvað ég á að segja. Ef greyið manneskjan heldur að við séum að þessu af því að við séum að rembast við að vera töff, cool eða eitthvað álíka þá er nú bara eitthvað að henni! Auðvitað kemur maður ekki fram í sjónvarpi í hallærislegum búningi og setur á svið fyrirframákveðið slagsmál og heldur að það sé cool. Það er ógeðslega gaman að gera þetta, okkur finnst sjálfum fátt fyndnara en að sjá hallærislega wresling gaura þykjast vera voða töff og sjá hvernig trailer trash liðið mígur í sig af hrifningu. Erum við að reyna að vera frægir út á wresling? Nei, mér myndi aldrei detta það til hugar að vilja vera frægur fyrir wresling. Held ég að ég sé töffari af því að ég stunda wresling? Dettur ekki til hugar að halda það! Ég hef komið fram í sjónvarpi í bleikum samfestingi og látið lemja mig í hausinn með stól, ég sé ekki alveg hvað er svona töff við það. Mér finnst það hins vegar drep fyndið að sumir skuli taka andköf yfir því hvað við séum hallærislegir að vera að reyna að vera cool. Mér finnst æðislegt að fólk trúi því að við séum að gera þetta af alvöru og séum að reyna að verða big shots á Íslandi út á wresling! Djöfull er sumt fólk heimskt! Ef fólk fattar ekki að við erum að gera grín að wresling og hversu heimskulegt þetta er þá bara getur það skriðið aftur í sjálfskipuðu útlegðina sína.
posted by Jón Grétar on 3/31/2003 12:54:39 AM
Málefnaleg umræða í umræðuhorninuEf þið viljið sjá virkilega málefnalega umræðu þá skulið þið kíkja á spjallið milli mín og Beturokk á umræðuhorninu okkar
posted by Rökkvi on 3/30/2003 12:41:20 PM
Íraksmálin rædd aðeins
posted by Rökkvi on 3/30/2003 12:34:14 PM
Almennilegt útvarpsefni!Núna í sumar mun ég ásamt einum félaga mínum sjá um nokkra þætti á Radíó Reykjavík um hljómsveitina KISS. Þarna munum við fara í gegnum sögu KISS, mannabreytingarnar í bandinu gegnum tíðina, hlusta á áhrifavalda þeirra, hljómsveitir sem þeir hafa haft áhrif á, spin off bönd, cover, demo og margt margt fleira. Snillingarnir á Radíó Reykjavík tóku strax vel í þetta en það á enn eftir að ákveða hversu margir þættirnir verða en fylgist með hér ef þið viljið fá nánari upplýsingar um þetta þegar nær dregur sumri. Ef það eru einhverjir þarna úti sem eiga sjaldgæfar upptökur með KISS, demo, smáskífur og svoleiðis þá endilega látið mig vita svo hægt sé að leyfa fleiri að njóta þess, það væri gaman að fá að spila það í þættinum. Ef þig eigið eitthvað og viljið láta fleiri njóta þess sendið mér póst á jon@lagmenning.is Og látið svo boð út ganga!
posted by Jón Grétar on 3/29/2003 03:07:38 PM
BetarokkÉg hitti Beturokk á 22 í gær (en 22 er einmitt staður sem er alltaf fullur af skrítnu fólki). Hún var búin að sjá wrestling atriðið og sagði að það hefði farið hrollur um sig af því hvað þetta var hallærislegt (þeir sem hafa horft á rapp-videoíð hennar þekkja örugglega tilfinninguna). Hún trúði mér heldur ekki þegar ég sagði henni að ég væri gagnkynhneigður (er ég svona hommalegur, eða er ég bara eini gagnkynhneigði karlmaðurinn sem Beta þekkir sem hún hefur ekki sofið hjá, he, he, he).
posted by Rökkvi on 3/29/2003 01:43:24 PM
Hef ekki verið beðinn um eiginhandaráritanir ennþáÉg verð greinilega aldrei frægur út á wrestling, ég er alltaf málaður í framan eða með grímu þegar ég kem fram og enginn þekkir mig.....
posted by Rökkvi on 3/28/2003 02:53:39 PM
Snilld!
posted by Rökkvi on 3/28/2003 02:45:12 PM
Davíð notar Geir Haarde sem "human shield"He, he, Davíð sendi Geir H. í Kastljósið fyrir sig í gær, því hann þorir ekki í Ingibjörgu Sólrúnu. Geir var reyndar með góða strategíu, að reyna að grípa bara sem mest fram í fyrir frúnni, á milli þess sem stjórnendur gripu fram í fyrir þeim báðum....
posted by Rökkvi on 3/27/2003 12:59:50 PM
Tónleikar í kvöld á Grand RokkCore blooming og Oblivious Kl. 22:00 , 500 KR. INN
posted by Rökkvi on 3/27/2003 12:57:57 PM
Wrestling og aftur wrestlingFyrir þá sem höfðu gaman af wrestlinginu í @ í gær - skoðið okkar eigin wrestling video. Þetta eru video sem við höfum sjálfir tekið upp í gegnum tíðina, bæði heilir bardagar og highlight video. Wrestling bardagi I - 17MB / 3 min Wrestling bardagi II - 27MB / 5 min Hightlight video I - 3,34 MB / 45 sek Highlight video II - 3MB / 40 sek Highlight video III - 1,18 MB / 18 sek
posted by Rökkvi on 3/27/2003 10:48:34 AM
Lokaorð um þennan helvítis ÓskarJá, ok það er kannski eðlilegt að Kanar og þeirra verk fái næstum öll verðlaun á verðlaunum bandarísku akademíunnar, það er bara ekki eðlilegt að við lítum á verðlaunaafhendingu bandarísku akademíunnar sem verðlaun fyrir bestu bíómyndir/leikarar o.s.frv. í HEIMINUM. Þetta er mestmegnis bara Hollywood að hrópa húrra fyrir sjálfri sér.
posted by Rökkvi on 3/27/2003 10:44:39 AM
Enn um ÓskarinnÞað er aðeins búið að rífast um Óskarinn á foruminu okkar eftir að Rökkvi hélt fram að bara kanar gætu unnið Óskar frænda og að þeir sem ekki eru kanar séu kanasleikjur sem séu búnir að vera í Ameríku lengi. Það er svo sem að vissum hluta satt. Kanar eru þeir sem fá flest verðlaunin þarna en það er nú kannski vegna þess að þetta er verðlaunaafhending BANDARÍSKU akademíunnar og ekki skrýtið að kanar vinni þar. En verðlaunin í ár voru um margt skrýtin. Það undarlegasta var að Polanski, dæmdur barnaperri skuli hafa fengið verðlaunin fyrir bestu leikstjórn og Michael Moore skuli hafa fengið verðlaun fyrir bestu heimildarmyndina en hann er mjög gagnrýninn á bandarískt samfélag og liggur ekki á þeim skoðunum sínum. Það er líka Merkilegt að japönsk mynd skyldi vinna besta teiknimyndin, en það var myndin Spirited Away. Það er svo annað mál hvort Óskarinn verðlauni nokkru sinni það besta. Gladiator var ekki besta myndin sem kom út það árið, ekki heldur Shakpeare in Love. Gwyneth Palthrow var ekki besta leikkonan það árið, Tom Hanks er góður en er eins góður og Akademían segir? Efast um það. Svo er það hneykslið með FOTR og TTT sem sumir fá ekki nóg af því að kvarta yfir. Þessar myndir eru rosalega skemmtilegar, myndatakan og brellurnar eru hreint æðislegar og það er unun að geta loksins horft á alvöru ævintýramynd sem hefur fengið almennilegt magn af peningum í budget þannig að hún líti svona vel út. En verðskulda þessar myndir að hafa titilinn Besta mynd ársins? Mér finnst ekki. Þrátt fyrir að þær séu byggðar á frábærlega skrifaðri bók og að persónurnar í bókinni séu þéttar og heilsteiptar er það ekki svo í myndinni. Persónurnar koma ekki eins vel fram í myndinni og í bókinni, inn í myndina er bætt endalaust mikið af klisjum og ódýrum bröndurum ("no one tosses a dwarf") sem ekki voru í bókunum. Söguþráðurinn í bókunum er rosalega flókinn og spannar mörg hundruð blaðsíður, viðauka og til að skilja söguna er best að hafa lesið Hobbittan líka. Auðvitað vantar eitthvað í myndirnar, það segir sig bara sjálft. Söguþræðinum, sem hefur tugi blaðsíða til að smá saman koma í ljós og sem gefur persónum sögunnar mikinn gaum og skýrir þær almennilega út fyrir okkur, er troðið ofan í okkur. Boromir ER vondur! Skiluru það ekki!!! Aragorn ER konungurinn!!! skiluru ekkert!!! Meira að segja mongólíti getur skilið þennan söguþráð skammlaust. Nú er ég ekki að segja að mér finnist þessa myndir leiðinlegar eða leiðinlegar. Þvert á móti, þetta eru uppáhalds myndirnar mínar um þessar mundir og lang bestu ævintýramyndir sem nokkru sinni hafa verið gerðar. Sagan er mikilfengleg þrátt fyrir að hafa verið skoin við nögl, búningarnir og kvikmyndatakan er snilld eins og ég sagði áðan og brellurnar einstakar. Leikurinn er misjafn en nægilega góður. Sem sagt: frábær skemmtun en ekki endilega besta myndin.
posted by Jón Grétar on 3/26/2003 02:30:40 PM
Lágmenning með Wrestling í sjónarvpinu kl. 20:50 í kvöldEkki missa af þættinum @ í Ríkissjónvarpinu kl. 20:50 í kvöld. Þar verðum við í lágmenning.is með feikna wrestling bardaga.
posted by Rökkvi on 3/26/2003 08:58:16 AM
Okkar maður í framboðiÉg var að skoða kosningabækling Vinstri-grænna á Reykjaneskjördæmi, og hver var ekki í framboði annar en Indriði Einarsson, sem er alltaf dómari í wrestling bardögunum okkar (getið til dæmis séð hann í wrestling atriðinu okkar í @ í kvöld). Já, hann var bara skrifaður sem Háskólanemi í stærðfræði, en hefði ekki bara verið betra að skrá hann sem "fjölbragðaglímudómari" - það hefði nú eflaust getað fiskað nokkur atkvæði, he, he.
posted by Rökkvi on 3/26/2003 08:56:20 AM
Mig langaði að fara aðeins úr þessu stríðsbulli og tala um hverslags pappírspésa þjóðfélag við erum að verða. Ég lenti í þeim aðstæðum að ég þurfti að segja mig atvinnulausan eftir áramót, nýbúinn með stúdentinn og fékk ekki vinnu. En hvað um það þá læddist ég inná vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins og varð að skrá mig og þá var mér sagt að ég þyfti að fara á fund um 3vikum seinna, vá en gaman ég þurfti að bíða í 2 eða 3 vikur eftir að komast á fund sem kenndi mér að vera atvinnulaus jibbí!! allavegna það var ekki það versta. Það sem ég átti að koma með var einhverjir pappírar og skólaskírteini. Þegar ég kom með pappírana þá var allt samþykkt nema prófskírteinið mitt, ég var líka þetta hissa, því hvað segir prófskírteinið sem var stimplað um nokkrum vikum áður og blekið var varla þornað, það segir bara ekkert til um að ég hafi verið í skóla síðustu önn og ég varð að hringja í skólann og fá vottorð um það að ég hafi verið í skólanum. Ég meina hvað er að þetta var orðinn ansi þykkur bunki af pappírum og ansi margir kílómetrarnir sem ég var búin að þeysast fram og til baka um bæinn í að redda þessu og hinu bara til að fá nokkrar skitnar krónur. Ég meina hvert erum við að fara með þetta pappírsþjóðfélag!
posted by Guðjón Einar on 3/25/2003 11:01:45 PM
Til fjandans með ÓskarsverðlauninÓskarsverðlaunin hafa aldrei verið neitt annað en Hollywood að klappa sjálfri sér á bakið. Þetta er tómt prump og frat, þar sem ameríski klisjuiðnaðurinn er að glorifæja sjálfan sig. Merkilegt að einhverjir Íslendingar skuli horfa á þetta - nei annars, það er ekkert merkilegt, miðað við hvað Íslendingar eru miklar kanaslepjur. Í fyrra sást mjög greinilega hversu mikið bull þessi verðlaun eru þegar hæfileikalausa súkkulaðipíkan hún Hale Berry fékk að taka eina styttuna heim með sér (hverjum (flt.) ætli hún hafi riðið til að fá hana). Það sem var ennþá verra í fyrra var að Peter Jackson var ekki besti leikstjórinn og LOTR var ekki besta myndin. En í ár náðu þeir meira að segja að toppa þetta, með því að tilnefna Peter Jackson ekki einu sinni sem besta leikstjórann og láta einhverja dans og söngvamynd fá verðlaun fyrir bestu myndina. Peter Jackson er nefnilega ekki Kani. Talandi um prump verðlaun, þá getið þið séð annað gott dæmi um svoleiðis ef þið kíkið í "Myndbönd mánaðarins" bæklinginn. Þar hefur Myndmark veitt verðlaun fyrir bestu videoleigur ársins. Videohöllin, Bónusvideo og Aðalvideoleigan fengu öll verðlaunin því þær eru nefnilega allar í eigu formanns Myndmark. Sætt....
posted by Rökkvi on 3/25/2003 11:10:40 AM
Hér er enn ein greinin um stríðið
posted by Rökkvi on 3/24/2003 04:20:14 PM
jæja þá er allt að fara til helvítisBush hefur ákveðið að láta siðmenningu um lönd og leið og ákveðið að hundsa sameinuðu þjóðirnar og sprengja allt í loft upp, þannig að mín skoðun er sú að núna má formlega leggja öryggisráð sameinuðu þjóðanna niður þar sem það virðist gera voða lítið gagn. En hvernig vita Bandaríkjamenn að Írakar eiga einhver voða vopn er það kannski eitthvað sem BNA menn hafa látið Írakana hafa, þeir hafa kannski litið á pöntunina frá Írökum og sagt þetta. Mér finnst þetta aðeins og brátt hjá BNA mönnum það á að leyfa þeim allavegna að fá smá séns.
posted by Guðjón Einar on 3/23/2003 10:05:15 PM
Rokkararnir okkarNú eru tvær hljómsveitir sem vinna með lágmenningu.is sem eru með lög í top 10 listanum á rokk.is. Það eru Core blooming með Know we can not og Coral með Big bang
posted by Rökkvi on 3/23/2003 11:48:57 AM
Ég þoli ekki teljarannTeljarinn sem er hérna efst á síðunni (blái hnötturinn sem þið smellið á) er helvítis mongolíti. Ef þið kíkið á stat server hringiðunnar fyrir lágmenning.is (skrifa www.lagmenning.is í server ID), þá sjáið þið að hann vantelur mjög mikið. Ok, hann telur bara heimsóknirnar á forsíðuna, en hann er samt greinilega að vantelja.
posted by Rökkvi on 3/23/2003 11:46:14 AM
HagsmunastríðiðÍ umræðunni um stríðið í Írak er mikið talað ólöglega framgöngu bandamanna, að þeir hafi ekki fengið samþykki Sameinuðu þjóðanna og að Írakar eigi örugglega engin gereyðingarvopn. Stíðið er endalust afsakað eða fordæmt á þeim rökum hvort geryðingarvopn séu til staðar en nær ekkert talað um þá hagsmuni sem bandaríkjamenn hafa þarna á svæðinu og hvaða samninga þeir hafa nú þegar gert. Alveg síðan í olíukreppunni á 8. áratugnum hafa kanar verið að byggja upp herafla í Persaflóa og mynda bandalög við hinar ýmsu olíuframleiðsluþjóðir til þess að vernda hagsmuni sína og, það sem meira skiptir, ná óbeinum yfirráðum yfir olíunni á þessum stöðum. Fram að Persaflóastríðinu 1991 voru bandaríkjamenn smá saman að styrkja stöðu sína á þessu svæði auk þess að mynda verslunarbandalög lögðu þeir einnig ríka áherslu á að Persaflóinn væri bandarískt áhrifasvæði og að árás á það svæði væri bein ógnun við bandaríska hagsmuni. Eftir árásina á Kuweit gekk hins vegar mun betur hjá könunum. Fyrr höfðu þeir aldrei fengið að hafa hermenn staðsetta í arabalöndunum en skömmu eftir stríðið voru komnar bandarískar stöðvar í Kuweit, Quatar, Sameinuðu Arabísku furstadæmin og Saudi Arabíu. Fyrir utan þessi lönd eru þeir einnig með stöð í Tyrklandi. Ef litið er á landakort sést greinilega að þarna er smá saman að koma upp keðja herstöðva í kringum Íran og Írak. Þegar kanarnir ná Írak eru þeir búnir að loka Íran inni (sem á fullt af olíu líka) og geta þrýst á þá að gera það sem kanar, nei úbbs ég meina bandalag viljugra þjóða, vilja að þeir geri. En hvað eru mikil völd fólgin í olíunni í Írak? Miðað við þær spár um hvað sé mikið óunnið í jörðu þar gera olíufræðingarnir ráð fyrir því að ef að kanarnir ráði yfir Íröskum olíulindum, óbeint yfir Saudi olíulindum og Venusuela munu þeir vera með bein eða óbein yfirráð yfir tæplega 70% af olíulindum jarðar. Það er slatti. Það verður þá möguleiki fyrir þá að hindra olíusölu til annara stórvelda sem gætu viljað byggja upp heri eða mikinn iðnað eins og Kína er að byrja á núna. Kanarnir gætu bannað sínum leppríkjum/bandamönnum/viljugu vinum að selja olíu til Kína, Rússlands eða jafnvel Evrópu og hótað viðskiptaþvingunum eða jafnvel bara komið á nýrri valdastétt. Bandarískir embættismenn hafa jafnvel sagt í sjónvarpi að það hafi oft komið til greina að koma konungsfjölskyldunni í Saudi Arabíu frá vegna þess að þeir séu ekki nægilega hlýðnir við kana...eða réttara sagt að það þjóni hagsmunum bandaríkjamanna ekki vel að hafa viðkomandi stjórn í landinu eða að núverandi stjórn sé "vagga hins illa". En er þetta ekki bara enn ein samsæriskenningin sem brjálað fólk úti í bæ er að kokka upp? Því miður virðist ekki svo vera. Þessi heimsvaldastefna bandaríkjanna er mörgum ljós en ekki er minnst á hana opinberlega. Hún byrjaði með Nixon og hefur haldið áfram alla tíð síðan, það er helst að Clinton hafi verið tiil í að slaka á klónni með þetta. Það þarf ekki annað en að skoða hvar bandarískar herstöðvar hafa verið settar upp og hvenær þá sér maður hvað er að gerast. Af hverju var bandaríkjamönnum svona mikið í mun að ráðast á Írak núna? Af hverju ekki Íran sem styður hryðjuverkastarfsemi á bandaríkin (það hefur Írak aldrei gert) eða Norður Kóreu sem beinir sprengjum sínum að bandarískum herstöðvum í Asíu og getur jafnvel náð að skjóta nokkrum vel völdum inn í Bandaríkin sjálf? Írak hefur ekki svo öflugar sprengjur og ekki svo langdrægar að bandaríkjamönnum stafi nokkur ógn af þeim.
posted by Jón Grétar on 3/22/2003 11:16:20 AM
Wrestling !!!!Svo ég tali um eitthvað annað en (hagsmuna) stríðið við Írak: Við vorum að taka upp wrestling atriðið fyrir @ í Ræktinni á Seltjarnarnesi í dag. Þetta verður massa flott, sýnt í @ næsta miðvikudag. Ræktin fær frábærar þakkir frá okkur hjá lágmenningu fyrir að leyfa okkur að taka upp í boxhringnum sínum.
posted by Rökkvi on 3/21/2003 07:37:04 PM
Er ríkissjónvarpið bara Kanasleikja?Urrg, ég var að horfa á fréttirnar í gær og viti menn. Þarna er frétt um það hvað Ísraelsmenn séu hræddir við að Írakar ráðist á þá með efnavopnum, þeir eru svo mikil fórnarlömb nefnilega. Ísraelsmenn eiga reyndar mun meira af gereyðingarvopnum en Írakar, mikið af þeim keypt fyrir fjárstyrk Bandaríkjamanna. Ísraelar ráðast líka stöðugt á Palestínumenn með ýmsum vopnum, en þeir teljast samt ekki ógn við friðinn í heiminum. Síðan er viðtal við lækni sem er að tala um hvaða skaða Írakar geti valdið með vopnunum sem þeir eiga, sérstaklega afleiðingar eitur og sýklahernaðar. Halló, það voru ekki Írakar sem byrjuðu að ráðast á. Væri ekki nær að tala um hvaða skaða Bandaríkjamenn munu valda með sínum vopnum meðan þeir eru að bomba þarna. Það væri líka kannski áhugavert að fá að heyra hvað sýkingar það mun hafa í för með sér að sprengja skólpleiðslurnar í Írak í tætlur, eins og ávallt gerist í svona loftárásum. Rúsínan í pylsuendanum var síðan landsfaðirinn Davíð í einkaviðtal eins og svo oft áður. Ég hef sjaldan heyrt eins aumkunarverð rök eins og hann kom með þarna, að reyna að slepja yfir morðæðið í Bush og co. Til dæmis var flott hjá honum að tala um harðstjóra eins og Saddam sem svelti þjóðina sína o.s.frv. Það er líka alltaf verið að tala um að Saddam sé svo vondur harðstjóri, því það sjáist nú að ungbarnadauði sé svo hár þarna. Halló, ekki að ég haldi upp á Saddam (þó að Kanar og Bretar hafi einu sinni gert það og selt honum mjög mikið af þessum ógurlegu gereyðingarvopnum í gamla daga svo hann gæti farið í stríð við Íran), en man kannski einhver að það er búið að vera viðskiptabann á Írak svo árum skiptir. Írakar mega heldur ekki flytja inn fjöldamörg lyf, því það væri hægt að nota þau í efnavopn. Fólk er kannski líka búið að gleyma því að Írak var sprengt sundur og saman og þar skilin eftir talsverð mengun af gettu hverjum. Er þá eitthvað sérstaklega skrítið að fólk sé fátækt þarna og hár ungbarandauði? Já, manni finnst það kannski skrítið ef maður er hálfviti, og það er Davíð Oddsson ekki (hann tekur nefnilega ekki eftir Bush í öllu). Gæti þá kannski bara verið að Davíð sé að segja eitthvað sem hann veit mætavel að er BULLSHIT. Ég segi nú bara við Davíð eins og Bush sagði sjálfur við Saddam: "Fool me once....shame on....eh.....eh.....shame on you .... eh..... eh..... but fool me.... ehh... can´t get fooled again."
posted by Rökkvi on 3/21/2003 07:31:43 PM
StríðsumræðurEftir stærðfræðitímann í dag spurði kennarinn okkur hvað okkur finndist um stríðið. Hann og allir nemendurnir voru á móti þessu, en hann var nú ekki alveg sáttur þegar ég sagði að þetta væri bara týpískt fyrir Kanabjánana og dissaði Ameríkana eitthvað, því kona hans og börn eru víst Ameríkanar. Þá spurði ég hann hvort hann vildi þá ekki bara nota amerísku aðferðina á mig, setja á mig viðskiptabann og mætingabann í tíma og lækka einkunnina mína. Þá hlóg hann bara og gafst upp á að reyna að tjónka við mig. Já, ég er nú ekki vanur að vera málefnalegur, en auðvitað er fullt af Könum með viti (sjá tenglana í tveimur síðustu bloggum). Ég get nú viðurkennt að það er náttúrulega engin þjóð eða þjóðfélagshópur til þar sem allir eru fábjánar (fyrir utan Selfyssinga að sjáfsögðu).
posted by Rökkvi on 3/20/2003 02:23:09 PM
Meira diss á BushTakið eftir að allar greinarnar sem var linkað á í síðasta bloggi eru eftir Ameríkana. Einn Ameríkani sem er mjög mikill andstæðingu Bush er Michael Moore. Moore hefur skrifað fjölda bóka, eins og "Stupid white men" og hægt er að fá nokkrar spólur með honum á Laugarásvideo, þar sem hann tjáir hug sinn. Hér eru skilaboð hans til Bush.
posted by Rökkvi on 3/20/2003 02:06:55 PM
Greinar um ÍraksstríðiðJón Grétar var að senda mér linka áðan á greinar sem fjalla um Íraksstríðið og eru ekki beinlínis að sleikja rassgatið á Bush. Þar sem við komum til með að fá ritskoðaðar fréttir til okkar gegnum sjónvarpið eins og alltaf þegar Kaninn fer í stríð, þá er kannski ágætt að lesa eitthvað með öðrum tón: Grein 1Grein 2Grein 3
posted by Rökkvi on 3/20/2003 10:45:18 AM
The American wayJá alltaf þegar Kanar fara í stríð er það: "To defend American lives" - þetta gætu þeir líka gert með því að banna almenna byssueign í sínu eigin landi "To defend our freedom" - ég held þeir gætu nú alveg haldið áfram að velja hvort þeir drekka kók eða pepsí þó þeir bombi ekki önnur lönd "To defend the American way" - þeir geta líka haldið áfram að éta hamborgara og deyja úr offitu án þess að fara í stríð
posted by Rökkvi on 3/19/2003 11:36:19 AM
Redneck rampage gegn Írak með Bush í fararbroddiBush lýsti því yfir að hann ætli að ráðast á Írak innan tveggja daga ef Saddam verður ekki farinn úr landi. Bush hefur náttúrulega ekkert á móti Írösku þjóðinni, og er bara að fara í stríð við Saddam, ekki fólkið í landinu. Samt vildi það einhvernveginn til að þegar pabbi hans fór síðast í stríð við Saddam kallinn, þá lifði Saddam það af, en þúsundir Íraksra borgara voru drepnir. Bush segir líka að þeir sem reyni að kveikja í olíulindum verði sóttir til saka fyrir stríðsglæpadómstól. Bush getur nefnilega skilgreint það hvað eru stríðsglæpir og það er svo sannarlega stríðsglæpur að eyðileggja það sem Bandaríkin ætla að stela af þjóðinni þinni þegar þeir ráðast á þig. Við Íslendingar getum verið stolt af því að Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson hafa lýst stuðningi sínum yfir við Bush og redneck rampagið hans. Þeir geta síðan eflaust frætt okkur um visku þessara aðgerða, sérstaklega þar sem Halldór átti einu sinni "langar samræður við Madelene Allbright" og fékk meira að segja að sitja við hliðina á Colin Powell einu sinni. Davíð getur eflaust miðlað okkur heilmikilli visku um þessi mál líka eins og hann gerði eftir árásirnar 11.sept. Þá voru víst Kanarnir búnir að útskýra alveg fyrir honum hverjir hefðu staðið á bak við "Árásina á frelsið" og hvernig þetta hefði allt gengið fyrir sig, og hverjir ættu skilið að vera sprengdir næst. Ameríkanar vita nefnilega allt best um svona mál og eru með þetta alveg á hreinu. Það var einmitt þessvegna sem einn af mönnunum í 11.september flugvélaárásunum fékk landvistarleyfi þar löngu eftir að hann var dauður......
posted by Rökkvi on 3/18/2003 07:53:52 AM
Lausn á EurovisionÉg er búinn að finna lausnina á Eurovison vandamálum okkar (að við töpum alltaf, dettum út, stelum lögum o.s.frv....) Gerum þetta bara með stæl ef við ætlum að vera með eitthvað svindl á annað borð. Það er til fullt af sætari gellum hérna á landinu en Birgitta og hver segir að þær þurfi að geta sungið? Hafið þið aldrei heyrt um Milly Vanilly? Það voru tveir hæfileikalausir súkkulaðistrákar í hommlegum fötum sem voru alltaf með feita svertingja undir sviðinu til að syngja fyrir sig. Ég segi að við sendum bara Önnu Rakel eða Írisi Hagkaupsfyrirsætu eða eitthvert viðeigandi megabeib þarna út, höfum Diddú undir sviðinu til að syngja fyrir hana, kaupum lagið af einhverjum Rúmenskum tónlistarsnillingi fyrir 3000 kall og gersigrum. Haldiði að það virki ekki? Milly Vanilly tókst þetta. Þeir fengu Grammy verðlaunin.
posted by Rökkvi on 3/15/2003 01:12:04 PM
He, heÞað er óvissuferð hjá nördum í dag, þar sem farið verður á fyllerí í sumarbúsað einhversstaðar uppí sveit. Í ferðina eru skráðir 9 strákar og einn kvenmaður. Er þetta er draumur alls kvenfólks, að fara í sumarbústaða/heitapotts fyllerí uppí sveit ein með 9 tölvunördum? Úúúúú, behave!
posted by Rökkvi on 3/14/2003 03:11:52 PM
DREPA, ÉTA, DREPA, ÉTAÞetta er æðislegur leikur þar sem maður er hákarl að háma í sig allt sem á vegi manns verður, jafnt fólk sem fiska. Takk batman.is fyrir að benda mér á þessa snilld. Þegar ég er orðinn flinkari og betri tölvunörd ætla ég að búa til svona tölvuleik með offitusjúklingi á "Eat all you can" stað í suðurríkjum Bandaríkjanna.
posted by Rökkvi on 3/14/2003 02:59:46 PM
Tónleikar í kvöld!Lágmenningarvinirnir í Ampop eru með tónleika í kvöld á Grandrokk. Tónleikarnir byrja um 22.30 og einungis 500 kr inn. Skoðið http://www.simnet.is/ampop/ þar er hægt að hlusta á tóndæmi. Komið og hlustið á góða tónlist á Grandrokk í kvöld klukkan hálf ellefu
posted by Jón Grétar on 3/13/2003 05:20:24 PM
Wrestling í @ í Ríkissjónvarpinu bráðumÁður en langt um líður munum við hjá lágmenningu koma með wrestling atriði í þættinum @ í Ríkissjónvarpinu. Sennilega verður atriðið tekið upp í næstu viku í Ræktinni á Seltjarnarnesi. Við viljum sérstaklega þakka fólkinu í Ræktinni sem voru mjög almennileg við okkur í sambandi við að gefa okkur leyfi til að taka upp atriðið í boxhringnum þeirra. Meira um þetta síðar því við munum láta vita hvernær atriðið verður sýnt.
posted by Rökkvi on 3/13/2003 08:50:47 AM
Munið að hlusta á Muzik 88.5 kl.2 í dag
posted by Rökkvi on 3/12/2003 11:08:22 AM
Lágmenning á FM 88.5 kl.2 á morgunÁ morgun hinn 12.mars kl.14.00 getið þið orðið fyrir lágmenningarsjokki með því að stilla á Muzik 88.5 þar sem ég og Jón Grétar munum koma í viðtal til Hauks (í horni). Við munum þar tjá okkur um lágmenningu og ýmsa aðra hluti og hvergi vera málefnalegir. Við munum sjálfsagt útskýra hvernig við byrjuðum, hvað þar er sem við köllum sanna lágmenningu og hvernig við höldum hennin uppi. Eins og allir vita þá var Muzik 88.5 að skipta um eigendur nýlega og breytast talsvert. T.d. eru þeir farnir að spila rokklög og lofar stöðin bara nokkuð góðu af því sem komið er. Missið allavegana ekki af þessu......
posted by Rökkvi on 3/11/2003 03:26:54 PM
Core blooming #1 á rokk.isSamstarfsmenn okkar og vinir í rokkhljómsveitinni Core blooming hafa náð fyrsta sæti á listanum yfir heitustu lögin á rokk.is (lagið sem oftast hefur verið sótt síðustu vikuna) með laginu sínu Know we can notTil hamingju Core blooming!
posted by Rökkvi on 3/11/2003 03:16:03 PM
Segðu mér að...Jæja, þrátt fyrir augljósan lagastuld og leiðinlegt lag er Birgitta á leið út til Lettlands með "lagið okkar". Við sem sagt fáum ekki að sjá Botnleðju láta alla fordönkuðu Eurovision mellurnar gera í brækurnar þegar þeir koma á svið fyrstir í keppninni. Í staðinn sjáum við litlu víkinga Pókahontas syngja og dansa fyrir framan Evrópu í svo rosalega sterílu lagi að bara að hlusta á það gerir mann fráhverfann kynlífi. Sem betur fer er hægt að slökkva á hljóðinu og horfa bara á Birgittu ;þ
posted by Jón Grétar on 3/10/2003 10:47:09 AM
Smá úttekt á útvarpsrásunumOk, ég held ég verði að tjá mig aðeins um útvarpið úr því Jón er svona duglegur við það. Ég gæti náttúrulega tekið margar blaðsíður í að tjá viðbjóð minn á FM957, nenni því bara ekki núna. Létt 96.7 er ágæt stöð ef maður er í væmnislepjufíling og vill hlusta á píkutónlist - en það er ekki sama píkutónlist og kuntutónlist og kuntutónlistin slæðist þarna inn fyrr eða síðar ef maður hlustar eitthvað á þessa stöð. Undir kuntutónlist flokkast t.d. hið viðbjóðslega fyrirbæri sem heitir boy band "tónlist." Slíkan viðbjóð meika ég ekki og ekki heldur 957 viðbjóð eins og Skítamóral, Í svörtum fötum eða Land og Syni, en slíkt vill oft poppa upp á Létt. Það er sem sagt hægt að réttlæta tilvist 96,7 en þá verður líka að nota afar vandaða röksemdafærslu. FM957 er hins vegar óréttlætanlegur viðbjóður, alveg eins og kosninga "sigur" Bush í Bandaríkjunum eða það að feitt fólk skuli fara í sund og við þurfum að sjá það nakið. Það sem ég fíla hins vegar að hlusta á eru auðvitað Radio X og Radio Reykjavík. Radio Reykjavík er næstum alltaf svipað góð og stendur vel fyrir sínu. Radio X á það til að sökka (hvað er t.d. málið með að spila vælið úr Manic Street Preachers á "Heimili hörkunnar") en kosturinn er náttúrulega að maður fær að heyra nýleg lög þar, sem er sjaldgæft á Radio Rvk. Mér fannst kellingin nú allt í lagi þannig séð, en mér er alveg sama ef hún er hætt. Stjáni stuð er hvort sem er aðal maðurinn. Ég vil samt vita hver er ábyrgur fyrir að spila skítbuxagerpið hann Kidrock þarna, svoleiðis virðist þó ekki gerast á RR.
posted by Rökkvi on 3/09/2003 05:32:21 PM
Kareoke kvöld dauðansÍ gær var vísó, party og kareoke hjá nördum. Vísó var í reiknisstofnun bakanna. Lagði bílnum í gamla kolaportsstæðinu. Eftir vísó þurftu fylliraftarnir nördavinir mínir auðvitað að fara í ríkið, fannst bjórinn sem RB spanderaði í þá víst ekki duga. Þegar við komum til baka (eftir að sinna erindum okkar og gefa Lalla Johns smá sopa í leiðinni) var búið að læsa bílinn minn inni. Ég mongóinn hafði nefnilega ekki fattað að bílastæðunum er lokað kl.7 Við sem sagt fjórir blindfullir nördar og einn edrú mongólíti hringdum á helminginn af öllum leigubílastöðum bæjarins, þangað til okkur loksins var bjargað. Þá var stefnt heim til Tryggva. Eftir mikil veðmál um hver næði að höstla þrítuga systur hans vorum við komnir út í rassgat (þar sem Tryggvi býr) og farið að vera með viðeigandi læti og ósóma. Systir hans Tryggva læsti sig víst niðri í kjallara - og frestaði þar með veðmálinu okkar um óákveðinn tíma. Sem edrú einstaklingur er maður náttúrulega trítaður eins og hóra í sambandi við að skutla öllum allt. Meðal annars út í sjoppu. Ég spurði afgreiðslugellurnar hvort það sæist á okkur að við værum tölvunördar. Þessi sætasta sagði já, hinar þögðu Þegar við loksins komumst á Ölver var búið að panta upp næstu tvo klukkutíma af lögum. Eftir endalausa bið - löngu orðnir hásir af blaðri og því að syngja með öllum misheppningunum sem tóku lagið þarna, fengum við loksins lagið okkar: Livin´ on a prayer. Og við vorum eiginlega living on a prayer að halda að við gætum tekið þetta lag. Samt vorum við betri en allir á undan okkur. Þá var bara eftir fyrir mig að taka Total Eclipse of the Heart, en hvort sem þið trúið því eða ekki, þá hef ég fengið á broddinn út á að syngja það lag í kareoke. Áður en ég tók lagið sagði ég náttúrulega "Í rassinn minn" brandarann minn og eftir sagði ég að ég vildi tileinka þetta lag öllum strákunum sem ég hefði þjappað í kakóið undanfarin ár. He, he allir karlmenn þarna inni voru skíthræddir við mig eftir það og horfðu á mig tortryggnu augnaráði. Já, ekki nóg með að þeir gætu ekki sungið - höfðu heldur engan húmor. (Ég er gagnkynhneigður og hef aldrei þjappað neitt kakó, ekki einu sinni á kvenfólki). Já, næst þegar við nördarnir förum á Ölver skulum við sko fara þangað kl.8 og panta upp öll lögin næstu fjóra klukkutímana - píkuskrækir og falskt fylleríisgaul mun þar fá uppreisn æru svo um munar.
posted by Rökkvi on 3/08/2003 05:16:09 PM
Radíó XEins og þeir muna sem hafa lesið lagmenningu í svolítinn tíma kvartaði ég mikið yfir því að Magga V hefði verið ráðin stjóri á Radíó X fyrir rétt rúmu ári. Sumir misskildu mig eitthvað og sögðu að konur gætu alveg verið stjórnendur á rokkstöðvum. Ég var, er og verð sammála því, finnst bara manneskja sem var á Létt ekki eiga heima á rokkstöð. En nú er öldin önnur og betri tíð með blóm í haga því Magga var rekin og Frosti ráðinn í hennar stað. Það er ekkert hægt að setja út á Frosta, alvöru rokkari að mínu viti og ætti að geta beint Radíó X aftur inn á alvöru rokk. Nú bíð ég bara eftir því að hann byrji með Black Metal þátt :þ
posted by Jón Grétar on 3/08/2003 10:28:28 AM
SkímóÉg hata Skítamóral, bara til að hafa það á hreinu. Og núna eru þessir menn komnir aftur til þess að eyðileggja líf mitt, eyru mín og geðheilsu. Á hlustendaverðlaunum FM 957 fékk alþjóð að vita þær sorgarfregnir að Skímó ætlaði að koma saman aftur. Það voru nú samt ekki allir jafn laf hræddir um líf sitt og heilsu því að í salnum var heill herskari FM-píka sem gargaði úr sér lungun þegar þeir komu á sviðið og tóku lagið. Þeir sögðu að þeir myndu koma saman aftur um páskana, æðislegt!! Einmit þegar ég þarf að lesa fyrir próf þarf ég að hafa áhyggjur af því líka að sjá Skímó í sjónvarpinu, heyra í þeim í útvarpinu eða sjá myndir af þeim í blöðunum! Ég bara get ekki verið undir þvílíkri pressu! Ég bið því Skítamóralinn vinsamlegast um að í minnsta kosti fresta endurkomu sinni fram yfir próftímann hjá mér. Takk
posted by Jón Grétar on 3/07/2003 07:21:01 PM
Ég fann skýringuna á þessuFeitir karlmenn mælast með lægra IQ: Hey, þetta er auðvitað bara vegna þess að mjög hátt hlutfall af þeim sem eru spikfeitir eru Ameríkanar - og þá er engin furða með IQið.....
posted by Rökkvi on 3/07/2003 02:43:26 PM
Þessi mynd á tilverunni er alveg best
posted by Rökkvi on 3/07/2003 02:17:44 PM
Lágmenning á Muzik 88.5Fyrirhugað er að við í lágmenning.is komum í viðtal til Hauks (í horni) næsta miðvikudag á FM 88.5. Meira um þetta síðar...
posted by Rökkvi on 3/06/2003 04:18:18 PM
Nei, nú er ég í alveru móðgaður!!!
posted by Rökkvi on 3/05/2003 06:35:35 PM
Eurovision fréttirÞað er að rofa til í heiminum! Loksins gerði fólk sér grein fyrir því að helvítis lagið sem vann Eurovision keppnina hérna heima fer kannski ekki út! Á visir.is er skemmtileg frétt um þetta þar sem verið er að segja að hugsanlega þurfi lagið sem var í öðru sæti að fara út í staðinn fyrir Birgittu af því að lagið hennar var stolið eða eins og þeir segja "of líkt öðru lagi". Það þýðir náttúrulega að Botnleðja kemst út fyrir íslands hönd, geta látið eins og fífl á sviðinu og rokkað almennilega! Djöfull er ég glaður með það!
posted by Jón Grétar on 3/05/2003 10:11:12 AM
Davíð Oddsson, ég býð þér vinnu á lágmenning.isÉg býð hér með Davíð Oddssyni að ganga í lágmenningu.is. Davíð er nefnilega orðinn svo helvíti duglegur að rífa kjaft og dissa fólk að ég er ólmur í að fá hann sem bloggara og pistlahöfund á síðuna. Málflutningur Davíðs ætti vel heima hérna á síðunni og félli vel inn í það sem við höfum verið að skrifa hérna upp á síðkastið. Davíð, endilega hugleiddu tilboðið mitt. Þig mun örugglega vanta eitthvað nýtt og skemmtilegt að gera eftir að Ingibjörg stelur sætinu þínu í Alþingishúsinu. Þú hefur hæfileika á þessu sviði, leyfðu þeim að njóta sín!
posted by Rökkvi on 3/04/2003 01:36:59 PM
Eftir að Katrín.is gerðist pimpinn minn.........horfir allt á bjartari veg fyrir mig í kvennamálum. Tilboðin bara streyma inn. Í gær fékk ég til dæmis símhringingar frá tveimur vændiskonum. Reyndar kom í ljós að önnur þeirra var of skyld mér til þess að ég gæti þegið það sem hún var að bjóða (fletti henni upp í nýja ættfræðigagnagrunninum). Hin var reyndar ekkert skyld mér, því hún var innflytjandi, en ég varð því miður að hætta að tala við hana í símann þegar mamma mín kom inn í herbergið. Þetta gefur manni samt nýja von og ástæðu til að fara fram úr rúminu næsta dag. Líf mitt er loksins að snúast í rétta átt.
posted by Rökkvi on 3/04/2003 08:31:18 AM
Hey, kannski höstla ég samt eftir allt!Katrín er nefnilega búin að gerast hjúskaparmiðlari fyrir mig á síðunni sinni. Katrín hefur nefnilega hjarta úr gulli og þegar hún komst að því hversu desparate ég er, ákvað hún að setja mynd af mér á síðuna sína og auglýsa mig fyrir kvenfólki á lausu. Katrín það er fallegt af þér að hjálpa manni í neyð. Ég vil reyndar vara stelpurnar við, ég er nefnilega bara tvítugur á þessari mynd. Síðan þá hef ég elst nokkuð, fengið þónokkuð af gráum hárum + það að vera örlítið bitrari í lífinu eftir fjögur ár til viðbótar af kvenmannsleysi. Ég hef nú samt ennþá nokkra kosti, reyki t.d. ekki og er líka tilbúinn í að horfa á kellingaþætti eins og Sex and the city og Friends með kvenfólki (ef það er nokkur von að ég fái að sofa hjá því, raunveruleg eða ímynduð). Ef ég fæ á broddinn gæti jafnvel verið að ég alfarið hætti að vera þessi bitri og dónalegi einstaklingur sem ég er, og hætti alfarið að vera með diss og dónaskap á þessari síðu. Ég er jafnvel að hugsa um að setja þá bara mynd af mér hérna í teletubbies búningi, taka út klámvísurnar og setja ástarljóð í staðinn. Já, ég finn að mjúki maðurinn er að brjótast út í mér. Mig langar að fara á tupperwave kynningar, og á Brúðubílinn með börnin, hlusta á Létt 96.7 og kaupa mér gróðurhús í garðinn til að geta ræktað gulrætur - allt með réttu konunni. Já, ég segi nú bara við kvenþjóðina, eins og segir í laginu: "Don´t leave me this way. I can´t survive, I can´t stay alive...without your loooooove..... so don´t leave me this waaaaaaayyyyyyy..."
posted by Rökkvi on 3/03/2003 05:06:38 PM
Vá, hún er reið!....og ég höslaði ekki neitt.....
posted by Rökkvi on 3/03/2003 04:29:24 PM
BoxiðEinhvernveginn hef ég eiginlega aldrei meikað að fylgjast með neinni íþrótt nema það sé ofbeldi eða klám í henni. Af þessu tvennu er ofbeldið reyndar mun algengara í íþróttaheiminum. Ég fylgist meðal annars talsvert með boxi. Ég veit að það er kannski rangt að leyfa mönnum að berja hvern annan í höfuðið (þó Gunnari Birgissyni finnist það vera sjálfsögð mannréttindi), en sem betur fer eru flestir atvinnuboxarar bara hálfvitar sem eiga það skilið að fá á kjaftinn hvort sem er. Þess vegna skammast ég mín ekkert fyrir að hafa mjög svo gaman af þessari íþrótt. Nú var það einmitt að gerast um helgina að Roy Jones jr. var að vinna einn af þremur "heimsmeistara" titlum í þungavigt af John nokkrum Ruiz. Það er fjandi mikið afrek, miðað við það að Jones byrjaði sem atvinnumaður í millivigt (undir 160 pundum, um það bil sú þyngd sem mjónan ég myndi lenda í ef ég væri vigtaður núna eins og ég er). Ég var ekki viss um hvort ég ætti að halda með Jones fyrir bardagann, þó ég þoli ekki John Ruiz (lélegasta, ljótasta og leiðinlegasta þungaviktarmeistara allra tíma). Roy Jones er nefnilega hálfviti. Það að vera hálfviti er reyndar eins konar trademark í þessari atvinnugrein, alveg eins og rassaskora upp úr buxunum er trademark hjá atvinnu pípulagningamönnum. Jones er reyndar ekki hálfviti vegna margra höfuðhögga, heldur meira myndi ég frekar halda af náttúrunnar hendi eða trúlegast vegna menningar (surprise - hann er Ameríkani). Jones sagði nefnilega fyrir bardagann að vegna þess að vinir hans væru að búa sig undir að hætta lífum sínum í stríði til að vernda Ameríku, að hann vildi hætta lífi sínu í hringnum gegn miklu þyngri andstæðingi. Eh.... var hann ekki að meina: "Af því að vinir mínir eru að búa sig undir að kasta sprengjum úr fjarlægð á óbreytta borgara í Írak svo að við Ameríkanar getum ráðið yfir olíunni þeirra og orðið ennþá ríkari, þá langar mig til að berja lélegasta þungviktarmeistara allra tíma í klessu og græða líka fullt af peningum, svo ég verði líka ennþá ríkari en ég er núna." Já, John Ruiz, andstæðingur Jones gerði nefnilega hræðilega vondan díl. Jones var alveg hræðilega dyntóttur í öllum samningaviðræðum, og féllst ekki á að berjast fyrr en Ruiz var búinn að samþykkja að láta Jones fá næstum alla peningana sem fengjust fyrir bardagann. Jones er sem sagt sannur Ameríkani og holdgervingur ameríska draumsins. Það eina sem var leiðinlegt fyrir Jones er að Ruiz skyldi ekki vera Arabi. - "Oh, say can you see......"
posted by Rökkvi on 3/03/2003 01:17:24 PM
Meira um stúdentakosningarJæja ætli maður verði ekki að tjá sig aðeins um kosningarnar í háskólanum. Ég var að frétta það núna áðan að Vaka "vann stórsigur" í kosningunum, fékk 5 fulltrúa af 9 í stúdentaráð og eitthvað svipað í háskólafund. H-listinn, listi óháðra frambjóðenda fékk einn fulltrúa í stúdentaráð sem mér þykir nú bara nokkuð gott miðað við að það var eiginlega engin kosningabarátta hjá þeim, bara orðið látið berast manna á milli. Það sem mér þykir hvað mest skrýtið í þessum kosningum á hverju ári er að það er alltaf talað um "stórsigur" sama hver það er sem vinnur! Þetta kann að vera vegna þess að það er bara þannig í pólitík að þeir sem vinna eru samt ennþá svo óöruggir með sig að þeir verða að reyna að sannfæra alla um að þeir séu langbestir og að hinir séu nú í raun bara skíthælar og lúserar (sem þeir náttúrulega eru ef þeir tapa). Stórsigur Vöku var þó ekki meiri en svo að það var ekki nema um helmingur kjósenda sem nennti að mæta á kjörstað. Af rúmlega 8000 nemendum í Háskóla Íslands nenntu bara 3854 að mæta á kjörstað. Í sveitarstjórnarkosningunum í haust nenntu hins vegar rúmlega 80% kjósenda að mæta á kjörstað. Af hverju ætli þetta sé? Kannski vegna þess að það skiptir ekki máli hvað þú kýst í Háskólanum, stúdentar hafa sáralítil völd, það er enginn munur á framboðunum í reynd. Manni sýnist flestir sem eru þarna í framboði vera annað hvort krumpaðir wannabe pólitíkusar eða hrokagikkir sem líta svo stórt á sig að þeir kafna næstum undan eigin egói, eða bæði. Þá er ég búinn að tjá mig um þetta...hana nú
posted by Jón Grétar on 3/02/2003 06:56:25 PM
Æ já, stúdentakosningarnarMikið hef ég lítið að segja í dag úr því ég er að minnast á stúdentakosningarnar sem voru um daginn. Ég allavegana kaus nýja Háskólalistann í stúdentaráð, því það eru bara nokkuð margir gamlir MH vinir mínir í honum. Ég gat hins vegar ekki hugsað mér að kjósa hann í Háskólafundinn líka - því það er fjandans guðfræðinemi efst þar á lista hjá þeim. Ég kýs ekki fólk sem er að læra bull til að geta síðan bullað því yfir annað fólk. Röskva hafði hins vegar verið að gefa okudrykki í Háskólabíó um daginn og ég spurði þá hvort þeir vildu ekki berjast fyrir því að LEGGJA NIÐUR helvítis guðfræðideildina. Einn húmoristinn sagðist skyldi berjast fyrir því, og fékk þar með mitt atkvæði (hann var einmitt í framboði til Háskólafundar).
posted by Rökkvi on 3/02/2003 01:48:26 PM
IroníaÁrshátíðin okkar nörda og verkfræðinema var í gær á hótel Selfossi. Er það ekki kaldhæðið að ég skuli gera stand-up debutið mitt á Selfossi, stað sem ég hef margoft úthrópað sem mesta skítapleis landsins. Já það er rétt, ég var með feitt standup fyrir liðið - allt á lægsta plani eins og mér einum er lagið. Það var einmitt mikið hitamál fyrir þessa árshátíð að Katrín.is hafði verið að dissast út í verkfræðinemana fyrir hvað þeir væru hrokafullir. Stjórnirnar í verkfræðideildunum sátu nefnilega með borgarstjóranum (heiðursgesti kvöldsins), en stjórn tölvunarfræðinema átti að sitja á öðru borði. Málið var bara að stjórnin í tölvunarfræði hafði beðið um að allir tölvunarfræðinemarnir sætu saman, þannig að þetta var allt bara misskilningur hjá Katrínu. Verkfræðinemarnir voru hins vegar ofboðslega fúlir út í okkur fyrir þetta diss hennar. Við strákarnir í tölvunarfræði vorum náttúrulega ekki sáttir við þetta - örvæntingarfullir um að líkur okkar á að hösla verkfræðigellurnar hefðu nú fallið niður í núll. Það var þá ekki nema viðeigandi að ég dissaði Katrínu í standöppinu mínu, við mikinn fögnuð áhorfenda Ef ég nú bara hefði síðan sleppt því að segja alla þessa dónabrandara sem komu þar á eftir - þá hefðum við jafnvel kannski bara átt smá séns í verkfræðigellurnar eftir allt.......
posted by Rökkvi on 3/01/2003 03:48:53 PM
Eldri blogg
-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)
|