Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!

Tek við veðmálum núna

Ég er að taka við veðmálum um það hvort ég lifi ferðina til Selfoss af. Ég hef náttúrulega engu að tapa, því ef ég tapa veðmálinu er ég náttúrulega dauður og þarf varla á peningunum að halda......






Ekki drekka ykkur of full um helgina

Það er nefnilega ýmislegt óþægilegt sem getur gerst, eins og eftirfarandi myndasyrpa sýnir:

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3




Úbbs....

Æ, úbbs ég bara rakst í lyklaborðið og skrifaði þessa linka inn aftur, alveg óvart.

FM957
FM957
RÚV
RadioX




Hættuför

Það er víst ákveðið að ég mun fara á árshátíð tölvunar og verkfræðinema. Eins og allir vita er þetta mikil háskaför, þar sem ég er mjög hataður á Selfossi eftir að Selfoss fékk smá umfjöllun á síðunni. Ótalmörg hótunarbréf bárust í kjölfarið. Verst þykir mér þó að vita af stóru gengi homma þarna sem ganga undir nafninu Mafía Slefoss, og segjast ætla að taka í lurkinn á mér við fyrsta tækifæri. Ef þið misstuð af fjörinu í fyrra, eða langar til að endurupplifa þetta nostalgíunnar vegna, þá getið þið smellt á linkinn hérna fyrir neðan:

Smellið hér




Íþróttabulluskríll

Hvað er málið með íþróttabullur? Eins og það skipti virkilega máli hvort eitthvert lítið íslenskt skítalið frá einhverju litlu íslensku skítapleisi vinni eða tapi í skítaleik á móti öðru litlu plebbaliði af öðru skítapleisi. Er ekki hægt að finna betri ástæðu til að slást en það? Þegar ég var lítill þá barði ég t.d. alltaf jafnaldra mína sem sögðu að það væru tígrisdýr í Afríku. Kennurunum í skólanum fannst það ekki góð ástæða, en mér finnst hún samt talsvert betri en það að einhver haldi með öðrum tuðruspörkurum eða handboltabrussum en þú sjáflur.




Íþróttabullur

Það hlaut að koma að því að einhver snillingurinn færi að herma eftir gáfumönnunum í Bretlandi og gerast íþróttabulla. Það gerðist um helgina á leik HK og Aftureldingar þegar einn miður gáfaður maður í aðdáendahópi Aftureldingar réðst á HK-ing af því að Afturelding var að tapa! Þetta var maður sem var svona um það bil 25 ára ssem réðst á 14 ára strák bara af því að hann hélt með öðru handboltaliði en hann! Svo þegar aðrir áhorfendur reyndu að skerast í leikinn komu vinir hans og fóru að lemja þá sem voru að stilla til friðar! FÍFL!

Það er búið að vera nokkuð fjörug umræða um þetta á netinu og hinar ýmsu tillögur að refsingum fyrir bullurnar en engin sem mér finnst neitt sérlega góð. Mér fyndist best að raða þessum gaurum í markið og láta svo alla handboltakappana dúndra í þá! Það væri góð lexía fyrir þá...svo væri líka svo helvíti gaman að sjá þá væla þarna í markinu :þ




Tyson hringekjan

Þó Mike Tyson sé búinn að hegða sér eins og hálfviti síðustu daga, sleppa æfingum og láta tattóvera sig í framan, tók það hann ekki nema 49 sekúndur að fletja út Clifford Etienne. Einhverjar spekúlasjónir eru um að gera raunveruleikaþátt í sjónvarpi þar sem einhverjir plebbar af götunni læra að boxa, og berjast um það sín á milli hver megi síðan fara í Tyson. Öhhhh....Gummunduuuuhhh.... Ef Tyson getur sækópaþþast og spassast út um allt, ekki æft sig og látið tattóvera á sér andlitið og samt valtað yfir atvinnu boxara, sem telst vera a.m.k. með 30 bestu þungaviktarboxurum heims - hvað er þá spennandi við að sjá hann á móti einhverjum alþýðuplebba?




öhhh

Það á að halda árshátíð tölvunar og verkfræðinema á Selfossi. Hvað er eiginlega málið? Er verið að reyna að útiloka mig eða hvað? Vita ekki allir að ég er eftirlýstur á Selfossi eftir að ég setti þessa könnun á netið?




Metaðsókn!

Nú geta allir farið og skoðað stat server lágmenningar.is Það þarf aðeins að fara á http://livestats.vortex.is:8000/ og slá inn www.lagmenning.is í Server ID (skiljið hitt bara eftir autt). Síðan ýtið þið bara á enter til að skoða.

Ef þið sem sagt gerið þetta getið þið séð að þessi mánuður er búinn að slá aðsóknarmet lágmenningar.is svo um munar. Núna eru taldar heimsóknir komnar yfir 13.000 fyrir mánuðinn og enn er vika eftir af honum. Það sem meira er, er það að svona stat serverar vantelja alltaf einhvern slatta af heimsóknum, af ýmsum ástæðum. Þetta hef ég t.d. séð nokkrum sinnum þegar það hefur verið linkur á okkur af tilverunni og stat serverinn hefur sýnt færri heimsóknir á ákveðnum tíma heldur en komu bara af þessum eina link á sama tíma (sem er reyndar alltaf hellingur). Fyrra aðsóknarmetið okkar af því sem stat serverinn hefur talið fyrir einn mánuð var 11.098 í október í fyrra en í nóvember vorum við líka nálægt því, með 10.535
Samanlagðar flettingar á síðunni frá upphafi eru meira en 1,5 milljón.

Þeir sem vilja auglýsa ættu kannski að pæla í að hafa samband við okkur......




Einmitt það sem ég hefði sagt

Þetta er eitthvað sem halelújapakk hefði svolítið gott af að lesa, og gáfað fólk kannski gaman af. Hér er snillingurinn Richard Dawkins að svara mjög mis gáfulegum spurningum almennings. Meðal annars um trúmál. Dawkins er sennilega þekktasti þróunarfræðingur heims og er kannski þekktastur fyrir bókina sína "The Selfish Gene."




Survivor

Ég horfði á fysrtu seríuna þar sem það var gaman að henni, fólkið var að komast að því hvað það þyrfti að gera til að vinna.
En núna eru örugglega allir kanar með á hreinu hvernig á að vinna þennan leik eftir sínu höfði.

En núna eru þetta einhverjar fegurðardrottningar að spóka sig um á bikini(ekki það að það sé slæmt)

En ég horfði á smá af einum þætti og þá sá ég að nokkrir macho strákanna voru að tala um hver fengi hvaða gellu og svo framvegis þannig að núna er survivor farið að verða blanda af survivor og temptetion island.

Mín skoðun er sú það á að henda þessu liði uppá Bárðabungu og láta þau hafa einn prímus og hrísgrjón. þá sér maður hver kann að bjarga sér.




Survivor

Ekki held ég að Charles Darwin myndi gúddera nafnið á þessum þætti. Fólkið í Survivor er að jafnaði idiotar dauðans. Í síðustu seríu var api sem, eins og það heitir á þeirra máli "outsmartaði og outhustlaði" heimskingjana ítrekað með því að ræna alltaf af þeim öllum banönunum þeirra.

Núna var kallalið á móti kellingum. Eftir að vinna gott forskot í þraut dagsins, ákváðu "the most macho guys anywhere", eins og þeir sögðust vera, að skríða allir yfir trjábol í staðinn fyrir að labba bara yfir hann (jafnvægisþraut). Viti menn, en sú göndulreið og spassaskapur sem úr því hófst, kostaði þá sigurinn. Til að bæta á niðurlæginguna var meira að segja ein kellingin fötluð (heyrnalaus).

Því miður næ ég ekki Skjá einum í Fossvogsdalnum, það getur nefnilega verið ómetanleg skemmtun að sjá svona bjána klúðra málunum. En þar sem ég bý í Kópavogi, þá er nú kannski ekkert nýtt að sjá bjána klúðra málum....




Sketsjar komnir upp!!!

Ég var að bæta "sketsjum" hérna á efst á síðuna. Sketsjarnir eru lágmenningar útgáfur af nokkrum frægum auglýsingum sem allir ættu að kannast við (hljóðupptökur sem ég gerði fyrir nokkrum vikum og setti á mp3 form). Sketsjarnir verða fastir hérna efst á síðunni um tíma.
Hafið gaman af!




Core blooming rokka

Core blooming er öflug rokkhljómsveit að stíga fram á sjónarsviðið. Core blooming hóf störf árið 2000, alveg eins og lágmenning.is og er nýjasta hljómsveitin til að hefja samstarf við okkur. Tónlist Core blooming er þungarokk, sem ég myndi segja að sé oft í stíl við Incubus og kannski jafnvel Weezer.

Tékkið á laginu þeirra:

Know we can not, sem nýlega var að koma á netið.




Potentiam með massíva heimasíðu

Djöflarokkararnir og lágmenningarvinirnir í Potentiam eru nú búnir að koma sér upp meiriháttar heimasíðu, með upplýsingum um hljómsveitina og mp3 lögum. Potentiam hefur fagnað ágætri velgengni og meðal annars fengið útgáfusamning við AVANTGARDE MUSIC/WOUNDED LOVE REC fyrirtækið á Ítalíu.

Það er á helviti.com sem Potentiam síðan er hýst. En helviti.com er helvíti góð andkristileg síða, og heimili kröftugs þungarokks. Helviti.com er líka heimili trúleysingans og spekúlantsins Sigga Pönk sem nú hefur haldið margumtalaða Andkristnihátíð síðustu ár.




Prófaðu kunnáttu þína í Word




Ekki eins slæmt og halda mætti

Ég ætla ekkert að dissast út í það að senda Birgittu-spice í Eurovision. Við höfum svo oft niðurlægt okkur margfalt verr í þessari keppni. Þar má til dæmis nefna þegar Kolkrabbinn ákvað að senda Björgvin Halldórsson sem sympathy plögg, án þess að þjóðin fengi nokkuð um það að segja (því aumingja Bjöggi hafði alltaf tapað í forkeppninni), . Tvö ár duga heldur ekki til að gleyma prumpinu sem Einar Bárðar klambraði saman til að keppa fyrir hönd þjóðarinnar. Ég grenjaði af bræði í stigagjöfinni það árið, og það var bara af því að Norðmenn voru svo miklir fávitar að gefa þessu ömurlega lagi samúðaratkvæði sitt (hélt að Norðmenn hefðu meira stolt en það).

Versta niðurlæging okkar í Eurovision allra tíma var samt þegar við sendum airhead bimbóið hana Önnu Mjöll til að syngja ameríkst djasslag um hvað einhverjir Ameríkanar væru æðislegir (endilega auglýsa hvað við erum miklar Kanasleikjur fyrir hinum Evrópuþjóðunum).

Ég verð líka bara að játa á mig þá synd að hafa horft á keppnina og allt að því haft gaman af. Mér fannst skemmtilegt Meatloaf-lagið með bolluparinu (fíla svona big mamas have more fun týpur eins og Regínu). Síðan var líka gott lagið sem einhver samdi um hundinn sinn (það voru nefnilega alls engir hundar sem sungu það!). Já, ég bara fílaði þetta ágætlega í heildina, en kannski var ég bara í svona góðu skapi eftir að vera nýbúinn að horfa á Tandlæge på sengekanten......




Eurovision

Jæja þá er það orðið ljóst, við ætlum að senda litlu indjána Pókahontas wannabe-ið okkar í Eurovision. Það gat náttúrulega ekki verið að við myndum þora að senda nokkuð sem hljómar á minnsta hátt öðruvísi eða ferskt í keppnina, eins og til dæmis Botnleðju. Gat nú verið að chockóar og Plastrópíkur landsins hafi sameinast til að gera okkur enn og aftur að fífli fyrir Evrópu.




Meira um útvarp

Nú er ég búinn að dissa þær útvarpsstöðvar sem fólk á mínum aldri hlustar hvað mest á og þá er víst kominn tími til þess að segja hvað er gott í íslensku útvarpi í dag. Það er ein útvarpsstöð sem er alveg sérdeilis prýðileg á að hlusta en það er Radíó Reykjavík. Þar fær maður að heyra rokk, gamalt og nýtt hvort sem það er í tísku eða ekki. Fólki sem ekki skilur rokk og mun aldrei skilja rokk er sýndur fingurinn og útvarpsmennirnir eru óhræddir við að segja það sem þeim finnst um hvað sem er. Þar fara fremstir í flokki Mýrdalinn og Mummi úr Mótorsmiðjunni.

Þarna heyri ég Iron Maiden, Guns n´ Roses, Kiss, Metallica, Motörhead, Nirvana, Kreator og alls kyns annars konar alvöru rokk, gamalt og nýtt.

LIFI RADÍÓ REYKJAVÍK!!




Valentínusar væmni

Í dag er Valentínusardagur (ef þú er Kani). Þess vegna er ég búinn að semja sætt lítið ljóð í anda dagsins.

Roses are red,
violets are blue,
but shit is still shit if you call it poo.




Aðgangur að stat server lagmenning.is

Nú getur almenningur farið á stat server lágmenningar og skoðað ítarlegar upplýsingar um heimsóknafjölda, flettingar o.fl. á síðunni. Þessi server gefur sem sagt upp mun meiri upplýsingar en ef þið smellið á hnöttinn hérna efst á síðunni. Farið bara hingað:

http://livestats.vortex.is:8000/

sláið síðan inn www.lagmenning.is í Server ID og ýtið á login takkann




Nornir

Það voru einhverjar stelpur í @ þættinum um daginn sem sögðust vera nornir. Síðan fóru þær að væla yfir fordómum og þröngsýni Íslendinga og sögðu þá "vera á miðöldum." Nei, elskurnar það var á miðöldum sem fólk trúði á galdra - eins og þið. Finnið ykkur eitthvað betra að gera en þetta bull. Á miðöldum voru nornir líka brenndar á báli.....




Þetta er of fyndið

Þið verðið að lesa þessar athugasemdir, þetta er bara of fyndið hvernig manneskjan biður um að það sé gert grín að henni.

1) Kvenkyns gelgja er hins vegar húmorslaus kvenmaður sem er alltaf að rembast við að þykjast vera miklu þroskaðri en allir aðrir.

2) Akkúrat eitthvað sem ljót og feit manneskja myndi segja.

3) Ég fékk nú ennþá meira egóbúst þegar mér loksins tókst að skilja þessa líka flóknu list sem fótbolti er. Myndirnar hér fyrir neðan komu mér loksins í skilning.

4) "Ríða rækjum", er það ekki frekar erfitt. Ég er nú ekki með SVO lítið typpi.




Hommafótbolti

Fótbolti er ekkert annað en vond afsökun fyrir 11 karlmenn til að fara í sturtu saman, og faðmast og kyssast þegar einhver skorar mark. Hér eru sannanir:

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9




útvarpið

Satt að segja finnst mér lítill munur á Radíó X og Eff Emm. Báðar stöðvar eru með bunka af vitleysingum við hljóðnemann sem eru svo uppteknir við að leika töffara að manni verður óglatt. Það er reyndar staðreynd að Eff Emm er mun verra, bæði eru meiri fífl þar og tónlistin er miklu verri. Hins vegar finnst mér Radíó X oft lykta af gervitöffarastælum, þeir sem eru þar í útvarpinu eru svo mikið að vanda sig við að vera töffarar. En þegar útvarpsstöð er með tag line eins og "Rokk fyrir fólk" eða eitthvað álíka þá finnst mér bara erfitt að kaupa það. Svo hafa þeir verið að plögga myndum sem eru nú ekki alveg rokkaralegar. Ég held að fólk viti alveg um hvað ég er að tala.

Svo er þessi rokkaraímynd svo grunn. Það má bara spila rokkið sem er í tísku í ameríku og vitleysingarnir þar segja að við eigum að hlusta á. Ég heyrði af íslenskri hljómsveit sem fór með lag upp á Radíó X og vildu fá það í spilun. Þar var hlustað á lagið, útvarpsmógúllinn sagði að það væri gott en hentaði ekki stefnu stövarinnar af því að í laginu var minnst á ást einu sinni eða tvisvar. Það sem rokkarinn fattaði ekki var að ástin í laginu var grín, það var minnst á hana vegna þess að það var verið að gera grín að Eff Emm chockóum og plastrófólki sem hugsar ekki um annað en bílinn sinn, ljósabekki og "að vera töff". Á sama tíma var Radíó X hins vegar að spila lag með þeim ömurlega skítbuxa Kid Rock. Lagið sem var spilað heitir (held ég) Only God knows when. Þar syngur rokkarinn mikli um ástina, væmnina og gubbið af miklum móð. Þetta lag var ekki á bannlista Radíó X af því að þar var á ferð frægur og "töff gaur" sem er samþykktur af öllum "alvöru töffurum".
Þetta var reyndar áður en nýr stöðvarstjóri var ráðinn til þeirra en mér finnst tónlistin ekki hafa skánað nokkurn skapaðann hlut þarna. Góð lög inn á milli en drasl oftast.




Væl dauðans

Ég var að fá þetta bréf frá ónefndum aðila:

"Jæja, pjakkur,
Það þarf einstaklinga til að leggja fólk í einelti. Ef þú ert að fylkja liði með þeim sem gera slíkt ertu ekki Kristinn. Ég bið fyrir þér.
Blendnar kveðjur"

Þvílíkt aumingjavæl. Eins og kristið fólk leggi aldrei neinn í einelti, eða séu yfirleitt eitthvað skárri en annað fólk siðferðislega. Fyrst vil ég óska þessum manni til hamingju með að hafa fattað að ég væri kannski ekki kristinn. Síðan langar mig að útskýra hvað einelti er. Einelti er þegar hópur einstaklinga tekur sig saman um að ítrekað níðast á einhverjum einum, eða kannski þegar stór hópur gerir það sama við lítinn hóp. Þar sem ég er einstaklingur að dissa fjöldan allan af fólki (eins og t.d. halelújapakk eða FM chokkóa), þá getur það seint flokkast undir einelti. Loks vil ég benda á að þegar ég var krakki, þá voru aðrir krakkar ekkert feimnir við að reyna að hópa sig saman og bögga mig á því að ég tryði ekki á guð. Það hefði flokkast undir kristilegt fólk að stunda einelti, ef krakkafíflin hefðu ekki verið fljót að fatta að ég gat svarað fyrir mig og hætt þessu.




Jæja loksins tókst mér að fikra mig inná þetta blogg dæmi, enda komin tími til...

Allavegna ég fór á þennan link sem Rökkvi setti inn, og eins og Rökkvi sagði þá erum við allir á toppi gelgjuskeiðsins.
Hvað þetta með að skilja fótbolta þá skil ég það ekki, ég spyr hvað er það að skilja.
Karlafótboltinn: Það eru 22 leikmenn(11í hvoru liði) að elta einhverja boltatuðru um endalausan völlinn, og ekki nóg með það þá eru þessir leikmenn alltaf að nuddast utaní hvor öðrum ég meina hvað er gaman við þetta, ég spyr?

En ég held að ég hafi ekki meira um þetta að segja mér finnst Jón og Rökkvi vera búin að tala nóg um hvort við séum greindarskertir hálfvitar eða sæmilega greindir.




Fótboltabulluvæl

Ég bara get ekki orða bundist yfir þessari krumpuðu kerlingu sem Rökkvi linkaði á hérna fyrir neðan. Það er kannski ekki skrýtið að hún sé svona krumpuð. Samkvæmt blogginu hennar er hún of þung, reykir og á við áfengisvandamál að stríða. Það voru allavega niðurstöðurnar sem hún fékk á netprófunum á doktor.is.
Af þessu leiði ég þá niðurstöðu að hún sé bara krumpuð vegna þess að fíknivandamál hennar gera hana lélega í spriklinu sem hún hefur svo gaman að (fótbolta). Hún er því sjaldnar og sjaldnar að fá þá "upplifun" út úr fótboltanum sem hún fékk áður. Þetta síðan leiðir til þess að hún borðar meira, reykir meira og drekkur meira sem síðan skerðir enn meira getu hennar í sprikli.

Einnig get ég lesið út úr skrifum hennar mikið óöryggi með sína stöðu í lífinu og áhugamálið sitt þar sem hún staðhæfir að allir yfir 4 ára aldri hafi upplifað: "Taumlausa gleði og hamingju yfir skemmtanagildi og fegurð leiksins". Þetta bendir til að hún vilji alhæfa sína reynslu af fótbolta yfir á alla aðra og þegar henni er bent á að fólk hafi aðrar skoðanir en hún bregst hún við á þann hátt sem við sjáum á síðunni hennar.

Einnig segir hún að við séum "karlkyns gelgjur með ekkert milli eyrnanna" af því að við höfum haft gaman af því að skrifa um hluti sem allir hugsa um, flestir tala um en krumpaðar sprikl-kerlingar fíla ekki. Það að ekki er talað um hluti í kaffiboðum hjá gömlum frænkum eða á kerlingakvöldum hjá fótboltabreddum gerir umræðuefnið ekki gelgjulegt. Þvert á móti bendir það til að til þess að tala um það þurfi greind yfir meðallagi.
Við verðum því miður að syrgja þessa ungu ólánskonu með því að við erum nokkuð yfir meðalgreindir, Rökkvi að útskrifast úr lífefnafræði (-hey ég er löngu útskrifaður, RV), ég úr sálfræði og Gaui nýlega orðinn stúdent. Ef greind er mælikvarði á getu í skóla þá erum við hærri en meira en helmingur Íslendinga. Það er því greinilegt að við erum með eitthvað milli eyrnanna




Keeeellinga væl

Tékkið á þessu kellingavæli. Ég á sem sagt að vera gelgja með ekkert milli eyrnanna og vera fáviti af því að ég fíla ekki fótbolta. Hmmm, ég skal viðurkenna að fótbolti gat verið smá áhugaverður í gamla daga þegar Bjössi beri hljóp inn á völlinn.

Hvað varðar hitt, þá erum ég og Jón Grétar báðir 24 ára og Gaui 21, sem sagt allir á hápunkti gelgjuskeiðsins. Mig langar líka að vita hvað gerir þessa manneskju svona ofboðslega gáfaða miðað við okkur. Það er kannski það að hún skuli "skilja" fótbolta. Já, kannski hefði ég frekar átt að nota þetta umtalaða tómarúm í hausnum á mér til að reyna að skilja "þessa frábæru íþrótt", frekar en að gera gagnslausa hluti eins og útskrifast úr lífefnafræði í Háskólanum.




Sakleysið uppmálað

Jæja, verður maður ekki að játa það þegar maður hefur rangt fyrir sér? Birgitta var víst ekki að reykja á myndinni sem ég linkaði á hérna heldur var hún að stinga eitthverju öðru upp í sig. Það var góður drengur sem benti mér á þetta hérna á foruminu okkar. Reyndar skammaði hann mig líka fyrir að linka á Rottweiler hundana, sagði þá meðal annars vera homma. Mér finnst maðurinn nú bara hljóma eins og krumpaður rappari sem hefur ekki einu sinni komið efninu sínu á Rímnamín. Rottweiler eru fínir, hafa mikinn húmor og taka sig mátulega alvarlega. Svo eru þeir duglegir að stuða fólk.
Bara þótt greyin hafi lent í þeirri ógæfu að vera tilnefndir til hlustendaverðlauna Eff Emm má ekki dissa þá of mikið. Það er nú líka spiluð tónlist þarna sem ekki er beint flokkanleg sem Eff Emm hnakkapakks tónlist. Þarna hef ég heyrt spilað Red Hot Chilli Peppers, Guns n´ Roses og annað rokk þegar ég hef verið svo mikill ógæfumaður að hafa heyrt þessa stöð. Ekki eru Slash og Axl Eff Emm hnakkar! og eftir því sem ég best veit ekki hommar en þeir lentu samt í þeirri ógæfu að vera spilaðir á Hnakkatöð andskotans.

En rétt skal vera rétt...Birgitta reykir ekki á myndinn, hún er sakleysið uppmálað.




Aumingja Árni Johnsen...eða þannig

Ég verð nú bara að segja að mér finnst þetta massa gott á hann Árna. Mér finnst að maðurinn hefði bara átt að skammast sín og gera sér grein fyrir að hann átti þetta skilið þegar hann var dæmdur í héraðsdómi. En hann áfrýjaði því honum fannst þetta svo þung refsing.

Það sem mér finnst best er þegar lögfræðingurinn hans hélt því fram að Árni ætti að fá mildari dóm, því hann hefði þegar orðið fyrir svo miklu aðkasti og vondri umfjöllun eftir að það komst upp um hann. Æ, æ, af hverju taldi hann ekki líka að öll skiptin sem að Árni hefði dottið og meitt sig ættu að teljast með í að milda refsinguna, því Árni væri þegar búinn að líða svo mikið. Sorrý, en svoleiðis gildir ekki. Ef ég t.d. gef einhverjum á kjaftinn, þá fæ ég ekki mildaða refsingu bara ef einhver annar gaf mér á kjaftinn seinna.

Að lokum nokkur hint fyrir Árna áður en hann fer í steininn:

Ekki taka kassagítarinn þinn með. Það mun ekki auka vinsældir þínar meðal hinna fanganna
Ekki reyna að stela sápustykkjum sem liggja á gólfinu
Ekki halda niðri í þér andanum á meðan þú bíður eftir að Davíð komi í heimsókn




Tók auglýsingarnar niður

Jæja ef þið voruð ekki búin að sjá þær, þá voruð þið bara óheppin. Þó ég væri bara með linka á auglýsingarnar, en hefði þær ekki uppi á þessari síðu, þá veit ég ekki hvort það gætu orðið einhverjar vondar afleiðingar. Skoðið bara hinn ófögnuðinn á síðunni í staðinn.




Djammið

Ég var svo óheppinn að fara niður í bæ á laugardagskvöldið og álpaðist inn á stað sem heitir Hverfisbarinn. Nú er ég ekki maður sem hef mjög gaman af því að fara niður í bæ á eðalskemmtistaði eins og Sportkaffi, (Pl)Astró eða annað slíkt en lítill fugl hafði sagt mér að Hverfisbarinn væri staðurinn til að fara á ef maður vildi skemmta sér um helgar í Reykjavík. Þar sem ég hef óbilandi áhuga á að verða sólbekkjabrenndur, krumpaður FM-chocko sem getur vafið plastrópíkum um fingur sér fannst mér þetta vera rétti staðurinn.

Ég gekk fremur hræddur að staðnum og fann reykjarfnykinn koma þarna út. Ég hugsaði með mér að þarna inni væri nú örugglega mikið reykt og það þýðir jú að þar sé kúl fólk og maður sem er á kúl skemmtistað er auðvitað kúl líka.
Svo gekk ég inn.
Staðurinn var svo uppfullur af merkikertum og snobbpíkum að annað eins hef ég ekki séð síðan ég sá hlustendaverðlaun FM í sjónvarpinu. Uppklístraðar meikdolludræsur, viðbrenndir chockóar og ógeðslega ömurleg tónlist var það sem beið mín. Það komu náttúrulega tár í augun af því að ég hélt að það væri flott fólk þarna og kúlistar. En svo var ekki. Reykingalyktin sem ég fann var ekki af sígarettum heldur virtist þetta vera lyktin af viðbrenndum ljósabekkjatöffurum sem fylltu staðinn. Þarna dundi líka FM-hnakkatónlistarviðbjóðurinn í eyrunum á mér þannig að mér fannst ég vera staddur í einhverskonar samblandi af Selfossi og Eurovision. Hnakkar, plastrólið og viðbjóðsleg tónlist allt í bland. ÆÐI!
Þoli ekki þennan stað.

Ég hata þetta helvítis skítapleis!




Diss dagsins: FM957 chokkó R&B aflitunarljósku plastró pakk

Ég hef lengi vanrækt það að dissa þennan viðbjóð. Fyrst langar mig til að leggja nokkur orð í belg um útvarpsstöðina FM957. Sko, einu sinni voru svertingjar í Afríku að fíla sig, þangað til að þeir voru teknir fyrir þræla og fluttir til Ameríku, með tilheyrandi pytingum og ósóma. Grey svertingjarnir reyndu að gera það besta úr vondum aðstæðum. Þeir fengu bara verstu bitana til að éta, svo þeir fundu upp rifjasteikina. Þeir voru píndir til að fara í kirkju af hvítu halelújapakki, svo þeir fundu upp gospelið og sungu alltaf í kirkjunni, til að kirjuferðirnar væru ekki jafn óbærilega leiðinlegar eins og hjá hvíta fólkinu. Það var bara eitt sem svertingjarnir gerðu til að hefna sín á heiminum. Það var að finna upp rapp og R&B, viðbjóðslega tónlist sem dreifðist um heiminn eins og vírus....

Þetta hefur FM pakkið ekki fattað og finnst þetta kúl tónlist, rétt eins og fólki sem finnst kúl að reykja, þó tóbak sé eitur og viðbjóður (alveg eins og R&B).

Tónlistin er samt ekki það versta við FM, heldur útvarpsmennirnir sjálfir. Það er þó skárra að hlusta á einhvern R&B viðbjóð heldur en þá að tala. Útvarpsmennirnir þarna eru heilalausir chokkóar sem eru alltaf að röfla um hvað sé mikið "stuð" og "djamm" hjá þeim, en hafa aldrei neitt áhugavert að segja frá þessu "geðveika djammi" sínu, nema að það hafi verið "stuð" og þeir hafi verið í rosalegum "fíling." Þá finnst fólki þeir eflaust kúl, því að ef þeir segja bara nógu oft hvað þeir djömmuðu mikið og hvað það var geðveikt stuð, þá hlýtur öllum að finnast þeir aðal töffarar alheimsins og langi að vera alveg eins og þeir.

Ekki halda að ég sé búinn að tjá mig hérna, þó að það séu ekki fleiri stafir í þessari grein. Ég mun koma aftur að þessu málefni innan skamms, og þá mega R&B viðbjóðs aflituljóskurnar og "stuð gaurarnir" sem hleypa smámæltu fólki útvarp sko halda fast í brúnkukremsdollurnar sínar....




Trackernum hérna ber ekki vel saman við stat serverinn okkar af því sem komið er. Læt hann vera uppi í nokkra daga í viðbót til að prófa hvernig þetta kemur út.




Hvað varð um FM-dissið?

Í gær var geðveikt fyndin FM auglýsing á batman.is, þar sem FM957 lógóið sást, ásamt tveim nöktum hommum, með titli eitthvað á þessa leið "góð tónlist til að sleikja rassa við." Tveim klukkustundum eftir að ég sá þetta var þetta horfið. Einhver FM ljóskan hefur víst farið að væla og þetta verið fjarlægt. Mér finnst þetta nú bara réttmæt lýsing á viðbjóðnum sem FM spilar, og aldrei hefði ég tekið þetta niður ef ég réði einhverju á batman.is.




Tracker

Ég var að setja svona tracker upp hérna á forsíðunni, sem allir geta skoðað, því ég get varla leyft almenningi að fá aðgang að stat servernum hjá hringiðunni.hf sem telur fyrir lágmenningu. Það er eins og þessi drusla uppfæri sig samt ekki jafnóðum, því hún var ennþá í núlli núna áðan, þrátt fyrir að ég og vinur minn værum báðir búnir að prófa að heimsækja lágmenningu og gera refresh. Það kemur þá bara í ljós hvort trackerinn gerir eitthvað gagn.






Halelújapakkið er út um allt

Ég er sko hjartanlega sammála honum Rökkva með allt það sem hann sagði um halelújapakkið hér fyrir neðan. Ekki er nóg með að þetta pakk sé með endalausa hræsni og tvískinnungshátt heldur þarf maður að horfa upp á ömurlegheitin á hverjum einasta helvítis degi. Hér eru byggðar kirkjur "til dýrðar drottni" í staðinn fyrir að eyða peningunum í eitthvað sem máli skiptir eins og til dæmis...hmmm kamra fyrir kanínurnar í Öskjuhlíð eða sjálflýsandi klósettpappír. Það væri þó hægt að hafa gaman að þessum hlutum.

Svo er þetta fyrirbæri eins og versti kolkrabbi, maður sleppur aldrei! Ég hef reynt að segja mig úr kirkjunni en það er eins og hún haldi í mig eins og ég sé næsti Jesús svo mikið heldur hún í mig! Það er sama hvort ég hringi, sendi fax eða fari á netið ég bara get ekki skráð mig úr helvítis Þjóðkirkjunni! Er verið að segja mér að ég verði að fara eitthvert niður í bæ, bugta mig og beygja fyrir framan einhverja krumpaða skrifstofublók og útskýra fyrir henni að ég vilji ekki vera í kirkjunni?!

NEI TAKK! Út vil ek sagði maðurinn og ég líka. Á morgun skal ég...á morgun skal ég sko aldeilis!!!!!




Diss dagsins: Halelújapakk

Það er ömurlegt að sjá þessi halelújasamtök Alfa vera að pósta auglýsingum um allan Háskólann. Ef það er eitthvað sem mér finnst heimskt þá er það halelújalið. Þau eru að pósta einhverjum plakötum upp um alla veggi þar sem stendur stórum stöfum "Hver er tilgangur lífsins?" Jæja, ég skal spara ykkur ómakið og segja ykkur hver hann er: Að ríða, sjúga og sleikja, éta, græða pening og skemmta sér, helst á kostnað þeirra sem eiga það skilið. Er það nógu einfalt til að þið getið fattað?

Djöfull er ég leiður á þessu bulli um að tilgangur lífsins sé að þjóna guði eða eitthvað rugl. Halló, á ekki guð að vera almáttugur? Þarf maður að láta þjóna sér ef maður er almáttugur? Fyrir utan það að ef guð er alvitur og almáttugur, þá myndi hann vita allt sem er og var og geta breytt því ef hann vildi. Þá væri guð í rauninni bara búinn að ákveða fyrirfram að allt væri nákvæmlega eins og það er, og af hverju ætti þá nokkur að vera að pæla í því að vera guði þóknanlegur. Það hlýtur þá bara allt að vera guði þóknanlegt, úr því hann ákvað að hafa það eins og það er.

Þetta fékk KSS pakkið í MH oft að heyra. Samt var skemmtilegast að dissa eina strákinn í KSS liðinu þarna. Hann var nýbúinn að segja að ef maður iðraðist eftir að hafa syndgað, færi maður ekki til helvítis:

RV: "Hvernig er það, er ekki bannað að stunda sjálfsfróun samkvæmt biblíunni?"
Halelújagaur:"Jú"
RV: "Og ætlar þú að segja mér að þú hafir aldrei rúnkað þér?"
Halelújagaur: (treysti sér ekki til að svara, augljóslega ekki með hreina samvisku)
RV:"Og hvernig er það þá, gerir þú það þá fyrst iðrunarlaust og iðrast síðan eftirá eða iðrastu á meðan þú er að því?"
RV: "Ertu þá svona: góði guð, það er með mikilli iðrun sem ég geri þetta, slap, slap, slap?"

Því miður fékk ég aldrei neitt svar frá grey halelújagaurnum í þessum málefnalegu umræðum. Hann varð bara frekar vandræðalegur, sérstaklega þar sem svona 20 manns voru að hlusta á samtalið og fannst þetta nú bara frekar sniðugt. Kannski var hann líka bara of upptekinn við að iðrast til að svara þessu.

Hmmmm... ég trúi náttúrulega ekki á guð, en ef hann væri til þá finndist mér mjög merkilegt að einhver sem er almáttugur hefði virkilega áhuga á eins ómerkilegum og lítilfjörlegum hlut eins og mínu kynlífi og yrði virkilega miður sín ef ég tæki aðeins í lurkinn á mér.




Þetta er nú meiri steypan!




Hræsnaraeffemmskítapakk

Það er nú aldeilis hvað það er gott fólk sem börn eru látin líta upp til. Flestir sem hafa horft á Popp-Tíví eða Skjá Einn hafa séð myndabandið um hvað það sé ógeðslegt að reykja. Þar syngja okkar ástsælu söngvarar og söngkonur um hvað sígarettur séu ógeðslegar og að allir sem reyki eigi að hætta því. Þar fer fremst í flokki glimmerpíkan og eff emm bimbóið Birgitta Haukdal, dansandi um í indjánabúningnum sínum með colgate brosið sitt. Jæja, eins og má sjá á Rottweiler síðunni er hún nú ekki eins mikill engill og hún lætur okkur trúa.

Rosalega finnst mér þetta vera lýsandi fyrir hrokann í þessu Eff Emm pakki




Vanræksla

Ég hef ekki verið alveg nógu duglegur að dissa undanfarnar vikur. Nú er farið að benda mér á að ég hafi ekki dissað FM957 chokkóa R&B viðbjóðinn nógu mikið. Ég biðst afsökunar á því. Ég fullvissa ykkur um að svoleiðis fær æluna til að kitla kokið á mér í hvert sinn sem það kemur nærri mér. Ég lofa einnig að dissa þann viðbjóð á greinagóðan og tæmandi (ef það er hægt) hátt innan skamms.

Annar viðbjóður sem ég þarf að taka fyrir er þetta félag Alpha í Háskólanum, sem samanstendur af einhverju halelújapakki (að því er mér virðist aðallega gömlum KSS-ingum úr MH). Þeir munu bráðum fá að heyra það hérna á síðunni. Persónulega finnst mér að það eigi að banna svoa halelújabull á menntastofnunum, þar sem tilgangur menntastofnana á að vera að fræða fólk, ekki fá það til að trúa einhverju (bulli).





Eldri blogg

-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)