Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!

Í gær var ég í nördaherberginu (félagsaðstaða tölvunarfræðinema). Þar var múgur og margmenni og einhver var að segja lélega brandara. Þá sagði ég þeim þennan:

Einu sinni var flugmaður að fljúga farþegavél og fattaði að hann var næstum bensínlaus, flugvélin myndi bráðum hrapa og þau öll drepast. Í örvæntingu sagði hann flugfreyjunni þetta. "Ef við eigum að deyja, leyfðu mér þá að finna í síðasta sinn hvernig er að vera kona", sagði flugfreyjan og svipti sig klæðum. Flugmaðurinn reif sig samstundis úr jakkanum, henti honum í hana og öskraði "Straujaðu þetta kelling!"


Þá hlógu allir nördarnir geðveikt, nema Katrín, hún var eina stelpan þarna inni.




Gestabók komin á síðuna

Ég var að setja upp gestabók til að þið getið tjáð ykkur betur við okkur. Nú koma alltaf tveir linkar fyrir neðan öll blogg, annar heitir "svara grein" og fer á umræðuhornið okkar, hinn heitir "gestabok" og gerir ykkur kleift að skrifa í gestabókina. Nú bíðum við bara eftir að fá að heyra það óþvegið frá ykkur.




Húkkulaði!!!

Nú er ég álíka glaður og mongó með súkkulaðistykki! Ég var nefnilega að kaupa mér tulvu og er farinn að "fá lánaða" tónlist og alls konar skemmtilegheit á netinu...og líka hanga á netinu endalaust því ég er með sítengingu hérna á Görðunum :D
Á vafri mínu um netið rakst ég á aldeilis skemmtilega síðu www.anus.com Anus er stytting á American Nihilist Underground Society. Þarna eru alls konar skemmtilegir linkar á hluti eins og death metal, heavy metal, heiðingja, kirkjubrennur og alls konar skemmtilegheit.
Endilega kíkið á anusinn !




Auglýsingar

Já hún Katrín er komin með auglýsingu á síðuna sína. Það sem er sniðugt er að rétt áður en hún setti upp þessa auglýsingu þá tók ég tölvuleiki á Laugarásvideo og kom með til að leyfa nördunum í tölvunarfræðinni að prófa. Þegar ég sagðist leigja allt ókeypis á Laugarásvideo vegna þess að við auglýsum þá á lágmenningu, var hún sjokkeruð og sagðist ekki skilja að við værum með svona díl bara fyrir að auglýsa þá að síðu sem væri ekki að fá rassgat heimsóknir (hún vildi meina að við fengjum ekki rassgat heimsóknir af því að það klikka svo fáir á (týnda) hlekkinn héðan yfir á hennar síðu).

Já hún hefur þá væntanlega fattað að hún gæti grætt eitthvað á að auglýsa úr því að svona nobody afkima síða eins og okkar getur það (stat serverinn okkar hefur mest talið 11.000 heimsóknir og 270.000 hit á einum mánuði). Þakkaðu mér bara fyrir að sjá ljósið Katrín!




Skoðið þetta til að gleðjast!




Niðurstaðan úr könnuninni

Niðurstaðan úr síðustu könnun er sú að 23% lesenda síðunnar eru kvenkyns, sem er bara ágætlega hátt hlutfall miðað við hvernig síða þetta er. Ég vissi hvort sem er að allir karlmenn hafa prófað að mæla.....




Snjór

Merkilegt miðað við hvað manni finnst skítt að búa á þessu óveðursskeri hvað maður er búinn að sakna þess að fá snjó þennan vetur. Loksins kemur snjór og maður fer að hoppa í snjónum eins og einhver mongó, bara til að bleyta skóna sína í gegn (eins og manni finnst óþolandi við snjó og slabb þegar það er nóg af honum). Já merkilegt, það er nefnilega þannig með ömurlega hluti, að ef maður er búinn að hafa þá of lengi í lífi sínu þá fer maður að sakna þeirra þegar þeir eru horfnir. Þess vegna fær fólk líka heimþrá þegar það býr í útlöndum, langar bara til baka á skítapleisið, í rigninguna og kuldann, með Gísla Martein og Völu Matt í sjónvarpinu, lögin hans Einars Bárðar í útvarpinu, slabb í skónum og hor í nösinni og allan þann viðbjóð sem tilheyrir því að búa á Íslandi. Húrra!




Alltaf gaman að Playstationnördast

Í gær kom ég með tvo eðal Playstation tölvuleiki frá Laugarásvideo í félagsaðstöðu nörda (tölvunarfræðinema) til að víkka sjóndeildarhring þeirra örlítið. Við erum nefnilega með Playstation þarna þar sem nördarnir hafa verið að spila einhvern bílaleik daginn út og inn (eini leikurinn sem þeir eiga). Annar tölvuleikurinn sem ég kom með heitir Rampage og er um ofvaxin skrímsli sem mölva hús og éta fólk. Hinn heitir Knockout Kings 2001 og er boxleikur þar sem hægt er að kýla andstæðinginn í punginn og beita lúalegum brögðum til sigurs.

Eitthvað fór þetta menningarinnlegg mitt samt út um þúfur, því sami nördinn hékk í sama gamla bílaleiknum næstum allan daginn. Voðalega hlýtur hann að vera með lítiið typpi.




Typpamælingar

Um daginn var ég í málefnalegum umræðum við ágætt fólk um typpastærðir og mælingar á þeim. Ein stelpan þarna var alveg að sprynga úr hlátri yfir því að ég skyldi viðurkenna að hafa mælt hann á mér sem er kannski eðlilegt, en kærastinn hennar sór og sárt við lagði að hafa aldrei mælt sitt, ekki einu sinni dottið það í hug. Ég hélt því náttúrulega fram af mikilli festu að allir karlmenn sem segðust ekki hafa mælt á sér typpið væru að ljúga. Reyndar eru þó nokkrir menn sem ég hef hitt fyrir sem harðneita að hafa nokkurn tíman mælt. Þá er það yfirleitt í viðurvist kvenfólks og þegar kvenfólkið er farið gefa þessir hinir sömu gjarnan upp mælinguna sína - að viðbættum 2 eða 3 sentimetrum að sjálfsögðu.

Hafa allir karlmenn mælt á sér sprellann? Nú munum við hjá lágmenningu.is útkljá þetta málefni í eitt skipti fyrir öll, því okkar hlutverk er enn sem áður að varpa ljósi á sannleikann.





Typpamælingar

Hefur þú mælt á þér typpið?




Nei, ég er kvenmaður



Current Results






"Asna" legt


Ég var að lesa í skemmtilegu bókinni minni, Encyclopedia of unusual sex practices. Þar kom fram að á miðöldum var kynlíf við dýr bannað, að viðlagðri dauðarefsingu fyrir manninn sem drýgði það.... og dýrið. Einu sinn var hins vegar gerð undantekning á þessu. Það var í réttarhöldum yfir manni og asna, eftir að sá fyrrnefndi hafði víst gerst sekur um að riðlast á þeim síðarnefnda. Asninn var nefnilega sýknaður, þar sem presturinn í þorpinu og fleiri virtir menn vitnuðu fyrir hönd hans að hann væri góður og siðprúður asni, sem alltaf hefði sýnt fyrirmyndar hegðun. Niðurstaða dómsins var sem sagt að asnanum hliti að hafa verið nauðgað (hann hefði sem sagt ekki tælt asnariðilinn) og að hann væri saklaus. Maðurinn var hins vegar drepinn eins og hefð var fyrir.


Já þetta var harður heimur, þar sem menn gátu verið dregnir á tálar af búfénaði þannig að það kostaði þá lífið. (Kannski líka smá skaði fyrir fátæka bændur að missa einu kúna sína ef einhver perri fór að riðlast á henni).




Af hverju eru svona margir stjórnmálamenn lögfræðingar?

Eitthvað var verið að velta sér upp úr því af hverju stjórnmálamenn væru svona oft lögfræðingar, en mér finnst svarið nokkuð augljóst. Lögfræðingar hafa atvinnu af því að finna þá hlið á sannleikanum sem hentar þeim best, snúa upp á sannleikann, reyna að fela hann, ljúga og svo framvegis. Er þetta ekki nákvæmlega það sem stjórnmálamenn stunda hvað mest í vinnunni sinni? Þeir reyna að sannfæra kjósendur um eitthvað með öllum tiltækum brögðum, sama hversu fáránlegt það er. Þeir reyna líka alltaf að tala fyrir sakleysi sínu í hinum ýmsu málum annars vegar og sekt pólitískra andstæðinga sinna hins vegar.

Þetta sést greinilega hérna á Íslandi, en þó eru Bandaríkin besti staður í heimi fyrir lögfræðinga til að verða stjórnmálamenn. Í Bandaríkjunum er réttarkerfið nefnilega þannig að lögfræðingur vælir einhverjar væmnar ræður og froðusnakkar fyrir hálfvitum sem skipa það sem heitir kviðdómur. Kviðdómurinn ákveður síðan eitthvað eins og hvort eigi að kála O.J eða sleppa honum, eða hvort McDonalds eigi að borga einhverri kellingu 50 milljón $ því hún hellti niður á sig kaffi. Starf Bandarísks lögfræðings gengur sem sagt meira eða minna út á það að sannfæra fullt af heimsku og illa upp lýstu fólki með blaðrinu í sér - nákvæmlega eins og stjórnmálamenn gera!




pH-ið hækkar enn


Hann Hörður Mar var að skrifa þetta á síðunni sinni:

"Maður, sem við skulum kalla Lilla, spurði mig hvort ég vissi hvaða sýrustig sæðisvökvi hefur. Þar sem ég hef dálitla menntun í líffræði mannsins vissi ég að sæðisvökvi er basískur, en ekki að hve miklu leiti. Lilli sagði mér að hann hefði sýrustig upp á svona níu til tíu, sem er nú bara nokkuð basískt. Þá sagði ég, nokkurs vísari: "Já, þess vegna er þá sápubragð af því." Við þessu brást Lilli eins og lítil stelpa, æpti: "Oj, en ógeðslegt!" með tilheyrandi handahreyfingum og skelfingarsvip.

Það er nefnilega þannig með Lilla að hann þykist vera algjör nagli sem getur toppað hvern sem er með dónaskap og sorakjafti, en í rauninni er hann bara saklaus lítill drengur sem fer hjá sér og roðnar ef einhver segir t.d. ríða og grætur sig í svefn á hverju kvöldi af því að þrjótar eins og ég eru alltaf að særa blygðunarkennd hans."

Hvað er málið með að gefa mér svona ömurlegt dulnefni ein og "Lilli"?????
Fólk virðist bara ekki skilja vísindalegan áhuga mans. Fáránleg hugmynd að fara að smakka þetta stöff. Þegar ég var í efnafræði var okkur harð bannað að smakka efnin sem við vorum að gera tilraunir á. Ég sem vísindamaður hef náttúrulega haldið mig við þau prófessional vinnubrögð í vísindum sem ég lærði þar. Svo er þetta nú bara fjandi ódýr afsökun hjá Herði að reyna að halda því fram að hann hafi bara verið að reyna að sjokkera mig - í staðinn fyrir að játa bara það að hann viðurkenndi að hafa smakkað!





Basísk tilvera

Einu sinni var ég í lífefnaræði. Þar voru oft dónalegar umræður í gangi frá skemmtilegum sjónarhornum. Ein stelpan í efnafræði upplýsti okkur meðal annars um það að það sviði að fá brund í augað af því að það væri basískt. Þetta fannst mér mjög interessant og stal mér pH pappír úr labinu í Haga þar sem ég var að vinna eitt sumarið (purely out of scientific interest). Viti menn að pH pappírinn verður blágrænn, sem gefur pH 9-10, og sannar það sem sagt var.

Ég var að segja tveim félögum mínum í tölvunarfræðinn þessa sögu í prófunum núna síðast og þeir vildu bara meina að ég væri pervert! Að hugsa sér, að kunna ekki að meta fróðleiksfýsni vísindalega þenkjandi manns. Þess vegna gaf ég þeim bara pH pappír í jólagjöf svo þeir gætu sjálfir fróað..... ég meina prófað þetta.




kjósakjósakjósa!!

Tónlistarverðlaun RadíóX og Undirtóna verða bráðum veitt og við getum kosið á www.tilveran.is
Lágmenningarvinirnir í Ampop eru tilnefndir sem besta rafpoppið og það eiga allir að kjósa þá!!!!

Muna að kjósa AMPOP!




Ísland í bítið

Ég þoli ekki að sjá Ísland í bítið! Þetta er ótrúlega leiðinlegt fólk sem sér um þáttinn, þau Jóhanna og Þórhallur. Fyrir þá sem ekki vita hvað gerist í Ísland í bítið þá sitja þau skötuhjú þarna saman, skoða blöðin og fá fólk í heimsókn sem þau taka viðtal við um hin ýmsu málefni.
Ég er í rauninni ekkert á móti morgunþáttum. Það er fínt að glápa á góðar og rólegar fréttaskýringar á morgnanna áður en maður fer í skólann eða vinnuna og svo eru nú sumir sem annað hvort geta ekki unnið eða vinna eftir hádegi þannig að það er bara fínt að hafa góðann þátt á morgnanna. En ekki Ísland í bítið.

Það sem fer mest í taugarnar á mér eru Jóhanna og Þórhallur. Þegar Jóhanna er með fólk í í viðtali skín það alltaf í gegn að hún hefur ekki hugmynd um hvað hún er að tala um. Að heyra hana tjá sig er eins og að horfa á lélega sápuóperu þar sem fólkið á að vera tala af rosalegri kunnáttu en maður bara veit að það hefur ekkert vit á því sem verið er að tala um. Það sem gerir þetta hvað augljósast hjá Jóhönnu er að ef að hún er að demba einhverjum upplýsingum á viðmælandann. Hún virkar voða professional og kemur með flotta frasa, miklar tölur og túlkun á þeim. Voða merkileg...þangað til viðmælandinn svarar. Hann kemur þá með aðra túlkun á gögnunum sem gæti jafnvel líka staðist. Þá kemur smá fát á Jóhönnu, lítið augnabliks hik og hvað gerist þá? Hún bara endurtekur romsuna sína aftur, óbreytta! Ekkert svar við kommentunum frá hinum, ekkert "en hvað með þetta" eða neitt. Nei, bara sama romsan aftur.
Þórhallur er samt ennþá hallærislegri. Alltaf þegar hann talar um eitthvað merkilegt málefni þá kemur svona merkilegheitasvipur á andlitið á honum, hann verður brúnaþungur og fer síðan í sama haminn og Jóhanna að lepja upp eitthvað sem hefur verið matað í hann án þess að skilja nokkurn skapaðan hlut.

Það sem er eiginlega vandræðalegast er að fylgjast með öðrum sem eru í þættinum. Stundum fá þau nefnilega til sín "gestastjórnendur", það eru sem sagt aðrir fréttamenn sem sitja með annað hvort Jóhönnu eða Þórhalli. Alltaf þegar þau síðan byrja á froðunni og steypunni og afhjúpa hvað þau vita ekkert um málið verða hinir stjórnendurnir vandræðalegir. Þeir eru svona eins og foreldrar barna sem garga á ljótt fólk úti á götu, það kemur svona vandræðalegt bros, þau ræskja sig, geta ekki verið kyrr í stólnum og vita ekkert hvað þau eiga að gera. Þá verður það alveg kristaltært hvað Jóhanna og Þórhallur vita EKKERT um efnið.




Viðkvæma pakkið

Gat nú verið! Ég var að skoða kommentin sem eru komin á pistilinn minn um pólitík og þar sá ég að einhver er að væla yfir menntasnobbi af því að ég segi að fólk með einfalt stúdentspróf sé kannski ekki hæft til að taka ákvarðanir sem snúa að málum sem ættu að vera ákvörðuð af fólki sem hefur verið að skoða þau í mörg ár!
Þessi herramaður segir að fleiri geti ráðið einhverju en bara sálfræðingar. Þarna er maðurinn væntanlega að skjóta á mig þar sem ég er sálfræðinemi og heldur að ég sé haldinn einhverjum pólitískum draumsýnum. Ekki alveg. Þar sem ég er að læra um mannlega hegðun þá hef ég til dæmis EKKERT vit á virkjanamálum. Það eru til menn sem hafa verið í skóla í mörg ár og síðan starfað við slíkt lengi sem eru miklu hæfari en ég að taka ákvarðanir um það! Þetta eru náttúrfræðingar eða umhverfisblablablafræðingar, hagfræðingar og svoleiðis menntað fólk.

Ég er bara nokkuð viss um að Sif Friðleifsdóttir lærði ekkert í umhverfisfræðum í sjúkraþjálfun og að Valgerður lærði ekkert um iðnað og viðskipti þegar hún lærði ensku! Og hversu mikið vit heldur þessi ágæti herramaður að maður með einfalt stúdentspróf hafi mikið vit á heilbrigðismálum? Það er ekki að ástæðulausu að það er svona mikið fall í læknanáminu! Þetta er mjög flókið fyrirbæri.
En mér finnst þessi ummæli sýna best hvað við erum í miklum skít með stjórnkerfið hérna. Enginn þorir að breyta neinu af ótta við að það gæti minnkað möguleika hans og vina hans á feitu embætti eða minnkað veskið hans aðeins. Skítt með það að það væri miklu betra fyrir alla!

Pakk!!




Talandi um fordóma..

Sáuð þið lokaþáttinn af Survivor? Það var þessi hálfvita svertingi sem var alveg sannfærður um að allt mótlæti gegn honum stafaði af rasisma (en ekki af því að hann væri fífl og fáviti og lauslátur perri sem reyndi að halda fram hjá kellingunni sinni). Þessi maður var nú einhver mesti hálfviti sem nokkurn tíman hefur komið í Survivor seríunum (og það er af nógu að taka). Fyrst byrjaði hann að kalla einn gaurinn "ignorant southern ... eitthvað" sem er náttúrulega ekkert rasistalegt, og vælid síðan að sá gaur væri alger rasisti gagnvart svertingjum. Ef eitthvað var rasismi gegn svarta kynþættinum, þá var það að láta þá fá svona ömurlegan fulltrúa í þáttinn.




Hommavæl


Jæja, það fóru einhverjir hommar að kveinka sér yfir pistlinum mínum á þessari hommi.blogspot.com síðu og segja að ég væri með ofboðslega mikla fordóma (sjá kommentin á þeirri síðu). Það fór eitthvað ferlega mikið fyrir brjóstið á þeim að ég skildi segja að það væri örugglega skítlétt að hözla ef maður er hommi og að ég skildi nota orðalagið "hræra í réttum gærdagsins" og "fá rjóma í svissmissið." Þetta er ekkert nema týpískt minnihlutahópasydróm, að fara að væla út af öllu því að það séu fordómar gagnhvart þér. Ef ég myndi nota orðalagið "að porka einhverja konu", "sulla í einhverri kellingu" eða "lepja rottu" myndu það teljast fordómar gagnvart kynlífi gagnkynhneigðra? Nei, það telst bara vera dónalegt orðbragð, nákvæmlega eins og að tala um að "hræra í réttum gærdagsins" myndi ekki vera talið fordómar ef það væri í samhengi við kynlíf við kvenmenn.

Hvað það varðar um að vera með fordómafullar hugmyndir um lauslæti homma: Ég veit að ef ég færi upp að ókunnugum kvenmanni í mínum útlitsklassa og spyrði hana hvort hún vildi koma heim að knulla mætti ég búast við að fá á kjaftinn. Ef svoleiðis kona kæmi hins vegar upp að mér og spyrði mig sömu spurningar myndi allt annað vera uppi á teningnum. Ég er fjandann engin undantekning með það (flestir karlenn sem ég veit um eru nú talsvert tilbúnari til að taka hvaða hörmung sem býðst). Ég er í rauninni bara að álykta að hommar séu að þessu leyti eins og gagnkynhneigðir karlmenn (og fái þar af leiðandi miklu meira á broddinn). Ég hélt að fordómar gagnvart hommum fælust nú vanalega í því að halda því fram að hommar væru eitthvað öðru vísi.

Þetta er sem sagt ekkert nema væl. Mín reynsla af hommum er líka sú að þeir séu almennt ekkert umburðalyndari eða með minni fordóma en gagnkynhneigðir. Ég vorkenni þeim þar af leiðandi ekkert að það sé talað um að "hræra í réttum gærdagsins", "fá rjóma í svissmissið sitt", "skrensa í flór", "pota í mr.Hankey" eða hvað svo sem manni kynni að detta í hug í þessu samhengi.




Tékkið á þessu!


Það eru bara hommar að stela pistlunum manns. Annars er þessi síða hommi.blogspot.com örugglega fín síða fyrir hommana í mafíu selfoss til að hanga á, svo þeir geti látið okkur gagnkynhneigðu gaurana á lágmenningu í friði til tilbreytingar.




Syfja


Djöfull er erfitt að vakna á venjulegum tíma og halda sér vakandi núna eftir jólafríið. Ég þarf ekki nema að setjast niður og ég sofna. Þegar ég er í fyrirlestri og kennarinn fer allt í einu að tala um púka og skrímsli eða eitthvað álíka absúrd þá geri ég mér grein fyrir að mig er farið að dreyma. Þá potar einhver í mig blýanti, ég vakna og kennarinn er aftur að tala um forritunarmál. Kannski ég ætti að byrja á kaffi....




pólitík

Mér finnst pólitík asnalegt fyrirbæri. Þetta er kannski full harkaleg fullyrðing því að mér finnst gaman að hafa skoðun á hlutunum og hef því skoðun á öllum flokkum sem eru hérna á Íslandi, mönnum og málefnum. En það sem ég er að pirrast út í núna er ekki endilega flokkarnir eða fólkið heldur skipulagið sem viðheldur þessari vitleysu.

Lítum til dæmis á ríksstjórnina og skoðum hvað þetta fólk hefur gert til að vera dæmt hæft til að sinna þessum störfum. Byrjum á sjálfstæðisráðherrunum.
Davíð Oddsson forsætisráðherra er lögfræðingur og "skáld". Veit satt að segja ekki almennilega hvað felst í því að vera forsætisráðherra og kannski er lögfræðingur bara ágætur í því. Geir H. Haarde fjármálaráðherra er lögfræðingur og hefur að mínu viti aldrei lært nokkuð um fjármál og fjármálastjórnun. Mér hefur helst sýnst hann vera að selja sem mest og fá tekjur þannig. Minnir mig soldið á fólkið sem heggur skógana endalaust niður og fattar svo allt í einu að það eru engin tré eftir. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra er byggingartæknifræðingur. Kannski er hann með menntun í starfið ég bara veit það ekki. Hvað með að hafa skipulagsfræðing í þessu djobbi? Tómar Ingi Olrich er kennari að mennt held ég og því kannski ágætlega hæfur til að vera menntamálaráðherra. Lærði frönsku og sögu í HÍ og síðan framhaldsmenntun í atvinnulandafræði. Árni Matthísen sjávarútvegsráðherra er dýralæknir og sérhæfði sig í fiskisjúkdómum. Ok, ég skal kannski kaupa það. Hefði frekar viljað sjá fiskifræðing í því starfi. Sólveig Pétursdóttir dóms-og kirkjumálaráðherra er svo einn einn lögfræðingurinn. Satt að segja hef ég mínar efasemdir um að lögfræðingur viti hvað sé hugsanlega gott eða vont í stjórnun lögreglu. Mér fannst nú Falun Gong vera nokkuð gott dæmi um stjórnhæfni hennar. Hún hefur nú ekki verið með góða lokaeinkunn á prófinu sínu.

Þá er það Framsóknarflokkurinn.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra er löggiltur endurskoðandi og hefur MA gráðu í þeirri grein. Veit nú ekki alveg hvað gerir endurskoðanda hæfann til að vera utanríkisráðherra. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra er með próf í ensku. Við vitum þá að hún getur talað við Alcoa en skilur örugglega ekkert gögnin þeirra um uppblástur og eyðileggingu lands. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra er sjúkraþjálfari. Hún getur þá kannski hjálpað hreindýrunum og gæsunum þegar Valgerður er búin að sökkva hálendinu. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra er örugglega sá ráðherra með hvað bestu menntun í starfið ásamt Tómasi Inga, en Guðni er búfræðingur að mennt. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra er svo með samvinnuskólapróf. Veit ekki alveg hvað það þýðir en held að það sé stúdentspróf. Mjög gott að hafa svona hæfann mann í einu af mikilvægustu ráðuneytunum! Svo skulum við enda á brandaranum í ríkisstjórninni, félagsmálaráðherranum Páli Péturssyni sem er bóndi! Ekki einu sinni búfræðingur eins og Guðni, nei hann er stúdent og bóndi. Rosalega góð menntun til þess.

Líður ykkur ekki betur núna að vita hvað fólkið sem stýrir landinu er hæft til verksins?




Hvað er framundan á þessu ári?


Úr því árið er rétt að byrja er kannski rétt að fara aðeins í það sem er framundan hjá okkur. Fyrir utan að halda áfram að uppfæra síðuna eins og vanalega eru ýmsir aðrir hlutir á dagskrá. Til að byrja með vonumst við til að koma fram í þættinum Gnarrenburg bráðlega, en það á eftir að koma í ljós hvort það tekst. Við eru einnig með nokkrar aðrar hugmyndir um að koma fram í fjölmiðlum, en viljum ekki fara nánar út í þær strax.


Fyrir þá sem hafa séð Cult 1 þá munið þið eftir karatemyndinni Grátandi api, ballett í leynum. Leikstjóri þeirrar myndar er að vinna að hinum tveimur hlutunum úr Grátandi apa trílógíunni. Hann er kominn nokkuð áleiðis, en wrestling hópur lágmenningar.is leikur í annarri þessara mynda.

Margir hafa kannski líka velt fyrir sér hvað hafi orðið um kvikmyndina Heddarann 7, hausverk ástarinnar, sem átti að koma út í ár (lágmenning.is leikur líka í henni). Sú mynd er ennþá í vinnslu, en vinnslan á henni hefur tekið mun lengri tíma en áætlað var. Matthías Kristjánsson, leikstjóri myndarinnar, sem einnig er að klippa hana saman, vildi engu lofa um hvenær hún yrði tilbúin, en sagði að það væri mögulega fyrir lok þessa árs. Við verðum bara að bíða róleg.

Það stendur til að gefa út Cult 2 einhverntíman og munum við byrja að vinna að því í ár. Við eru ekki búnir að ákeða hvaða myndir verða á þeirri spólu, fyrir utan að næsta mynd í Grátandi apa trílógíunni verður mjög líklega þarna. Þess vegna er nógur tími fyrir kvikmyndagerðarmenn að hafa samband við okkur ef þeir vilja að þeirra mynd verði með á spólunni. Við erum að leita að góðum stuttmyndum, það er ekki verra að þær séu í lágmenningarlegum anda. Við erum ekki eintómir einkavinaplöggarar hjá lágmenningu.is og munum fúslega setja inn myndir frá aðilum sem við þekkjum ekki neitt, ef þær eru nógu góðar.

Þetta eru allavegana þau plön sem við höfum til skamms tíma, en þið megið vera viss um að við finnum upp á fleiri hlutum þegar á líður.




Liðna árið


Það er auðvitað viðeigandi að rifja upp helstu atburði síðasta árs hjá lágmenningu.is. Það var í ár sem við fórum fyrst að blogga síðuna og hefur það gengið vel síðan. Það var aðallega seinni part ársins sem hlutirnir voru hvað mest að gerast hjá okkur. Til að byrja með þá stórjukust vinsældir síðunnar í haust og heimsóknafjöldi á hana margfaldaðist.

Fyrst var það þessi skoaðanakönnun sem vakti athygli. Næsta skoðanakönnun okkar var þó sú lang umdeildasta og vakti mikið umtal, fögnuð, reiði og hótanir. Eins og flestir muna var hún um hvaða staður væri mesta skítapleisið á landinu.

En það var fleira en bara dónaleg skrif á netið sem við afrekuðum í ár. Í lok ágústgáfum við út videospóluna okkar Cult 1 með íslenskum stuttmyndum í lágmenningarlegum anda og um miðjan september héldum við allsherjar wrestling sýningu við Háskóla Íslands. Það var síðan í nóvember sem ég kom í þættinum "Sigurjón Kjartansson & co." og við Sigurjón tókum lagið saman.

Allt í allt var þetta sem sagt mjög vel heppnað ár, þar sem vinsældir lágmenningar margfölduðust. Við vorum með um 6000 heimsóknir í september, 11.000 í október og 10.000 í nóvember og að meðaltali 200.000 hit á mánuði yfir þessa þrjá mánuði. Við þökkum öllum sem hafa stutt okkur og að sjálfsögðu öllum lesendum síðunnar, því það er nú ekki síst um þá sem allt þetta snýst.




Nýtt ár


Lágmenningarárið 2002 er nú liðið. Í tilefni að nýja árinu er nú alltaf möguleikinn "svara grein" fyrir neðan bloggin okkar. Sá hlekkur færir ykkur á það sem heitir á ensku "discussion forum" það er að segja umræðuhorn. Þar skrifið þið bara titilinn að því sem þið viljið tjá ykkur um og skrifið síðan um það sem ykkur sýnist. Þetta gerir ykkur kleift að kvarta og veina ef við móðgum þig, segja okkur opinberlega hvað þú fílir okkur mikið eða rífast við aðra lesendur síðunnar. Fæðingarhálfvitar sem skrifa í nöfnum annara og halda að það sé eitthvað fyndið eða frumlegt eru hins vegar afþakkaðir og ég mun henda póstum frá svoleiðis fávitum í ruslið strax.





Eldri blogg

-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)