Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!
LOTRÉg fór á Lord of the Rings í gær og varð ekki fyrir vonbrigðum. Ef Peter Jackson fær ekki Óskarinn næst þá eru Ameríkanar bara viðbjóðsleg fífl og aumingjar. Það var nógu fáránlegt þegar hann fékk ekki verðlaunin í fyrra (á meðan t.d. useless grenjuskjóðu píka eins og Hale Berry getur skóflað upp svona verðlaunum, og notað þau sem afsökun til að eyðileggja síðan eina James Bond mynd). Peter Jackson er hetja, og hann átti fyrir löngu skilið að fá verðlaun fyrir gömlu listaverkin sín, eins og Bad taste, Braindead og Meet the Feebles. Jackson hefur líka vit á að hafa ekki ömurlega steríótýpu Hollywoodleikara í myndunum sínum og á hann hrós skilið fyrir það.
posted by Rökkvi on 12/29/2002 10:35:12 PM
jólagleðiVoðalega finnst mér gaman að hafa rétt fyrir mér! Ég var að skoða mbl.is og sá þar athyglisverðar fréttir. Á annann í jólum var ball í Stapanum í Keflavík, þar voru þrjár líkamsárásir kærðar sem áttu sér stað á ballinu. Á aðfangadag voru tvær hnífstungur í Reykjavík og hvar haldið þið að þær hafi átt sér stað? Nú auðvitað í Breiðholti! Á annann í jólum var miðbærinn fullur af fólki sem var að djamma og djúsa eftir stressið sem fylgir jólunum. Samkvæmt því sem ég las var ekkert um vandræði þar. Engar líkamsárásir, engar hnífsstungur allir bara í góðum fílíng. Vildi bara deila þessu með ykkur.
posted by Jón Grétar on 12/27/2002 08:22:40 PM
Rafmagnið fór af heima rétt eftir að ég var búinn að skrifa bloggið í gær. Guð hefur verið of seinn, he, he, he....
posted by Rökkvi on 12/25/2002 09:16:09 PM
Gleðileg jólÉg óska öllum lágmenningarsinnum landsins gleðilegra jóla. Eins og allir vita þá snúast jólin um pakka og ofát og eru til að halda upp á að það fer að birta aðeins, svo landsmenn þjáist ekki jafn mikið af skammdegisþunglyndi. Það er reyndar eitthvert halelújapakk sem heldur því fram að jólin snúist um það að lítill Gyðingastrákur hafi fæðst í Palestínu fyrir 2000 árum eða svo. Ég hef eitt við svoleiðis fólk að segja: Ef það er til himnaríki fullt af ykkur, sendið mig þá beint til helvítis þegar ég drepst.
posted by Rökkvi on 12/24/2002 06:04:55 PM
Litlu jólÞað voru litlu jól hjá bróður mínum í gær. Þau virka þannig að allir eiga að kaupa eitthvað ódýrt og hallærislegt, síðan er pökkunum ruglað og hver fær síðan að taka upp einn pakka. Það er keppni um hver gefur hallærislegustu gjöfina. Litla systir mín vann, því hennar gjöf var einnota stólpípa!
posted by Rökkvi on 12/23/2002 08:15:50 PM
Það er Selfyssingur sem stendur fyrir Andkristnihátíðinni!Ótrúlegt, en það var bara Selfyssingur sem stóð fyrir svona myrkraverki. Gott ef þetta bætir ekki bara ímynd mesta skítapleiss landsins talsvert. Ef þið sáuð þetta þá var ég allavegna gimpið í hvíta kublinum sem lét hella á sig gerviblóðinu.
posted by Rökkvi on 12/22/2002 10:06:46 PM
Andkristnihátíð í kvöldAndkristnihátíðin, sem er heljarinnar þungarokkstónleikar, verður haldin í Tjarnarbíói í kvöld. Fjörið byrjar kl. 7 um kvöldið og mun síðan standa fram á nótt. Ég hvet alla sanna rokkara og lágmenningarsinna til að mæta. Það er 16 ára aldurstakmark og kostar 500 kall inn.
posted by Rökkvi on 12/21/2002 03:36:37 PM
JólaglaðningurEins og allir vita geta jólin verið alveg afspyrnu leiðinlegur tími fyrir þá sem hafa lítið gaman að fjölskylduboðum og halelúja sjónvarpsefni. Þá er bara eitt að gera: fara út á Laugarásvídeó en þeir eru með opið á aðfangadag milli 12 og 16 og strax aftur á annann í jólum. Þeir sem taka spólur á Þorláksmessu hjá þeim þurfa ekki að skila þeim fyrr en 26 desember! Laugarásvídeó var að fá slatta af nýjum stand up spólum, Lee Evans, Billy Connolly, Eddie Izzard og fullt af fleirum. Held að þeir hafi stærsta safn af stand up comedians sem ég hef séð. Svo má ekki gleyma wresling spólunum, þeir sem ekki hafa séð The Big Five of 1999 verða að sjá það. Einar bestu wreslingspólur sem ég hef komist í og þær lang bestu sem hægt er að fá á vídeóleigum hérna. Síðan eru jólin náttúrulega besti tíminn til þess að verða alvöru nördi og taka heila seríu af einhverjum sjónvarpsþætti. Hvernig væri að kynnast Buffy, Twin Peaks, V, Millenium eða Transformers! Djöfull er ég farinn að hlakka til jólanna!!!
posted by Jón Grétar on 12/21/2002 10:13:50 AM
Af hverju skrifa allir "dreyfari" þegar dreifing, dreifni, dreifbýli er allt með i en ekki y?
posted by Rökkvi on 12/20/2002 03:27:08 PM
JólaglaðningurJæja elskurnar mínar, hérna eru nokkrar jólavísur til að koma ykkur í jólaskapið. Ein er alveg glæný, var bara að semja hana í gær.
posted by Rökkvi on 12/20/2002 03:25:20 PM
enn um dreyfaraÆtli ég verði ekki að leiðrétta enn einn misskilninginn. Þetta er að verða svolítið hvimleitt en ég reyni áfram að koma hinni réttu hugsun á framfæri. Það hafa nokkrir sárir sveitamenn haft samband við mig og kvartað yfir illu tali mínu um sig. Þeir hafa sagt að ég hafi kallað þá hnakka, chokkó, Skímófan og öllum mögulegum illum nöfnum. Það er aldrei gott að vera hafður fyrir rangri sök og sérstaklega ekki af góðu fólki. Þeir sem hafa skoðað síðuna í svolítinn tíma muna eftir sögunni sem ég sagði frá drengjunum úr Keflavík sem voru lamdir af samborgurum sínum af því að samborgararnir héldu að þeir væru úr Breiðholti. Þar er gott dæmi um tvo hópa manna úr sama byggðarlaginu þar sem aðrir virðast vera dreyfarar eða hnakkar en hinir eru bara...Keflvíkingar, háskólanemar, whatever. En ekki dreyfarar, alla vega ekki samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef um þá. Ég hef oft og mörgum sinnum gert greinarmun á dreyfurum annars vegar og sveitafólki hins vegar. Dreyfarar eru fífl, sveitafólk er bara normal fólk eins og flestir aðrir en búa bara í sveit! Chris Rock orðaði svipað vandamál á eftirfarandi hátt: "I love black people, but I HATE niggers!" Það sama á við um mig...ég fíla sveitafólk en ég HATA dreyfara! Ekki flókið, er það?
posted by Jón Grétar on 12/19/2002 12:44:00 AM
Jæja, elskurnarÞví miður er ég ferlega melló. Ég er nefnilega nýbúinn í prófum og bara að safna aðeins orku áður en ég fer að dissa allt og alla út um allt. Aumingja Selfyssingarnir - hafa barasta ekki fengið vott af athygli svo dögum skiptir. Anyway - hafið ekki áhyggjur lágmenningaraðdáendur, ég hef ekkert skánað móralskt, nóg af djöfullegum áformum liggja fyrir og munu brátt verða framkvæmd.
posted by Rökkvi on 12/18/2002 11:32:21 PM
Nýtt bloggVið vorum að koma upp blogginu upp á nýtt. Nú verður væntanlega bloggað hraðar og meira... Smellið hér til að skoða eldri blogg
posted by Rökkvi on 12/18/2002 09:42:30 PM
Eldri blogg
-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)
|